Bændablaðið - 07.09.2017, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
UTAN ÚR HEIMI
Rússneskt gasflutningaskip varð í
síðasta mánuði fyrsta flutninga-
skipið til að sigla frá Evrópu
til Asíu um norðausturleiðina
(Northern Sea Route – NSR) án
aðstoðar ísbrjóts og það á met-
tíma.
Skipið, sem heitir Christophe de
Margerie, er í eigu rússneska félags-
ins PAO Sovcomflot (SFC Group),
lagði upp frá Noregi 4. ágúst full-
lestað gasi í Hammerfest í Noregi
og sigldi um íshafið til Boryeong í
Suður-Kóreu á aðeins 19 dögum.
Siglingin um sjálfa Norðurleiðina
eins og hún er skilgreind norður
af Síberíu tók aðeins 6 daga, 12
klukkustundir og 15 mínútur. Það er
siglingaleiðin frá Zhelaniya-höfða á
Novaya Zemlya til Dezhnev-höfða
á Chukotka sem er austasti hluti
Rússlands. Þetta eru 2.193 sjómílur
eða 4.060 kílómetrar.
Meðalsiglingahraði skipsins var
14 sjómílur á klukkustund þrátt fyrir
þá staðreynd að á hluta leiðarinn-
ar þurfti skipið að brjóta sér leið í
gegnum 1,2 metra þykkan ís.
Ferð skipsins var farin á um 30%
styttri tíma en það hefði tekið skipið
að sigla hefðbundna leið í gegn-
um Miðjarðarhaf, Súesskurð, yfir
Indlandshaf og Norður-Kyrrahaf að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu skipafélagsins.
80 þúsund tonn og sérstyrkt til
siglinga í ís
Christophe de Margerie er um margt
merkilegt skip. Það er rúmlega 80
þúsund tonn (D.W.T) að stærð og
sérstyrkt til siglinga í ís. Það er í
raun hálfgerður ísbrjótur sem siglir
undir fána Kýpur.
Skipið var smíðað hjá Daewoo
Shipbuilding Marine Engineering
(DSME) á Geoje-eyju í Suður-
Kóreu og afhent í mars 2017.
Skipið er 299 metrar að lengd,
50 metrar að breidd og dýpt þess
er 26,5 metrar. Mesti siglingarhraði
skipsins er 19,5 sjómílur.
Það var sérstaklega smíðað fyrir
Sovcomflot til að sinna svokölluðu
Yamal LNG verkefni sem snýst um
að sinna flutningum um Karahaf
og Ob-flóa allt árið um kring.
Skipið var afhent eigendum sínum
27. mars 2017 eftir vel heppnaða
tilraunasiglingu um Karahaf og
Laptevhaf. Skipið á að geta siglt
í gegnum allt að 2,1 metra þykkan
ís og er flokkað sem Arc7 skip,
sem er hæsti staðall sem til er fyrir
flutningaskip. Afl skipsins mælist
45 megawött sem er sambærilegt
og í nútíma kjarnorkuknúnum
ísbrjótum.
Búið einstökum finnskum
skrúfubúnaði
Skipið er búið þrem Azipod-
skrúfum sem hannaðar eru af
ABB í Finnlandi og hægt að snúa
um 360 gráður. Þessar skrúfur
gefa skipstjórnanda möguleika á
að bakka á fullri ferð í ísstálið og
virka skrúfurnar þá sem eins konar
hakkavélar við að mala ísinn sem
brotnar undan þunga skipsins.
Eigandi skipsins, PAO
Sovcomflot, eða SFC Group,
sem stendur fyrir „öryggið fyrst
og fremst“, eða „Safety Comes
First“, er eitt af leiðandi skipafé-
lögum heimsins. Það sérhæfir sig
í flutningum á hráolíu og öðrum
olíuvörum eins og gasi. Einnig
sinnir félagið þjónustu við olíu- og
gasverkefni á úthafinu.
Floti fyrirtækisins samanstendur
af 150 skipum með flutningsgetu
upp á 13,1 milljón tonna, sam-
kvæmt heimasíðu félagsins. Þar af
eru 124 tankskip, 13 gasflutninga-
skip (LNG), 11 sérverkefnaskip og
2 þurrvöruflutningaskip. Skipin eru
flest í fullri eigu félagsins en tvö eru
í kaupleigu.
Sovomflot er skrásett í
Pétursborg í Rússlandi og er með
skrifstofur í Moskvu, Novorossiysk,
Murmansk, Vladivostok, Yuzhno-
Sakhalinsk, London, Limassol og
Dubai. /HKr.
