Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Þreytuna burt
MF5712SL einbeittur harðjaxl í alla ámoksturstækjavinnu.
Lágnefja með einstöku útsýni og mikilli lipurð tryggir ánægjulegan vinnudag og vellíðan.
Upptalning er aðeins hluti þess sem í vélunum er, hafið samband við sölumann til að fá nánari upplýsingar.
Með ámoksturstækjum
Helsti búnaður, Essential: Helsti búnaður, Efficient:
Verð frá
9.190.000
Massey Ferguson 5712 SL
Vélarnar eru ríkulega útbúnar og mikið hugað að þægindum ökumanns með
þann tilgang í huga að ökumaður sé nánast óþreyttur eftir langan vinnudag.
• FASTEIGNASALA NORÐURLANDS • Sala - verðmat - þjónusta •
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON
löggiltur fasteigna- og skipasali662 4704 fastnord.isgummi@fastnord.is
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Ekki lengur
heimavist
Fjölbrautaskóli Suðurlands á
Selfossi hefur verið með heimavist
fyrir þá nemendur sem þess óska
síðustu ár en nú bregður svo við
að skólinn er ekki með neina
heimavist á sínum snærum.
Þessu mótmælir stjórn Samtaka
sunnlenskra sveitarfélega (SASS)
sem skorar á ráðherra mennta- og
menningarmála að fundin verði lausn
á því ófremdarástandi sem ríkir í
aðgengi nemenda að framhaldsnámi
á Suðurlandi. „Upptökusvæði fram-
haldsskóla á Suðurlandi er dreift og
eins og staðan er nú býr hluti ung-
menna á framhaldsskólaaldri við það
að eiga ekki möguleika á því að nýta
almenningssamgöngur til að stunda
nám við framhaldsskóla á svæðinu
og ekki er boðið upp á heimavist við
framhaldsskóla á Suðurlandi nema
einungis á Laugarvatni. Nauðsynlegt
er að ríkið ráðist í viðeigandi
úrbætur þannig að nemendur hafi
aðgang að heimavist við alla skóla á
Suðurlandi, enda mikilvægt að allir
framhaldsskólanemendur á Íslandi
hafi jafnt aðgengi að námi“, segir í
bókun stjórnar SASS um málið.
/MHH
Fjölbrautaskóli Suðurlands. Þeir
nemendur sem stunda nám við
Fjölbrautaskóla Suðurlands og búa
útvega sér leiguhúsnæði á Selfossi
eða næsta nágrenni með tilheyrandi
kostnaði. Mynd / MHH
Hestar nýta
gangbraut
Það er engu líkara en að hest-
arnir sem sluppu nýlega út úr
hestagerði á Selfossi hafi farið í
umferðarskóla.
Athygli vakti að þegar þeir voru
að rölta yfir í eitt af hverfunum
nálægt hesthúsahverfinu fóru þeir
yfir gangbrautina á hraðahindrun
eins og löghlýðnir „borgarar“.
Hestarnir voru þó ekki frjáls-
ir mjög lengi því þeim var smalað
fljótlega saman og reknir aftur inn
í hestagerðið. /MHH
Hestar á gangbraut. Mynd / MHH