Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Page 70

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Page 70
Fagið08/16 í sorginni (Hauksdóttir o.fl., 2010; Valdimarsdóttir o.fl., 2004). Sé sjúklingur sjálfráða og með fulla meðvitund er samþykki hans þó líkast til forsenda þess að heilbrigðisstarfsmaður hafi rétt til að upplýsa og undirbúa aðstandendur (Lög um réttindi sjúklinga, 1997). Því verður opið samtal milli sjúklings og heilbrigðisstarfsmanns að hafa átt sér stað. Fagfólk í heilbrigðisþjónustu, sem annast sjúklinga með ólæknandi sjúkdóma, gerir sitt besta til að aðlagast breyttum hefðum, viðhorf- um og klínískum leiðbeiningum en byggir þó ekki síst á klínískri og persónulegri reynslu. Það er reynsla höfunda þessarar greinar að þörf og eftirspurn sé eftir þjálfunar- og námsefni fyrir starfsfólk heilbrigð- iskerfisins á þessu sviði. Þess vegna ákváðum við að gera klíníska inngripsrannsókn sem fyrsta skrefið á þeirri leið að undirbúa aðferð sem gæti hentað. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna boðskipti milli sjúklinga með ólæknandi sjúkdóm og heilbrigðistarfsfólks varðandi dauða sjúklings með tilliti til kynjamismunar. Einnig að kanna hvort tiltölulega einfalt inngrip hefði áhrif án þess að farið væri yfir persónumörk sjúklings (e. autonomy). Söfnun gagna fór fram á Landspítalanum á árunum 2006-2008 en úrvinnsla gagna var fram- kvæmd eftir að allir sjúklingar, sem rætt var við, voru látnir. Íslensk rannsókn: Nýlega birtum við gögn úr rannsókn á klínísku inngripi í viðtölum í líknarmeðferð (Skúlason o.fl., 2014). Rannsóknin var hluti af doktorsverkefni í heilbrigðismannfræði við Háskóla Íslands í samstarfi við Karolinska institutet í Svíþjóð. Lögð var áhersla á þverfaglegar rannsóknarspurningar og -aðferðir (Skúlason o.fl., 2014). Meginmarkmið okkar voru annars vegar að skapa aðstæður, sem efla umræðu um eigin dauða, og hins vegar að opna nýjar leiðir fyrir heilbrigðisstarfsmenn í samtölum við nánustu aðstandendur sjúklinganna. Ef taka á fullt tillit til réttinda sjúklinga til að stjórna umræðunni um eigin meðferð og lífshorfur er vísast að samtal á milli fagfólks og dauðvona sjúklinga sé forsenda þess að samtal við nánustu aðstandend- ur um ástand og horfur geti átt sér stað.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.