Gríma - 24.10.1932, Síða 40
38
SAGAN AF GRINDAVÍKUR-ODDI
7.
Sagan af Grindavíkur-Oddi.
(Eftir gömlu handriti).
í Huld IV. er saga af Hafliða bónda í Grindavík. Svipar
sögum þessum mjög saman, en þó eru þær að ýmsu leyti frá-i
brugðnar hvor annari og þar eð Huld er í fárra manna hönd-
um, er saga þessi tekin sjálfstæð.
Hafliði hét maður; hann bjó í Grindavík suður og
var gildur bóndi. Kona hans hét Sigríður; var hún
kvenna mest og skörungur mikill. Son áttu þau, er
Oddur hét. óx hann upp með föður sínum og var
mjög bráðþroska; meiri var hann og sterkari en
jafnaldrar hans. — Hafliði bóndi átti skip gott; var
það áttæringur, sem hann hélt til fiskveiða og stýrði
sjálfur. — Saga þessi gerðist um það leyti, sem kom-
in var á verzlunareinokun í landi hér. Máttu bænd-
ur þá eigi kaupa svo lítið sem færi eða öngul af öðr-
um þjóðum en Dönum einum fyrir ríki konungs; en
ef einhver varð uppvís að verzlun við aðra, varðaði
brotið búslóðarmissi og kaghýðingu. Var þó oft rek-
in töluverð launverzlun við útlend skip með strönd-
um fram, því að Danir urðu oft og einatt uppi-
skroppa með algengustu nauðsynjavöru.
Nú óx Oddur upp með föður sínum, svo sem fyrr
er ritað. Þegar hann var tvítugur að aldri, hafði
hann góðan þroska, en mest var hann vanur sjó-
mennsku sem faðir hans. Um það leyti gekk hann að
eiga konu þá, er Guðrún hét; var hún væn kona af
góðri bændaætt. Byggði faðir hans honum þá hálfa
jörðina á móti sér. Var baðstofan tvískift, þannig að
hvor feðganna bjó í sínum enda hennar.