Gríma - 24.10.1932, Side 37

Gríma - 24.10.1932, Side 37
DAUÐI JÓHANNESAR I HOFSTAÐASELI 35 hart út að Ásgeirsbrekku. Gekk hún rakleitt til bað- stofu og féll grátandi fram á rúmstokk manns síns. Hann gat ekki annað lífsmark gefið en að strjúka ofurhægt og blíðlega um hár hennar og vanga; horfði hann svo á hana stöðugt, þar til er hann and- aðist í dögun morguninn eftir. Jóhannes og Inga áttu tvö börn, Ingibjörgu og Jón. Giftist Ingibjörg að Kroppi í Eyjafirði og fór Jón bróðir hennar með henni þangað norður. Nokkru eftir 1870 fluttust þau til Ameríku. — Inga giftist aftur séra Arngrími Halldórssyni, sem var prestur á Bægisá 1843—1863. Var Inga þriðja kona séra Arngríms, og varð þeim nokkurra barna auðið. 6. Frá Jáni á VaBhrekku. (Eftir handriti Áma Jóhannssonar gjaldkera á Akureyri. Sögn Sölva bónda Magnússonar í Kaupangi, 1906). Svo er sagt, að Hrafnkelsdalur eystra færi allur í eyði í svartadauða 1402. Þrjú hundruð árum síðar, í byrjun átjándu aldar, tók sig upp maður sá af Fljótsdalshéraði, er Guðmundur hét, og byggði upp á Aðalbóli. Þangað flutti með Guðmundi annar mað- ur, er Andrés hét og var Erlendsson. Var hann fyrst nokkur ár með Guðmundi, en byggði síðan upp bæ- inn á Vaðbrekku og byrjaði þar búskap. Bjó hann þar lengi síðan og andaðist þar í hárri elli. Sonur Andrésar hét Jón, og tók hann við búi eftir föður sinn í Vaðbrekku. Hann var í æsku fjörmað- 3* I

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.