Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 10

Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 10
8 SAGNIR UM SÉRA MAGNÚS Á TJÖRN [Gríma gjörði dóttur sinni óvirðing með þessu háttalagi sínu. Kom það fyrir alls ekki, en sakir forneskju Finns, þá þorði bóndi ekki að beita við bann hörðu eða reka hann burtu. Þá var prestur sá í Stærra-Árskógi, er Egill hét.1) [Kona hans hét Valgerður.] Fór nú bóndi til hans og bað hann hlutast til um vandræði sín; kvað sér illt þykja, að dóttir sín fengi óorð af Finni og þar á ofan ólán. Skömmu síðar orðar prestur þetta við Finn og biður hann að hverfa frá þessu óráði, að leggja lag sitt við bóndadóttur. Finnur gegndi fáu um, en gjörði ekki að. — Þá var um veturnætur, er hér var komið sögunni. Gjörði þá hríðarkast um tíma og ógæftir, og fór Finnur þá heim til sín. Með jólaföstu gjörði aftur liina beztu tíð, og tóku menn þá aftur til róðranna, og fór þá Finnur aftur inn að Selá og hefur nú aldrei gjört sig jafnberan að áleitninni við bóndadóttur og fjandskap við bónda, föður hennar, sem nú. Bóndi fór þá til prests aftur og bað hann tala um við Finn,—„þótt upp á lítið komi,“ sagði hann. Hét prestur góðu um það. Skömmu síðar hitti prestur Finn að máli og ámálg- aði við hann, að hætta áleitni sinni við dóttur bónda, og hafði heldur þung orð við hann unr þrályndi hans. Sagði hann að skilnaði, að svo mundi hann nefna þetta við hann í þriðja sinn, að þá mundi ekki svo búið standa, og lýsti á þykkju sinni fullkominni, ef hann gjörði ekki að. Finnur reiddist við prest fyrir vandlæt- ingar lrans, en var þó orðfár; þó kvað hann að verið gæti, að prest mundi iðra þess, að liafa gefið sig inn í málefni þetta fyrir bónda. ’) Egill Þórarinsson var prestur í Stærra-Árskógi 1776—1784 og virðist hafa dáið þar 1784, 41 árs gamall. — J. Jóh.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Gríma

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.