Gríma - 24.10.1932, Side 35

Gríma - 24.10.1932, Side 35
DAUÐI JÓHANNESAR 1 HOFSTAÐASELI 33 fara upp fyrir sig í rúminu, en þegar á leið nóttina, ágerðist ásóknin að Jóhannesi, svo að hvorugum þeirra varð svefns auðið; tók þó prófastur á öllu því, sem hann hafði kunnáttu til, en það kom fyrir ekki. Þann 7. janúar 1851 átti Jóhannes erindi út að Hólum til að hitta prófast. Reið han’n sex vetra hesti valgráum, sem beztur var talinn í Skagafirði. Þegar Jóhannes kom að Hólum, tók prófastur honum tveim höndum og töluðust þeir við alllanga hríð. Degi var tekið að halla, þegar Jóhannes bjóst til heimferðar; hafði hann bragðað lítið af áfengi hjá prófasti; var hainn því dálítið örari en ella og lét ekki telja sig á að gista um nóttina. Reið hann alfaraveg niður Hjaltadal, yfir Hrísháls og segir ekki af ferð- um hans fyrr en hann kom að Ásgeirsbrekku; er það næsti bær við Hofstaðasel, en þó all-löng bæjarleið í milli. Pétur bóndi, sem þá bjó á Ásgeirsbrekku, var við fjárhús að láta inn fé, þegar Jóhannes reið í hlaðið. Bauðst Pétur til að fylgja honum heim og þótt Jóhannes teidi það þarfleysu eina í svo góðu og björtu veðri, varð það samt úr, að hann dokaði við á meðan Pétur lauk við að hýsa féð. Síðan iögðu þeir af stað saman til Hofstaðasels. Veður var hið bezta og óð tungl í skýjum. Jörð var snjólaus, en svell- runnin víða, svo að færi var hið æskilegasta. Var Jó- hannes skemmtinn eftir venju og töluðu þeir um alia heima og geima. Þegar ekki var eftir nema svo sem þriðjungur leiðar heim að Hofstaðaseli, sagði Jó- hannes, að nú væri sér alveg óhætt úr þessu, enda langaði sig til að lofa Val að þrífa dálítið til fótanna á rennsléttu svellinu heim að bænum. Pétur kaus helzt að fylgja honum alla leið, en bað hann þó að Qrlma VII. 3

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.