Bændablaðið - 07.09.2017, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Hafrannsóknastofnun hefur birt
niðurstöður úr sameiginlegum
rannsóknaleiðangri Íslendinga,
Grænlendinga, Færeyinga og
Norðmanna til að kanna magn
og útbreiðslu makríls, síldar
og kolmunna í Norðaustur-
Atlantshafi. Er vísitala lífmassa
makríls 10,3 milljón tonn sem
er 13 % aukning frá síðasta ári.
Yfirborðshiti sjávar 2017 mæld-
ist hærri en meðaltal síðustu 20
ára.
Markmið leiðangursins var
að kortleggja útbreiðslu og
meta lífmassa makríls, síldar og
kolmunna í Norðaustur-Atlantshafi
meðan á sumarætisgöngum þeirra
stendur. Einnig var ástand sjáv-
ar og þéttleiki átustofna metið í
leiðangrinum líkt og undanfarin
ár. Leiðangurinn stóð dagana 3.
júlí til 4. ágúst 2017.
Makríll
Magn og útbreiðsla makríls á
svæðinu var metin út frá afla í
yfirborðstogum sem tekin voru
með reglulegu millibili á um 2,8
milljón ferkílómetra hafsvæði.
Vísitala makríls í lífmassa mæld-
ist 10,3 milljón tonn sem er 13%
aukning frá fyrra ári og hæsta vísi-
tala frá því að verkefnið hófst árið
2009. Vísitala fyrir fjölda fiska
var metin 24,2 milljarðar sem er
2% minnkun frá 2016, sem var
hæsta gildi sem mælst hefur.
Í mælingunni voru fjórir
árgangar makríls mest áberandi.
Árgangur 2010 sem mældist 19%
af heildarfjölda einstaklinga,
árgangur 2011 mældist einnig
19%. 2012 var 14% og 2014
mældist 15%.
Vísitalan fyrir eins árs makríl,
2016 árgangurinn, mældist há
í sögulegu samhengi og er vís-
bending um áframhaldandi góða
nýliðun í makrílstofninum.
Makríll fannst á mest öllu
rannsóknasvæðinu og náðist að
staðsetja útbreiðslumörk makríls
í allar áttir nema suðaustast á
svæðinu, í Norðursjó og norðan
Bretlandseyja.
Mestur þéttleiki mældist um
miðbik og á norðausturhluta
Noregshafs, og við suðaustur-
og vesturströnd Íslands. Þéttleiki
makríls við Ísland var mestur
vestan við landið, líkt og var 2016.
Síld
Magn og útbreiðsla norsk-íslenskrar
síldar að sumarlagi var metin með
bergmálsmælingum. Vísitalan fyrir
lífmassa var 5,9 milljón tonn sem
er 11% lækkun frá 2016.
Vísitala fyrir fjölda einstaklinga
hækkaði hins vegar um 2% milli
ára sem skýrist af töluverðum
fjölda af smærri síld í mælingunni,
árgangi frá 2013, en hann var í
mestum fjölda allra árganga,19%.
Magnmæling er í góðu samræmi
við bergmálsmælingar á stofninum
í maí síðastliðnum.
Útbreiðsla stofnsins var að
hluta svipuð og undanfarin ár fyrir
fullorðna hluta hans og er þéttleiki
hans mestur norður af Færeyjum,
fyrir austan og norðan Ísland. Ólíkt
fyrra ári mældist hár þéttleiki einnig
í Norðaustur-Noregshafi sem var
mest síld úr 2013 árganginum.
Kolmunni
Annað árið í röð var lögð aukin
áhersla á að fylgjast með útbreiðslu
kolmunna og meta stærð stofnsins
með bergmálsmælingum.
Kolmunnavísitalan mældist 2,7
fyrir lífmassa sem er 19% lækkun
frá 2016, meðan að fjöldavísitalan
hækkaði um 4%. Útbreiðsla
kolmunna var svipuð útbreiðslu
ársins 2016. Hann fannst á mest
öllu rannsóknasvæðinu nema í
köldum sjó út af Austur-Grænlandi
og í Austur-Íslandsstraumnum milli
Íslands og Jan Mayen.
Yfirborðshiti hærri en meðaltal
síðustu 20 ára
Yfirborðshiti sjávar mældist
svipaður í júlí 2017 og sumarið
2016 á mest öllu hafssvæðinu. Eins
var yfirborðshitinn 2017 um 1 til
2 °C hærri en langtímameðaltal
síðustu 20 ára fyrir júlímánuð
á mestum hluta austur- og
norðursvæðisins.
