Bændablaðið - 07.09.2017, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Uppruna Bolens
garðdráttar véla má
rekja til 1850 og hét
fyrirtækið þá í höfuðið
á stofnendum þess, J.E.
Gilson & H.W. Bolens
Manufacturing Co.,
og sérhæfði sig í fram-
leiðslu á járnstólum og
garðverkfærum.
Þrátt fyrir jafn-
an og stöðugan vöxt
fyrirtækisins seldi
Gilson-fjölskyldan sig
út úr rekstrinum árið 1919 og
Bolenarnir yfirtóku rekstur þess.
Nafni fyrirtækisins var ekki breytt
í Bolens Manufacturing fyrr en
1939.
Fjórhjóladrifinn smátraktor
Skömmu eftir að Bolens tók yfir
rekstur fyrirtækisins setti það á
markað fyrstu vélknúnu garð-
sláttuvélina og fjórhjóladrifinn
smátraktor sem var um leið
sláttuvél sem ökumaðurinn sat
klofvega á.
Uppbygging fyrirtækisins
gekk vonum framar og
fyrirtækið var leiðandi
á markaði fyrir minni
dráttarvélar, smágröfur
og tæki til garðyrkju
á áratugunum fyrir
heimsstyrjöldina seinni.
Árið 1939 færðist
eignarhald á Bolens yfir
til Automatic Products
Co of Milwaukee. Eftir
lok seinni heimsstyrj-
aldarinnar keypti Food
Machinery & Chemical
Corp - FMC, sem er
risastórt fyrirtæki í landbúnaðar-
geiranum, Bolens og hélt fram-
leiðslu þess áfram undir sama
nafni.
Busky 600 og Estade Keeper
Árið 1947 setti Bolins á mark-
að fjórhjóladrifinn smátraktor
sem var um leið sláttuvél sem
ökumaðurinn sat klofvega á.
Hönnunardeild fyrir fyrirtæk-
isins sat ekki auðum höndum
næstu árin. Árið 1958 komu
Ride-A-Matic týpurnar á mark-
að og 1961 setti Bolens á markað
smádráttarvél sem kallast Bolens
Husky 600. Husky 600 týpan þótti
skara fram úr og vera skör hærra
en smátraktorar annarra fram-
leiðenda. Bolens Husky var því
um tíma sá smátraktor sem aðrir
framleiðendur miðuðu sína fram-
leiðslu við.
Í framhaldinu komu svo
Bolens Husky týpur 800, 900,
1000 og 1050 sem allar þóttu
framúrskarandi.
Tveimur árum
síðar, 1963, setti svo
fyrirtækið á markað
aðra smádráttarvél
sem kallaðist Estate
Keeper og þótti ekki
síður byltingarkennd.
Enn eigendaskipti
Áhugi á framleiðslu
Bolens jókst og rekstur fyrir-
tækisins undir stjórn FMC gekk
glimrandi. Þrátt fyrir það var
Bolens selt árið 1988 og komst í
eigu Garden Way. Skömmu áður
hafði Garden Way keypt fyrirtæki
sem kallaðist Troy-Bilt.
Smátraktorarnir frá Bolens
voru áfram seldir undir heiti
Bolens en allur aukabúnaður eins
og sláttuvélar, ámoksturstæki,
ýtublöð og snjóblásarar undir heiti
Troy-Bilt.
Skömmu eftir síðustu alda-
mót keypti vélaframleiðandinn
MTD meirihluta í Bolens. MTD
er í dag einn stærsti framleiðandi
smádráttarvéla og garðvinnuvéla
í heiminum í dag.
Lækkandi sól
Þrátt fyrir að frægðarsól Bolens
hafi risið hátt og fyrirtækið verið
leiðandi í nýjungum á sviði tækja
fyrir garðyrkju hefur sól þess sigið
í heimi smátraktora eftir að MDT
tók yfir reksturinn. Í dag er Bolens
vörumerkið samnefnari fyrir
ódýra smátraktora og sjaldséðir
á markaði. /VH
Bolens – smátraktorar
og sláttuvélar
Evrópusambandið er sakað um
tvískinnung varðandi framleiðslu
og notkun á ýmsum eiturefnum
sem ætluð eru til notkunar í
landbúnaði. Á sama tíma og ESB
hefur bannað sum þessara efna
af heilsufarsástæðum er haldið
áfram að framleiða þau og flytja
út til annarra ríkja í þúsunda
tonna vís.
Greint var frá þessu
í breska blaðinu The
Guardian 22. ágúst
síðastliðinn. Þar
kemur fram að
innan Evrópu-
sambandsins hefur
verið tekin ákvörðun
um að banna ýmsar
gerðir svokallaðra
varnar efna til notk-
unar í land búnaði af
heilsu fars ástæðum,
en flest eru þau mjög
eitruð. Þar er um að
ræða ýmiss konar
gróðureyðinga refni og
skordýra eitur. Þó hefur ítrekað
verið veittur frestur til innleiðingar
á þessum ráðagerðum.
