Gríma - 24.10.1932, Page 27

Gríma - 24.10.1932, Page 27
ÞÁTTUR AF JÓHANNESI STERKA 26 arhreppi, þar sem sveitarstjórn kom honum fyrir, en mörg síðustu árin var hann i Hleiðargarði og þar dó hann. Missti hann sjónina og var blindur yfir tuttugu ár. Að kvöldi þess 4. desember 1923 var hann hress og lagðist til hvíldar eins og hann var vanur; en um morguninn, er hans var vitjað, var hann látinn. Bróðir Jóhannesar sterka var Jón, er lengi bjó í Hleiðargarði. Kona hans var Sigriður ólafsdóttir; var ólafur faðir hennar frá Rauðhúsum, kominn af ætt Rauðhúsa-ólafs, sem margt fólk er út af komið. Sonur Jóns er Hannes, sem nú býr í Hleiðargarði og þátt þenna hefur ritað. — Annar bróðir Jóhannesar var Jóhann, er var á ýmsum stöðum í Eyjafirði og Skagafirði. Dóttir hans var Helga, kona Hallgríms í Úlfsstaðakoti í Skagafirði. Þeirra son er Árni, sem nú er ritstjóri »Iðunnar«. Synir Jóhanns hétu Jó- hannes og Sveinn. — Sigríður hét systir Jóhannesar og er hennar getið hér að framan. Átti hún þann mann, er Sigurður hét Sigurðsson. Eru þeirra börn, sem nú eru á lífi: ólína húsfreyja í Árgerði, gift Hannesi Jónssyni bónda og Þórunn, símamær á Sauðárkróki. 3. Frá Hvanndaia-Árna. (Eftir handriti Péturs H. Ásgrímssonar. Sögn Páls Árna- sonar á Siglufirði 1906). Vestan megin Eyjafjarðar, á nesinu milli ólafs- fjarðar og Héðinsfjarðar, er nokkurt graslendi upp frá sjónum. Þar stóð áður bærinn Hvanndalir uppi á

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.