Bændablaðið - 07.09.2017, Page 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Fararstjóri: Laufey Helgadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Jólaferð til Parísar
Dásamleg jólaferð til Parísar, höfuðborgar Frakklands og
einnar glæsilegustu borgar Evrópu. Töfrandi ljósadýrðin
og hin mikla hátíðarstemning um alla borg skapar
einstaka upplifun í upphafi aðventunnar. Skoðum öll helstu
kennileiti borgarinnar í heils dags skoðunarferð, en njótum
þess einnig að rölta um á eigin vegum.
Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mikið innifalið!
sp
ör
e
hf
.
23. - 26. nóvember
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Skothlífar
í veiðina
Skothlífar með umhverfishljóðnema
fyrir veiðimanninn, henta vel til að
liggja upp að byssu skeftinu.
Möguleiki á tengingu fyrir mp3.
Verð: 24.775 kr.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Dagur íslenskrar náttúru 16. september
Dagur íslenskrar náttúru verður
haldinn að venju þann 16.
september næstkomandi og er þetta
í sjöunda sinn sem íslenskri náttúru
er fagnað á þessum degi.
Hefð er fyrir því að stofnanir,
félagasamtök, sveitarfélög, skólar,
fyrirtæki og einstaklingar hafi daginn
í huga í sinni starfsemi. Þeir sem nýta
samfélagsmiðla til að vekja athygli á
íslenskri náttúru og eða viðburðum
tengdum deginum eru minntir á
myllumerkin #íslensknáttúra og
#DÍN, sem stendur fyrir Dag íslenskrar
náttúru.
Daginn ber upp á laugardegi
og má búast við að hluti dagskrár
fari fram dagana á undan eða eftir
16. september. Umhverfis- og
auðlindaráðherra mun afhenda
Fjölmiðlaverðlaun ráðuneytisins
og Náttúruverndarviðurkenningu
Sigríðar í Brattholti föstudaginn 15.
september.
Senda má upplýsingar um við-
burði, verkefni og uppákomur sem
efnt er til í tilefni dagsins til umhverf-
is- og auðlindaráðuneytisins á netfang-
ið bergthora.njala@uar.is. Verða þær
þá birtar á vefsvæði Dags íslenskrar
náttúru á vef stjórnarráðsins sem er á
slóðinni www.stjornarradid.is/din.
/VH