Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Qupperneq 24
24 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Munnheilsa aldraðra
ÖLDRUÐUM MUN fjölga mjög á næstu árum og áratugum
og er áætlað að mesta fjölgunin verði í aldurshópnum 85
ára og eldri. Munnheilsa er öllum mikilvæg en sérstaklega
þeim eldri. Fólk heldur eigin tönnum lengur nú á dögum
en áður var og hefur orðið mikil breyting á örfáum áratug-
um. Margir eru með dýrar viðgerðir í tönnunum, krónur,
brýr og ígræðslur sem kalla á gott hreinlæti til að viðhalda
góðri munnheilsu og fyrirbyggja vandamál. Slæm munn-
heilsa eykur líkur á tannskemmdum, sjúkdómum í gómum
og sveppasýkingum sem geta valdið miklum óþægindum
og skertum lífsgæðum hjá öldruðum. Fullnægjandi
munnheilsu virðist vera ábótavant á hjúkrunarheimilum
en heilbrigðisstarfsfólk og aðrir umönnunaraðilar gegna
mikilvægu hlutverki við að betrumbæta munnheilsu
skjólstæðinga sinna og ætti hún að vera hluti af heildstæðri
hjúkrun þeirra.
Heilbrigður munnur
Heilbrigður munnur á að hafa hreinar tennur með
lágmarkstannsýklu. Fyllingar og viðgerðir eiga að vera
óskemmdar svo þær valdi ekki skaða á aðliggjandi vefjum,
tungu eða kinnum. Gómarnir eiga að vera bleikir og
stinnir. Blæðing frá gómi er ábending um vandamál og ætti
að fá sérfræðiálit tannlæknis. Gervitennur, hvort sem eru
nokkrar eða allur tanngarðurinn, eiga að vera hreinar og
án skarpra brúna. Tungan á að vera bleik með jafnri áferð
og ósködduð. Slímhúðin á að vera bleik, mjúk, rök og án
sára. Sár, hvítar eða rauðar skellur í munni, sem hafa verið
viðvarandi í meira en tvær vikur, er óeðlilegt ástand og
ætti að fá álit tannlæknis á því (Bissett og Preshaw, 2011).
Ýmsar breytingar eiga sér stað í munninum með hækk-
andi aldri. Bragðlaukum fækkar og þeir rýrna og þar með
minnkar getan til að finna bragð. Munnvatnsframleiðsla
minnkar einnig með aldrinum og getur valdið því að
slímhúðin verði mjög þurr en það eykur líkur á sjúkdóm-
um í munni. Gómar rýrna og því verða tennur viðkvæmari,
en glerungur tannanna eyðist með tímanum og það veldur
enn meiri líkum á tannskemmdum. Rýrnun verður á vef í
munnholinu, það getur valdið því að falskar tennur verða
of stórar og passa illa og geta sært viðkvæmt tannholdið.
Ef einstaklingurinn er með eigin tennur getur þessi rýrnun
valdið því að þær færast til og slíkt getur valdið sársauka.
Slíkt getur leitt af sér að fólk forðast að borða ýmsa holla
fæðu eins og grænmeti og ávexti og það getur síðan leitt
af sér vannæringu. Það er mjög mikilvægt að viðhalda
hreinlæti í munninum og koma þannig í veg fyrir mörg
óþægindi (Tabloski, 2014). Góð munnheilsa hefur góð
áhrif á næringu, samskipti og líðan einstaklingsins, en
slæm munnheilsa eykur líkur á sýkingu, skapar vandamál
við að nærast, tyggja, tala og hefur slæm áhrif á líðan hans
(Sonde o.fl., 2011).
Að viðhalda góðri munnheilsu
Góð munnheilsa byggist fyrst og fremst á sykurlitlu
fæði, góðu flæði munnvatns og góðri tannhreinsun (Bissett
og Preshaw, 2011). Að hreinsa burt skán af tönnum krefst
góðra fínhreyfinga, góðrar sjónar og áhuga á verkinu.
Best er að bursta tennurnar kerfisbundið og fara rækilega
yfir hvern flöt tannanna með þeirri aðferð sem hentar
hverjum og einum en ekki hefur verið sýnt fram á að ein
aðferð sé betri en önnur (RNAO, 2008). Mælt er með að
bursta tennurnar með flúorbættu tannkremi í tvær til þrjár
mínútur með léttum þrýstingi að minnsta kosti tvisvar á
dag (Hayasaki o.fl., 2014). Bakteríur í munni setjast jafnt
á gervitennur sem eigin tennur og séu þær vanhirtar eykur
það líkur á sýkingum og sveppasýkingum. Þrif á slímhúð í
munni og tungu fjarlægja tannsýklu og draga úr fjölda ör-
vera í kokinu og er mikilvægt að þrífa munnholið, líka hjá
þeim sem eru tannlausir. Tannlausir, sem nota gervitennur,
þurfa því líka að huga að munnhreinsun og fara reglulega
til tannlæknis (Nitschke o.fl., 2010). Gervitennur á að
láta liggja í köldu vatni yfir nótt. Ef tannsteinn myndast á
gervitönnum er hægt að setja þær í edikblöndu um stund,
eina matskeið af ediki út í eitt glas af vatni og skola svo
af með volgu vatni, þó ekki oftar en einu sinni í mánuði
(Tannverndarráð, e.d.).
MUNNHEILSA ALDRAÐRA
Halla Beic Sigurðardóttir