Gríma - 24.10.1932, Side 42
40
SAGAN AF GRINDAVÍKUR-ODDI
einn af hásetum Hafliða tekinn og lagður niður við
bútinn. Sté skipverji eggjárninu á háls honum og
tók þegar af höfuðið, en búknum var varpað út af
borðstokknum. Voru þeir félagar teknir þannig
hver af öðrum og afhöfðaðir og að lokum hlaut Haf-
liði bóndi sömu afdrif. Þegar Oddur sá föður sinn
drepinn, komáhann berserksgangur, greip hann fork
einn mikinn, er þar lá, og fór að berja á skipverjum;
hrukku þeir undan í fyrstu, en svo sóttu þeir að
honum í ákafa og svo lauk þeirra viðureign eftir
langa stund, að Oddur féll af mæði og lá í ómegni
eftir á þilfarinu. Vissi hann ekki af sér um hríð, en
þegar hann kom til sjálfs sín aftur, var hann stadd-
ur aftur á lyftingu og stóðu tveir skipverjar yfir hon-
um með vopnum, en ekki gerðu þeir til hans. Náði
Oddur sér bráðlega, en ekki þorði hann sig að
hreyfa; var hann þá tekinn og bundinn rammlega
og skilinn eftir aleinn til næsta morguns. Þá færði
lítill drengur honum mat og drykk; en það sem eftir
var dags lá Oddur án þess að nokkur kæmi til hans.
Þegar liðið var á nótt, kom maður inn til hans; sá
hafði skriðljós í hendi, og kenndi Oddur þar hinn
sama mann, sem vegið hafði föður hans og félaga.
Hann hvessti augun á Odd, en Oddur lét sér hvergi
bregða og horfði í móti svo sem ekkert væri. Þegar
þeir höfðu horfzt þannig í augu um hríð, leysti mað-
ur þessi böndin af höndum Odds, en fætur hans voru
bundnir sem áður. Síðan gekk maðurinn burt, en
kom aftur að vörmu spori með kjöt á fati og jurta-
rætur, benti Oddi að matast og tók hann því boði.
Síðan bar hann Oddi drykkjarhom mikið og gaf
honum að drekka. Eftir það lagðist hann út af við
hlið Odds og sváfu þeir þannig af til morguns. Bar