Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017 Fjáreigendafélag Húsavíkur stóð fyrir hrútasýningu á Mærudögum sem er bæjarhátíð sem haldin er árlega á Húsavík í lok júlí. Hrúturinn Krubbur frá Fjárræktarbúinu Grobbholti á Húsavík sigraði með miklum yfirburðum. Í máli dómaranna kom fram að Krubbur væri sérstaklega holdmikill hrútur með einstaklega góð læri, malir, hrygg og frampart. Tveir áhorfendur voru valdir til að velja þann hrút sem skartaði fallegasta pungnum. Áslaug Guðmundsdóttir og Hróðný Lund voru kallaðar upp og eftir ítarlega skoðun völdu þær hrútinn Ask með besta undirvöxtinn. Alls voru sýndir sjö fallegir hrútar og voru tveir þekktir sauðfjárbændur úr Suður-Þingeyjarsýslu fengnir til að dæma keppnina, þeir Sigurður Ágúst Þórarinsson úr Skarðaborg og Guðmundur Ágúst Jónsson úr Fagraneskoti. Sveitarstjóri Norðurþings, Kristján Þór Magnússon, sá svo um að lýsa því sem fram fór. Í lok keppninnar fengu eigendur Krubbs bikar í verðlaun. Það var ungur, áhugasamur bóndi, Baldur Freyr Skarphéðinsson, sem tók við verðlaunum fyrir hönd Grobbholts. Karlakórinn Hreimur kom einnig fram á hrútasýningunni og sungu nokkur lög, auk þess sem konur úr handverkshópnum Kaðlín sýndu handverk, það er íslenskar lopapeysur. /VH Hrútaþukl á Húsavík: Krubbur sigraði en Askur með besta undirvöxtinn – Fjáreigendafélag Húsavíkur stóð fyrir hrútasýningu á Mærudögum á Húsavík í lok júlí MÆLT AF MUNNI FRAM E kki verður með öllu skilið við hagyrðingana sem sátu sextugsafmæli Jóhannesar á Gunnarsstöðum í þessum þætti. En þó er hyggilegt að hætta bráðlega enda líður orðið óðum að sjötugsafmæli Jóa. Eitt yrkisefnanna sem Birgir Sveinbjörnsson lagði fyrir var svofellt: „Ef þið væruð nauðbeygðir til vikudvalar með Jóhannesi, hvar mynduð þið þá hugsanlega drepa niður?“ Hjálmar Freysteinsson var fyrstur til andsvara: Að semja um staðinn varla vandi yrði, en varast skyldi hreppapólitík. Fallegast er þó í Þistilfirði þar sem ekki sér í Krossavík. Til skýringa vísu Hjálmars má geta þess, að Birgir stjórnandi og kona hans Rósa eiga sér sumarhús í Krossavík við Þistilfjörð. Björn Ingólfsson var ekki í vafa um staðarvalið: Helst á sínum heimabæ hafa vildi ég snáða í fjárhúsunum um miðjan maí mætti ég fá að ráða. Ágúst í Sauðanesi taldi sér enga nauð að dvelja samfellt í viku með Jóhannesi, en ef svo ólíklega færi, þá óttaðist hann einn stað öðrum frekar: Fari að lýjast líkaminn á lífsins áratogi, báðir leggjumst við eflaust inn í afeitrun á Vogi. Óskastað og stund með Jóhannesi veittist Pétri vandalaust að velja: Jafnan finnst mér Jói bestur sem játað núna skal, við kveðskap, drykkju og kvæðalestur í kofa á Hávarsdal. Friðrik Steingrímsson sér staðinn svona: Víst ég þyldi vikudvöl vítt um byggðir dreifðar þar sem þryti aldrei öl og yrkingar væru leyfðar. Þegar hér er komið þessum kveðskap frá sextugsafmæli Jóhannesar, þá finnst mér sem nóg sé kveðið. Það er ekki síst fyrir það, að Jóhannes sjálfur hringdi í mig í gær, og hafði þá samið til mín svofellda stöku: Þó að Árna geri gys og gaman sé að hrekkj‘ann, minnir orðið meira á slys að maður skuli þekkj‘ann. Því er sjálfhætt og rétt að kynna nýjan liðsmann til sögunnar. Sá heitir Gunnar Thorsteinsson, og semur jafnan undir skáldanafninu Gunnar Veltan. Gunnar hefur gefið út a.m.k. eina ljóðabók. Gunnar bjó um tíma á Arnarstöðum í Eyjafirði, en er nú búsettur í Kópavogi. Gunnar kann vel til kveðskapar, og mun sjást til afurða hans hér í næstu þáttum. Gunnar sendi nýverið eina sléttubandavísu: Sléttubanda tökum tryggð, tryggjum landans vöku. Réttu á standi braga byggð byggjum andans stöku. Og svo kemur þessi hringhenda: Sléttubanda bragaháttur bætir andans þrá. Hér að vanda happadráttur henni ei granda má. Sem sannur sveitamaður fylgist Gunnar vel með Evrópusambandinu og gælum sumra stjórnmálamanna íslenskra við þann félagsskap: Þingheims eru þekktar slóðir, þar eru engar breytingar. Elta sífellt aðrar þjóðir eins og blindir kettlingar. 185 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Guðmundur Jónsson, Sigurður Ágúst Þórarinsson, Trausti Aðalsteinsson og Aðalsteinn Á. Baldursson. Myndir / Úr einkasafni LÍF&STARF Áslaug Guðmundsdóttir og Hróðný Lund. Krubbur frá Grobbholti. Karlakórlinn Hreimur undir stjórn Steinþórs Þráinssonar. Baldur Skarphéðinsson hampar bikar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.