Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 45

Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 45
Gríma] SNJÓFLÓÐIN í HVANNEYRARHREPPI 43 Eg gekk svo út eftir austan á Eyrinni, og voru bryggjur og söltunarpallar alls staðar meira og minna brotnir. Við hornið á sjóhúsi O. Henriksens lá snjó- kökkur á stærð við vænan heybagga, sem flóðbylgjan hafði kastað upp yfir um 50 metra breiða söltunar- palla. Eg stóð þarna um stund til að vita, hvort ekki rofaði svo, að eg sæi yfir um fjörðinn. — Einu sinni rofaði það til, að eg sá yfir til verksmiðjunnar eða þangað, sem hún hafði staðið, og sá eg, að hún var horfin. Eg gat þá líka getið mér til, að hin húsin hefðu einnig farið, og þar með fólkið, en þó sýndist mér standa eitt húsanna eftir norður við Rjómalækinn. Það reyndist síðar rétt, en það hús var mannlaust. Suður eftir sá eg svo óglöggt, að eg gat ekki greint, hvort Neðri-Skúta sæist eða ekki, né heldur bær Bene- dikts niðri á bakkanum, en lágt bar á þessum bæjum báðum, enda mátti ætla, að enn lægra bæri á þeim nú, vegna fannfergjunnar. Eg fór að þessu búnu heim í skrifstofuna, en gat ekki um, að eg hefði séð að verksmiðjan var farin, nema eg sagði frú Indíönu Tynes frá því í einrúmi. — Eg hafði verið litla stund heima, þegar Guðmundur Skarphéðinsson kom inn til okkar og með honum þeir Sveinn Hjartarson og Sveinn Gíslason. Þeir höfðu orð- ið skjótastir heim aftur í ófærðinni. — Guðmundur kallaði á mig fram í forstofuna og sagði mér, að verk- smiðjan með öllu hefði sópazt burt; eftir stæði aðeins nyrzta húsið mannlaust; svo væru og síldarhús Olav Evangers, sem stóðu nokkru sunnar með sjónum, öll farin ásamt bryggjum og söltunarpöllum. „En hvað er um Neðri-Skútu og Bensabæinn?“ spurði eg. — „Allt farið,“ gat Guðmundur aðeins stunið upp. — Svo bað hann mig að koma með sér til hreppstjórans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Gríma

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.