Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Page 46
46 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir byltur hjá öldruðum?
að gera árlega og oftar ef breytingar verða á heilsufari.
Niðurstöður úr þessu mati eru að annaðhvort er viðkom-
andi í lítilli byltuhættu eða mikilli; mikil byltuhætta er ef
viðkomandi fær fleiri en fimm stig (Tabloski, 2014).
Mikil áhersla er lögð á skimun og mat á byltuhættu í
nýjustu uppfærðu leiðbeiningum frá American Geriatrics
Society og British Geriatrics Society (Panel on Prevention
of Falls in Older Persons, 2011). Lögð er áhersla á að skrá
fyrri sögu um byltur, gera nákvæmt líkamsmat og færnimat
ásamt því að meta umhverfi á stofnunum og heima.
Inngrip til varnar byltum
Skilgreindar hafa verið þrjár tegundir af meðferðarinn-
gripum til að fyrirbyggja byltur: 1) Ein tegund meðferðar
(e. single interventions) svo sem æfingar, 2) margþætt inn-
grip (e. multifactoral) sem byggjast á einstaklingsbundnu
áhættumati þannig að einn einstaklingur fær æfingar
og breytingar á umhverfi meðan annar fær breytingar á
umhverfi og breytingar á lyfjum, og 3) fjölþætt inngrip
(e. multiple component) þar sem hópur einstaklinga fær
tvö inngrip svo sem æfingar og D vítamín (Goodwin, o.fl.,
2014). Þar sem um er að
ræða flókið samspil margra
ólíkra þátta og rannsóknum
ber ekki saman um hvenær
skuli nota hverja tegund
inngripa er ráðlagt að
leggja til að byltuvarnir
þurfa að vera annað hvort
margþátta og einstaklings-
hæfðar, fjölþátta með
áherslu á ákveðinn hóp og
mikilvægt er að unnið sé
þverfaglega með aðkomu
margra heilbrigðistétta með
góða þekkingu á byltuvörn-
um. Margþátta meðferð á
betur við í heimahúsum en
mikilvægt er að nota bæði
margþátta- og fjölþátta-
meðferð á hjúkrunarheim-
ilum (Goodwin o.fl., 2014;
Panel on Prevention of Falls
in Older Persons, 2011).
Inngrip sem hafa áhrif
á innri þætti
Innri þættir er það sem
snýr að einstaklingsbundnu
ástandi sjúklingsins.
Hjúkrunarfræðingar eru
í lykilhlutverki að fræða
sjúkling um einstaklings-
bundnar byltuvarnir.
Hjúkrunarfræðingar ættu að fræða aldraða sem eru í
byltuhættu, og ekki hvað síst aðstandendur þeirra. Gefinn
hefur verið út bæklingur til sjúklinga og aðstandenda á
LSH sem er aðgengilegur fyrir alla landsmenn (mynd
1). Mikilvægt er að fræða bæði aldraða, sem eru inni á
heilbrigðistofnunum, og þá sem búa heima.
Skortur er á meðferðarannsóknum um árangur fyrir-
byggjandi meðferðar við byltum. Niðurstöður rannsókna
sýna að líkamsþjálfun er forvörn og að hún dregur úr
byltuhættu (Karlsson o.fl., 2013) og er hún eini þátturinn
sem sýnt hefur verið að hafi áhrif ein og sér (Sharma,
2016). Fjölbreyttar æfingar, sem stundaðar eru reglulega,
eru taldar áhrifaríkastar og þá sérstaklega styrktar- og jafn-
vægisæfingar en einnig liðkandi æfingar og þrekæfingar.
Æfingakerfi, sem inniheldur þessar æfingar, er talið draga
bæði úr fjölda bylta og einnig fjölda þeirra sem detta.
Tai Chi er kínverskt æfingakerfi og er talið auka styrk,
samhæfingu, sveigjanleika og jafnvægi og almennt bæta
líkamsástand og er einnig talin áhrifarík leið í forvörnum
(Panel on Prevention of Falls in Older Persons, 2011,
Karlsson o.fl., 2013). Einnig hefur verið sýnt fram á að
MYND 1. Bæklingur Landspítala um fræðslu til sjúklinga og aðstandenda um byltur og byltuvarnir.