Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 77

Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 77
Gríma] SAGNIR GÍSLA ÓLAFSSONAR 75 ig borga honum aksturinn, en bílstjórinn vildi ekki taka við greiðslu. — „Hvert á eg nú að aka þér?“ spurði hann mig, eftir að Ásta hafði kvatt okkur. Eg gaf hon- um upp heimilisfang mitt, en það var uppi á Njarðar- götu. — „Eg er ekki viss um, að eg muni nú, hvar þetta er,“ sagði bílstjórinn. Hann virtist hugsa sig um and- artak og sagði svo: „Jú, nú man eg, hvar það er,“ — og síðan ók hann af stað upp eftir, en hann staðnæmdist lítið eitt neðar í götunni en eg átti heima. „Er það ekki hér, sem þú býrð?“ sagði hann. Eg sagði honum, að eg ætti heima tveimur húsum innar í götunni, og benti honum á húsið. Það var líkt og hann hikaði of- urlítið, og svo sagði hann: „Eg var bara að athuga, hvort eg gæti snúið við hérna, en eg ek bara niður á næstu götu“. — Svo ók hann heim að bústað mínum. Eg tók upp peninga og ætlaði að greiða honum fyrir aksturinn, en hann vildi ekki taka við borgun. Eg kvaddi hann svo og þakkaði fyrir aksturinn, og hann ók burtu og hvarf mér út í næturmyrkrið. — Það var orðið það áliðið kvöldsins, að fólkið í hús- inu var háttað. Enn rigndi óhemju mikið, og storm- urinn geisaði um auðar göturnar. Eg flýtti mér inn, klæddi mig úr kápunni í forstofunni, hengdi hana á snaga og lét þar eftir skóhlífarnar. Svo fór eg upp í herbergi mitt og háttaði. Eg sofnaði strax og svaf vært til morguns. Um morguninn, þegar eg var kominn á fætur, hitti eg húsráðanda. Hann fór að spauga við mig, eins og hann gerði oft, um það, að það væri fallegt lag á mér, að koma ekki heim fyrr en komið væri fram á nótt, — „eða varstu nú með einhverri stúlkunni í gærkveldi?" — „Já,“ svaraði eg, „og heldur með tveimur en einni.“ — „Varstu ekki votur, önnur eins ósköp og rigndi í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Gríma

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.