Gríma - 24.10.1932, Page 60
58
HULDUSTÚLKA KALLAR Á PERJU
stúlka, ung og fögur. Kveður hún Helgu vel og blíð-
lega og þakkar henni með mörgum fögrum orðum
fyrir það, að hún hafi ferjað sig yfir fljótið daginn
áður því að í ferjunni hafi hún verið, þó að Helga
srei hana ekki. »Eg er huldukona«, mælti hún, »og
á heima í Grásteini, sem er austur á Fljótsheiði, en
nú er eg í heimboði hjá frændfólki mínu í Sexhóla-
gili. — Skilja nú leiðir okkar og far þú heil og vel«.
Þá hvarf huldukonan og sá Helga hana aldrei
framar.
18.
LjúflingS'Bjarni.
(Eftir handriti Baldvins Jónatanssonar).
Bjarni er maður nefndur. Hann átti lengi heima á
Kálfborgará í Bárðardal. Bjarni var fríður maður
sýnum, gáfaður vel og þótti hið mesta mannsefni.
Svo bar við einn dag að sumarlagi, að hann fór að
heiman til þess að ganga við fé á Fljótsheiðinni;
vissu menn það síðast til hans, að hann var kominn
upp á Kálfborgarárdal, sem þar er í heiðinni, en eftir
það vissu menn ekkert, hvað af honum hafði orðið.
Leið svo allt sumarið og fram á haust, að ekki kom
Bjarni aftur. Á Kálfborgarárdal er dálítið fjall, sem
gnæfir yfir öll fell og ása í nágrenninu; er þaðan út-
sýni fagurt yfir heiðar og dali, og sést þaðan alla
leið út á Skjálfanda. Fjall þetta heitir Kálfborg og
ber nafn af kálfum tveim, sem gengu þar af árlangt
i fornöld; þá átti Arndís húsfreyja, sem fyrst byggði
á Arndísarstöðum. Eru góðir landkostir í kringum
borgina; eru björg og klettar sunnan í henni, en rétt