Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Side 54
54 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
HJARTABILUN ER alvarlegur sjúkdómur en með auknum
framförum í greiningu og meðferð sjúkdómsins fjölgar
þeim sem lifa með langvinna hjartabilun. Sjúkdómurinn
hefur oft óljós einkenni og getur því farið framhjá heil-
brigðisstarfsfólki. Síðan getur fólk einnig talið einkennin
vera hluta af eðlilegum öldrunarbreytingum. Mikilvægt er
að greina hjartabilun sem fyrst því lyf og lífsstílsbreytingar
geta dregið mjög úr einkennum, lengt líf og aukið lífsgæði
aldraðra með langvinna hjartabilun. Meðferðarheldni
skiptir verulegu máli um framtíðarhorfur fólks með
hjartabilun (Chase, 2014). Mikilvægt er að varpa ljósi á þá
þætti sem auka líkur á að fólk með langvinna hjartabilun
verði greint fyrr þannig að það fái viðeigandi meðferð við
henni. Hér á eftir verður fjallað um langvinna hjartabilun,
skilgreiningu, greiningu, orsakir, flokkun, einkenni og
meðferð við henni.
Skilgreining og greining á langvinnri hjartabilun
Hjartabilun er ástand þar sem hjartavöðvinn starfar
ekki eðlilega. Hjartað nær ekki að uppfylla lífeðlisfræði-
legar þarfir líkamans fyrir súrefnisríkt blóði. Í hjartabilun
hefur starfsemi hjartans skerst verulega þar sem blóð-
streymið frá hjartanu er minna en 40% af eðlilegri starf-
semi hjartans. Hjartabilun er yfirleitt ekki læknanleg og því
byggist meðhöndlun hennar yfirleitt á því að halda niðri
einkunnum hennar og viðhalda lífsgæðum einstaklingsins
(American Heart Association. Greiningin byggist að miklu
leyti á nákvæmri læknisskoðun og rannsóknum á starfsemi
hjarta- og æðakerfisins. Langvinn hjartabilun þróast á
alllöngum tíma og koma einkenni því líka smám saman í
ljós og geta verið lúmsk til að byrja með (McMurray o.fl.,
2012). Mikilvægt er að greina hjartabilun sem fyrst til
að auka lífslíkur og bæta almenna líðan einstaklinganna
(Chase, 2014).
Langvinn hjartabilun vaxandi vandamál
Langvinn hjartabilun er vaxandi vandamál í hinum
vestræna heimi vegna tækniþróunar og framfara
í læknisfræði því að fleiri einstaklingar lifa af eftir
kransæðastíflu og meðalaldur fólks hækkar (Chase, 2014).
Langvinna hjartabilun má rekja til erfiðisvinnu hjartans
í langan tíma og er því mun algengari hjá eldra fólk
en því yngra. Af þeim sem leggjast inn á spítala vegna
hjartabilunar eru 80% 65 ára og eldri (Yancy o.fl., 2013).
Talið er að um 9% karlmanna á aldrinum 60 til 79 ára
séu með hjartabilun og um 5-6% kvenna á sama aldri.
Þegar einstaklingar eru komnir yfir áttrætt dregur saman
með kynjunum og eru þá á milli 11 og 12% einstaklinga í
þeim aldurshópi með langvinna hjartabilun. Konur fá oftar
langvinna hjartabilun út af háþrýstingi heldur en karlar,
en meðal karlmanna er algengara að hún fylgi í kjölfar
kransæðastíflu. Langvinn hjartabilun er mjög alvarlegur
sjúkdómur og er dánartíðni há þar sem um 50% einstak-
linga deyja á fyrstu fimm árunum eftir greiningu (Chase,
2014). Lífslíkur einstaklinga með hjartabilun hafa aukist
með bættri meðferð því um 1990 voru 60-70% þeirra sem
greindust með hjartabilun dánir eftir fimm ár (McMurray
o.fl., 2012).
Orsakir langvinnrar hjartabilunar
Frumorsök langvinnrar hjartabilunar er að margar
frumur í hjartavöðvanum hafa dáið og hjartað nær ekki
lengur að starfa eðlilega (Kemp og Conte, 2012). Það sem
veldur því er oftast kransæðastífla eða hár blóðþrýstingur.
Einnig eru ýmsar aðrar orsakir, eins og misnotkun áfengis,
reykingar, hjartavöðvasjúkdómar, gollurshúsbólga,
loku sjúkdómar, hjartsláttartruflanir, lungnaþemba og
efnaskiptasjúkdómar eins og sykursýki og sjúkdómar í
skjaldkirtli (McMurray o.fl., 2012). Enn fremur getur
langvinn hjartabilun þróast í kjölfar sýkinga í hjartanu og
við notkun ýmissa lyfja, eins og krabbameinslyfja (Chase,
2014).
Langvinn hjartabilun kemur sjaldan ein og sér heldur
getur hún komið samhliða öðrum sjúkdómum eða
hrumleika. Hrumleiki er mun algengari hjá þeim sem eru
með hjartabilun heldur en almennt gerist hjá öldruðu fólki
HJARTABILUN: VANGREINDUR
SJÚKDÓMUR HJÁ ÖLDRUÐUM
Inga Björg Ólafsdóttir