Á svæðinu milli Íslands og
Grænlands var yfirborðshiti
júlímánaðar hins vegar jafnan um
og undir meðaltali síðustu 20 ára.
Dýrasvif
Vísitala fyrir magn dýrasvifs fyrir
vesturhluta svæðisins, sunnan,
norðan og vestan Íslands og við
Grænland, var tvisvar sinnum
hærri í júlí 2017 en hún var árið
2016. Hins vegar lækkaði vísitala
dýrasvifs lítillega milli 2016 og 2017
á austurhluta rannsóknasvæðisins,
eða í Noregshafi. /VH
Hafrannsóknastofnun:
Magn og útbreiðsla makríls, síldar og
kolmunna í Norðaustur-Atlantshafi
HLUNNINDI&VEIÐI UTAN ÚR HEIMI
Frakkland undirbýr nú að
ganga gegn áformum Evrópu-
sambandsins um að endurnýja
heimildir til notkunar á eitur-
efninu glýfósati í landbúnaði um
næstu áramót. Ástæðan er hversu
hættulegt efnið geti verið fyrir
heilsu manna.
Framtíð glýfósats er því óviss, en
það er virka efnið í gróðureyðing-
arefninu Roundup sem framleitt er
af Monsanto. Roundup er vel þekkt
hérlendis þótt notkun þess í land-
búnaði hafi verið
sáralítil.
Áhyggjur
af skaðsemi
glýfósats
Auknar áhygg-
j ur hafa verið
víða um lönd
út af mögu-
legum skaða sem
notkun á gróður-
eyð ingarefnum
sem innihalda
glýfósat geta
valdið. Frétta-
stofa Reuters
greindi frá því
1. september að
frönsk umhverfis-
málayfirvöld hafi
í hyggju að greiða
atkvæði gegn endurnýjun heimildar
á notkun slíkra efna. Til stóð að
innleiða bann við notkun þeirra
í júní í fyrra en því var frestað og
heimild til notkunar þeirra framlengd
tímabundið.
Gríðarlegir peningahagsmunir
Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi
bæði hvað varðar að hámarka
uppskeru með því að eyða „illgresi“
á nytjajurtaökrum og augljóslega
eru fjárhagslegir hagsmunir
framleiðenda efnanna mjög miklir.
Breskir bændur þrýsta á um
áframhaldandi heimild
NFU-samtök bænda í Englandi
og Whales hafa lagt áherslu á
að áfram verði heimilað að nota
gróðureyðingarefni sem innihalda
eiturefnið gýfósat. Hafa samtökin
farið fram á að leyfi verði endurnýjað
til 15 ára. Um 55 þúsund breskir
bændur standa að NFU og telja þeir
að ef bann verði sett á efni eins og
Roundup, þá muni þeir ekki verða
samkeppnishæfir við bændur í
öðrum löndum hvað framleiðni
varðar. Þykir þessi afstaða skjóta
nokkuð skökku við í allri umræðu
um heilsusamlega framleiðslu.
Einnig mikilla upplýsinga um skaða
sem efnin hafa valdið, m.a. bændum
í löndum eins og Indlandi. Það vakti
því töluverða athygli þegar Evrópska
efnafræðistofnunin (European
Chemicals Agency - ECHA) og
evrópsk fæðuöryggisyfirvöld
(European Food Safety Authority -
Efsa), komust að þeirri niðurstöðu
í fyrravor að glýfósat væri „ekki
hættulegt efni“. Talað var um að
þessi niðurstaða hafi verið pöntuð
af yfirvöldum til að þeim væri
stætt á að framlengja heimildir
til notkunar efnisins. Það styður
þá kenningu að alþjóðlega
krabbameinsrannsóknarmiðstöð
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna WHO
hafði áður komist að þveröfugri
niðurstöðu. Sem sagt að glúfósat
væri líklega krabbameinsvaldandi.
Andstæðingar notkunar þessara
gróðureyðingarefna hafa farið mik-
inn á netmiðlum og hvatt bændur
til að rökstyðja nauðsyn þess að
nota slík eiturefni. Þau segja m.a.
að glýfosat eigi stóran þátt í gríðar-
legri aukningu á glútenofnæmi hjá
fólki og alvarlegum sjúkdómum því
tengdu.
Samtök bænda hafa gert mynd-
band til að rökstyðja sína afstöðu.
Þar lýsir Jeff Powel, bóndi og fulltrúi
í NFU, því hvernig þeir úði akra
sína í tvígang með eiturefninu áður
en þeir sá í þá korni. Þannig seg-
ist hann hafa hemil á illgresi sem
kallað er „Black grass“. Hann segist
ekki geta hugsað þá hugsun til enda
ef hann fái ekki heimild til að nota
glýfósatið áfram. Í sama streng tekur
bóndinn Anthony Aston, sem líka er
fulltrúi í NFU, sem og fleiri bændur
í myndbandinu.