Rússneska gasflutningaskipið Christophe de Margerie:
Fyrsta flutningaskipið sem siglir án aðstoðar
ísbrjóts um norðausturleiðina
– Sigldi á mettíma frá Hammerfest í Noregi til Boryeong í Suður-Kóreu
Verndun létt af svæði í Amazon
sem er stærra en Danmörk
Yfirvöld í Brasílíu hafa aflétt
vernd af regnskógum Amazon af
svði sem er stærra en Danmörk.
Er þetta gert til að verða við
óskum námafélaga, m.a. vegna
leitar gulli.
Umrætt svæði er 46 þúsund
ferkílómetrar að stærð, en til
samanburðar er Danmörk 43.094
ferkílómetrar, að því fram kemur
í frétt BBC. Verndarafléttingin,
sem Michel Temer forseti Brasilíu
hefur lagt blessun sína yfir vegna
málmleitar, er verndarsvæði sem
stofnað var 1984 og er nefnt National
Reserve of Copper and Associates
(Renca).
Brasilíski þingmaðurinn
Randolfe Rodrigues segir þetta
mestu árás á Amazon svæðið í 50 ár.
Maurício Voivodic yfirmaður World
Wildlife Fund (WWF) segir að þetta
muni leiða til sprengingar í eyðingu
regnskógarins. /HKr.
Loftslagsaðgerðir í Kína:
Stærsta fljótandi
sólarorkuver heims
Það gefur vísbendingar um
að heimurinn fari batnandi
þegar fréttir berast frá Kína
um að sólarorkuver hafi risið á
grunni gamallar kolanámu, eða
öllu heldur að það fljóti ofan á
námunni.
Risastór 40 megawatta fljótandi
sólarver var ræst um miðjan ágúst
við borgina Huainan í austurhluta
Kína. Verið flýtur á yfirborði stöðu-
vatns sem myndaðist þegar stórri
kolanámu, sem hætt var að þjóna
tilgangi sínum, var drekkt. Í stað
þess að láta námuna standa þar auða
ákváðu borgaryfirvöld að nýta land-
svæðið til að afla frekari orku.
Kostir fljótandi sólarorkuvera
munu vera margþættir. Þau leggja
ekki undir sig landsvæði, sem fer
þverrandi úti í heimi. Þá verða sól-
arsellurnar endingarbetri vegna þess
að vatnið kælir þær niður um leið
og sellurnar takmarka uppgufun
vatnsins og stuðlar þannig að betri
vatnsforða.
Nýja verið getur uppfyllt orku-
þörf um 15.000 heimila á ári, sem
er sex sinnum meiri framleiðsla en
næststærsta fljótandi sólarver jarðar-
innar, samkvæmt frétt dagblaðsins
China Daily.
Stærsti mengunarvaldur heims
Um 40% alls útblásturs gróðurhúsa-
lofttegunda kemur frá tveimur
löndum, Bandaríkjunum og Kína.
Það er í samræmi við kolavinnslu
í heiminum, en Kína er þar stærsti
framleiðandinn og notandinn. Það er
einnig það land sem treystir helst á
kol sem orkugjafa en nú munu vera
blikur á lofti. Þannig hefur dregið
verulega úr kolanotkun í landinu
síðan 2013. Þá hafa yfirvöld gefið
það út að þau munu fjárfesta sem
nemur 361 billjón dollara í endur-
nýjanlegri orku fyrir árið 2020.
Kína mun hafa getu til að fram-
leiða meiri sólarorku en nokkurt
annað land heimsins og árið 2015
skaust það upp fyrir Þýskaland, sem
stærsti framleiðandi sólarraforku
í heiminum og framleiðir nú tæp
80.000 gígawött.
Tvöfaldaði skuldbindingar sínar
Sólarorkuverið nýja er aðeins hluti
af víðtækum aðgerðum Kína til
að uppfylla markmið sín gagnvart
Parísarsamkomulaginu, ramma-
samnings Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar.
Eftir að Bandaríkin
drógu til baka þátttöku sína í
Parísarsamkomulaginu í júní sl.,
tvöfaldaði Kína skuldbindingar
sínar og gaf út yfirlýsingar með
öðrum þátttökuþjóðum samkomu-
lagsins þess efnis til að hvetja til
enn áhrifameiri loftslagsaðgerða.
/ghp
Mynd / VCGa