Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 5
Á flæðisviði eru fjölmargar fagstéttir sem sérhæfa sig í meðferð og umönnun eldra
fólks; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, læknar, sérfræðingar í öldrun ar lækningum,
sérfræðingar í öldrunarhjúkrun, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafar, næringar
fræðingar, sálfræðingar, prestar og fleiri.
Meginmarkmið þeirra sem starfa við öldrunarþjónustu á flæðisviði er að veita
eldra fólki meðferð og umönnun sem eflir færni þess, sjálfstæði og lífsgæði. Leitast
er við að styðja eldra fólk í því að búa sem lengst heima þrátt fyrir veikindi eða
færnitap, styðja aðstandendur og tryggja viðeigandi heimaþjónustu.
Á sviðinu vinna fagstéttir auk þess öflugt rannsóknar, nýsköpunar og þróunarstarf
í þágu aldraðra og tekið er á móti fjölda nemenda frá háskólum og öðrum
menntastofnunum.
FLÆÐISVIÐ LANDSPÍTALA
UMHYGGJA • FAGMENNSKA • ÖRYGGI • FRAMÞRÓUN