Tvísýnt um áform ESB
Ljóst er að mjög vaxandi andstaða er í
Evrópu við notkun hvers konar eitur-
efna í landbúnaði. Eggjaskandallinn í
Hollandi nýverið hefur ýtt mjög undir
þá andstöðu. Það getur því orðið tví-
sýnt um hvort Evrópusambandinu
tekst það ætlunarverk sitt að fram-
lengja heimild til notkunar á glýfósati.
Líklega mun það ráðast af afstöðu
Þjóðverja á Evrópuþinginu í haust.
/HKr.
-
ESB vill áframhaldandi notkun á eitrinu glýfósati:
Frakkar hyggjast ganga gegn
vilja Evrópusambandsins
Mynd / Genetic Literacy Project
Mynd / Center for food safety
Kvótinn fiskveiðiárið 2017 til 2018:
Aflamark 422.786 tonn og tæplega
6.600 tonnum minna en í fyrra ári
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki
fyrir fiskveiðiárið 2017/2018.
Úthlutunin fer fram á grundvelli
aflahlutdeilda að teknu tilliti til
5,3% frádráttar fyrir jöfnunar-
aðgerðir með sama hætti og á
fyrra fiskveiðiári. HB Grandi og
Samherji eru með stærsta kvótann.
Á yfirstandandi fiskveiðiári
sem hófst 1. september er úthlut-
að 375.589 tonnum í þorskígildum
samanborið við um 365.075 þorsk-
ígildistonn á síðasta fiskveiðiári.
Úthlutað aflamark er alls 422.786
tonn sem er tæplega 6.600 tonnum
minna en á fyrra ári.
Þorsk-, ýsu- og ufsakvótinn aukinn
Úthlutun í þorski er um 203 þúsund
tonn og eykst um tæp 9.000 tonn frá
fyrra ári. Ýsukvótinn er 31.732 tonn
og hækkar um 4.200 tonn og er sama
aukning í ufsakvótanum. Tæplega
1.700 tonna samdráttur er í úthlutun
á gullkarfa og tæplega 1.100 tonna
samdráttur í djúpkarfa. Úthlutun í
íslenskri sumargotssíld er 29.000
tonnum lægri en í fyrra. Alls er 2.042
þorskígildistonnum úthlutað í upp-
hafi árs sem skel- og rækjubótum
en það er um 500 tonnum meira en
í fyrra.
Sólberg ÓF fær mest
Alls fá 489 skip úthlutað aflamarki
að þessu sinni samanborið við 499 á
fyrra fiskveiðiári. Það skip sem fær
úthlutað mestu aflamarki er Sólberg
ÓF 1, en það fær 9.716 þorsk-
ígildistonn, eða 2,6% af úthlutuðum
þorskígildum.
50 stærstu fá 87,8% af aflamarki
Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá
úthlutað sem nemur um 87,8% af
því aflamarki sem úthlutað er og er
það 1,2 prósentustigum hærri tala en
í fyrra. Alls fá 372 fyrirtæki eða lög-
aðilar úthlutað nú, eða um 26 aðilum
færra en í fyrra.
HB Grandi fær mesta úthlutun líkt
og á síðasta ári. Næst kemur Samherji
með 5,9% og síðan Þorbjörn hf. með
5,5%. Þetta er sama röð efstu fyrir-
tækja og undanfarin ár.
Mest til skipa í Reykjavík
Þrjár hafnir skera sig úr hvað
úthlutun varðar og skip sem þeim
tilheyra fá töluvert mikið meira
úthlutað í þorskígildum talið en þær
hafnir sem á eftir koma. Mest fer til
skipa með heimahöfn í Reykjavík,
12,3% af heildinni. Næstmest fer til
Grindavíkur, eða 10,8%. Skip með
heimahöfn í Vestmannaeyjum fá
9,9% úthlutunarinnar.
Úthlutun eftir útgerðarflokkum
Skuttogarar fá úthlutað rúmum 206
þúsund tonnum af heildaraflamarkinu
á fiskveiðiárinu en skip með aflamark
fá 165 þúsund tonn. Smábátar með
aflamark og krókaaflamarksbátar fá
tæp 51.700 tonn. Vakin er athygli
á því að krókaaflamarksbátar fá
eingöngu úthlutað þorski, ýsu, ufsa,
gullkarfa, löngu, keilu og steinbít.
/VH