Bændablaðið - 07.09.2017, Qupperneq 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Mataráfangastaður – Færeyjar – Heimablídni:
Ferðamönnum boðið til stofu
Færeyingar unnu í flokk-
unum „Mataráfangastaður
Norðurlandanna 2017“ og
öttu m.a. kappi við sjálfa
Kaupmannahöfn. Siglufjörður
var tilnefndur af hálfu Íslands
og ríkti talsverð forvitni um þá
uppbyggingu sem þar hefur átt
sér stað.
Verkefni Færeyinga, Heimablídni,
sem þýðir gestrisni, er samstarfsverk-
efni ferðamálayfirvalda, iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytis og yfirvalda
matvæla og dýra og hefur verið
starfrækt í 7 ár. Tilgangurinn var
að bregðast við aukinni kröfu um
staðbundna matar- og afþreyingar-
upplifun á svæðum þar sem enga
eða fáa veitingastaði er að finna.
Heimamenn sem vilja taka þátt verða
aðilar að Heimablídni og fylgja þeim
kröfum sem því fylgir.
Boðið er upp á heimatilbúinn
mat, allt frá kaffisamsæti til fimm
rétta máltíðar með vínveitingum.
Aðildarfélagar þurfa ekki vín-
veitingaleyfi en verða að gera
gestum sínum ljóst að maturinn sé
heimatilbúinn og því ekki hægt að
tryggja almennar hreinlætiskröfur
sem veitingastöðum er gert að upp-
fylla.
Álandseyjar hrepptu Emblu-
verðlaun í flokknum kynn-
ingarherferð/matarblaðamennska
fyrir verkefnið Smakbyn.
Smakbyn byrjaði árið 2012 og
hefur þróast í lítið samfélag sem
hverfist um árstíðarbundna fram-
leiðslu, matargleði og innblástur. Í
Smakbyn er veitingastaður, brugg-
hús, verslanir með vörur beint frá
býli og ráðstefnuhús. Einnig er boðið
upp á matreiðslunámskeið og smakk.
Hugmyndasmiðurinn Michael
„Micke“ Björklund vinnur sem ötull
talsmaður norrænnar matargerðar
sem byggir á staðbundinni fram-
leiðslu og neyslu. Hann er þekktur
sem sjónvarpskokkur í Finnlandi
og Svíþjóð og hefur skrifað fjölda
matreiðslubóka um staðbundna mat-
argerð og matvælaframleiðslu.
Kynningarherferð / Matarblaðamennska
Álandseyjar – Michael Björklund, Smakbyn:
Miðla og fræða um
matarmenningu
Íslenski Embluhópurinn á tröppum ráðhússins í Kaupmannahöfn þar sem verðlaunaafhendingin fór fram. Tilnefndir frá
Íslandi voru Friðheimar, Eldum rétt, Vakandi, Pure Natura, Saltverk, Icelandic Lamb og Siglufjörður. Mynd / Jórunn Einarsdóttir.
Michael Björklund.
Í Færeyjum hefur reglugerðum verið
breytt svo hægt sé að selja mat í
heimahúsum. Mynd / Ingrid Hofstra
Finninn Thomas Snellman er bóndi
sem var orðinn þreyttur á því að
fá lágt verð fyrir sínar framleiðslu-
vörur. Hann setti upp söluhóp
á Facebook árið 2013 sem bauð
neytendum að hafa milliliðalaus
viðskipti við bændur og kallaði
hópinn REKO.
Á REKO-síðunum setja bændur
eða smáframleiðendur inn upplýsingar
um vörurnar sem þeir bjóða upp á.
Þeir auglýsa afhendingarstað þar
sem kaupendur sækja og greiða fyrir
vöruna.
Hugmyndin var fljót að vinda upp á
sig og REKO-hópum fjölgaði ört. Þeir
eru nú um 180 talsins og um 300 þús-
und Finnar nýta sér þetta tengslanet til
þess að kaupa vörur beint af bændum.
Matarfrumkvöðull
Finnland – Thomas Snellman – REKO:
Milliliðalaus viðskipti með
búvörur á Facebook
Thomas Snellman.