Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Side 67
67 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Höfundar greina og ritstjórn
HÖFUNDAR GREINA
Bylgja Kristófersdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar sem deildarstjóri
á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Hún lauk BS-prófi
í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2007 og er nú í diplóma-
námi á meistarastigi í öldrunarhjúkrun við Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands.
Gunnfríður Ólafsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar á hjúkrunarheim-
ilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði
frá UC SYD í Sønderborg í Danmörku, stundaði diplómanám á
meistarastigi í öldrunarhjúkrun veturinn 2015-2016 og er nú í
kandídatsnámi í ljósmóðurfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands.
Halla Beic Sigurðardóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar á
Hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Hornafirði. Hún
lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2011
og er nú í diplómanámi á meistarastigi í öldrunarhjúkrun við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Helgi Egilsson er hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut. Hann útskrifaðist úr Háskóla Íslands 2014 með BS-gráðu
í hjúkrunarfræði.
Jóna Bára Jónsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar á heilsugæslu
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Höfn í Hornafirði og hjúkr-
unarheimilinu Skjólgarði. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá
Háskóla Íslands 2001 og er nú í diplómanámi á meistarastigi í
öldrunarhjúkrun við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Jórunn María Ólafsdóttir er hjúkrunarfræðingur, starfar sem forstöðu-
maður hjúkrunar í Brákarhlíð, hjúkrunarheimili í Borgarnesi. Hún
lauk BS-námi frá Háskóla Íslands árið 2002 og meistaragráðu
í stjórnun í heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum á Bifröst 2010.
Hún er nú í diplómanámi á meistarastigi í öldrunarhjúkrun við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Kristbjörg Sóley Hauksdóttir starfar sem sjúkraliði og verkefnastjóri á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Hún lauk BA-prófi í guðfræði – djákna-
námi frá Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands 2016.
Hún er í meistaranámi í öldrunarfræði við Félagsráðgjafadeild
Háskóla Íslands.
Margrét Ósk Vífilsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar sem deildar-
stjóri á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Hún lauk
BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2007
og er núna í diplómanámi á meistarastigi í öldrunarhjúkrun við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Sólveig Hrönn Gunnarsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar sem
aðstoðardeildarstjóri á hjúkrunardeildunum Fossheimum og
Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Hún lauk BS-prófi
árið 1998, diplómanámi í öldrunarhjúkrun árið 2009 og MS-prófi í
hjúkrunarfræði árið 2016 frá Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Sunna Eir Haraldsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar á
Öldrunarheimilum Akureyrar og Hornbrekku, dvalarheimili aldr-
aðra á Ólafsfirði. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla
Íslands árið 2011 og stundar nú diplómanám í öldrunarhjúkrun við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Unnur Ágústa Sigurjónsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar á
Hjúkrunarheimilinu Eir. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla
Íslands 1989 og er nú í diplómanámi á meistarastigi í öldrunarhjúkr-
un við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Þórlína Sveinbjörnsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi. Hún lauk BS-prófi í hjúkr-
unarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2007 og er nú í diplómanámi
á meistarastigi í öldrunarhjúkrun við Hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands.
RITSTJÓRN
Elfa Þöll Grétarsdóttir er sérfræðingur í hjúkrun aldraðra og
starfar á flæðisviði Landspítala auk þess er hún aðjunkt við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunar-
fræði frá Háskóla Íslands 2002 og meistaraprófi frá Háskólanum í
Wisconsin – Madison 2006.
Guðrún Dóra Guðmannsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar sem
sérfræðingur í öldrunarhjúkrun á flæðisviði Landspítala. Hún lauk
BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1978 og meistaraprófi
frá Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Manchester árið 2001.
Hlíf Guðmundsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar sem sérfræðingur
í öldrunarhjúkrun á flæðisviði Landspítala og sem aðjunkt við hjúkr-
unarfræðideild Háskóla Íslands. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði
1983 og MS-prófi árið 2003 frá Hjúkrunarfræðideild og árið 2015
diplómanámi í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í opinberum
rekstri við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Ingibjörg Hjaltadóttir, ritstjóri þessarar sérútgáfu um öldrunarhjúkrun, er
hjúkrunarfræðingur og starfar sem sérfræðingur í öldrunarhjúkrun
á flæðisviði Landspítala og sem dósent við Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands. Hún lauk BS-prófi árið 1983 og MS-prófi árið 2001
frá Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og doktorsprófi í heilbrigðis-
vísindum frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 2012.
Sigrún Bjartmarz er sérfræðingur í öldrunarhjúkrun og starfar sem
gæðastjóri á lyflækningasviði Landspítala. Hún lauk BS-prófi í
hjúkrunarfræði árið 1986 og MS-prófi 2006 frá Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands.
HÖFUNDAR GREINA OG RITSTJÓRN