Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 66

Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 66
64 SAGNIR GÍSLA ÓLAFSSONAR [Grima arlegt, en er þó Ingibjörg enn efst í huga og segi til hennar aftur: „Nú, þú heldur þó víst ekki, að þú ger- ir mig hræddan, Imba?“ — en svo var eg oft vanur að nefna Ingibjörgu. Var hún kát, og áttum við stundum í glettum. Ekki anzar stúlkan, en hún færir sig nú í áttina að rúminu, þar sem kona mín og barnið sváfu vært. Nú sé eg, að þetta er ekki Ingibjörg eða nein af heimastúlkunum, heldur stúlka, sem eg hef aldrei fyrr augum litið. Var stúlka þessi smávaxin, svona á stærð við 12—15 ára telpu. Andlitið var einnig unglegt eins og á unglingsstúlku og toginleitt, með nef stórt og bog- ið. Augun voru ljósgrá, óvenju stór og starandi, en þó deyfðarleg, og í augnaráðinu eitthvað óviðfelldið, ekki ósvipað því, að augun væru hálfbrostin. Annars var andlitssvipurinn fremur meinleysislegur. Stúlka þessi var í mórauðum pilsgopa og að ofan í treyju eða ein- hvers konar mussu í líkum lit. Yfir höfðinu hafði hún ullar-þríhyrnu, og huldi hún hárið. Gekk hyrnan nið- ur á herðarnar og var bundin á ská yfir öxlina, og endarnir hnýttir undir annarri hendinni. Stúlka þessi stóð kyrr um stund í skotinu hjá ofninum og starði á mig, og fannst mér sem einhver ónot færu um mig undan augnaráði hennar. Hún hafði alltaf haldið vinstri hendinni fyrir aftan bakið, en þegar hún stóð þarna í skotinu, brá hún hendinni allt í einu á loft, og hlikaði þá á sveðju mikla; sýndist mér hún stefna henni á barnið, sem svaf í rúminu hjá okkur hjónun- um. Mér fannst nú nóg um, svo að eg snaraðist fram úr rúminu og að stúlkunni. Hörfaði hún undan mér og fram í ganginn, en eg elti hana. Fi'ammi í gangin- um var dimmt, og rak eg mig á fremri hurðina, en hún reyndist lokuð. Var þá og stúlkukind þessi horfin, en ekki heyrði eg, að hún opnaði eða gengi um hurðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Gríma

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.