Bannað í ESB-löndum
en flutt út í stórum stíl
Árið 2007 var bannað að nota gróð-
ureyðingarefnið Paraquat innan
ESB-ríkja, en þetta efni hafði þá
valdið þúsundum dauðsfalla víða um
heim og leitt til fjölda sjálfsmorða.
Þrátt fyrir bannið hefur svissneska
fyrirtækið Syngenta haldið áfram
framleiðslu efnisins í verksmiðju
sinni í Huddersfield í Englandi.
Þaðan hafa þúsundir tonna af efninu
verið seld til landa utan ESB sem
yfirvöld í Evrópusambandinu hafa
látið óátalið. Þar er efnið notað m.a.
við ræktun matjurta.
Haft er eftir Baskut Tuncak, sem
er upplýsingafulltrúi Sameinuðu
þjóðanna í málum sem varða eitr-
aðan úrgang, að þeir sem
berjist gegn notkun
eiturefna fordæmi
þessi vinnubrögð og
saki ESB um tvöfalt
siðgæði. Tunack seg-
ist furðu lostinn að
Evrópu sambandið
skuli banna notkun
á Paraquat innan
sinna landamæra en
flytji það svo áfram
út til ríkja þar sem
reglur eru ekki eins
strangar.
Efnarisinn Syngenta
ber ábyrgð á útflutningi
á um 95% af Paraquat
frá Evrópu en efnið er selt
undir vörumerkinu Gramoxone.
Það smýgur hæglega í gegnum
húð manna og hefur verið tengt
við Parkinson-sjúkdóminn. Þá
getur innöndun á gufum af efninu
valdið alvarlegum lungnaskaða
samkvæmt heimasíðu Crouse
Hospital í Bandaríkjunum og valdið
því sem kallað er Paraquat lungum
og eyðileggingu á nýrum. Snerting
við efnið er einnig mjög hættuleg.
Það hefur samt m.a. verið notað
af stjórnvöldum þar í landi við að
eyðileggja marijúanaakra.
Syngenta hefur framleitt
Paraquat í verksmiðju sinni í
Huddersfield í tvo áratugi. Á árinu
2014 var fyrirtækið sektað um
200.000 pund eftir að uppvíst var að
meira en þrjú tonn af efninu höfðu
lekið út í umhverfið eftir óhapp.
Rúmlega 41 þúsund tonn seld til
fátækari ríkja
Frá 2015 hefur Syngenta flutt
út 122.831 tonn af Paraquat frá
Bretlandi. Það er að meðaltali
um 41.000 tonn á ári samkvæmt
tölum sem Guardina fékk hjá
Swiss NGO public Eye. Nærri tveir
þriðju af þessum útflutningi, eða
um 62%, fór til fátækra ríkja og
þar á meðal til Brasilíu, Mexíkó,
Indónesíu, Gvatemala, Venesúela
og Indlands. Um 35% voru flutt út
til Bandaríkjanna þar sem einungis
er heimilt að nota paraquat með
sérstöku leyfi.
Í samtali við Guardian segir
talsmaður Syngenta að hann harmi
óhappið í Bretlandi, en enginn hafi
þó slasast og umhverfið hafi ekki
boðið skaða af. Þá sagði hann að
í meira en hálfa öld hafi Paraquat
reynst heimsins áhrifaríkasta
hjálparefnið. Það hafi hjálpað
milljónum bænda til að auka
framleiðni og að standa sig í
samkeppninni. Þá benti hann á að
efnið væri enn leyft í löndum eins og
Bandaríkjunum, Ástralíu og í Japan.
/HKr.
Evrópusambandið sakað um tvískinnung varðandi gróðureyðingarefni:
Stórhættulegt Paraquat bannað í ESB
en selt í miklu magni til annarra ríkja
Maður að úða illgresiseyði á kornakur. Mynd / Wisegeek
UTAN ÚR HEIMI
Stærsta löglega kannabisbýli
í heimi er í Bretlandi
Í Kent skammt frá Kantaraborg
á Bretlandseyjum er að finna
stærstu löglegu kannabisræktun
í heimi. Miðað við götuverð kanna-
bis á Bretlandseyjum er ræktun-
in metin á um milljarð íslenskra
króna.
Í tveimur stórum gróðurhúsum,
sem eru vel falin í kyrrlátri breskri
sveit, eru ríflega 80.000 kanna-
bisplöntur ræktaðar undir ströngu
eftirliti öryggisvarða og öryggis-
myndavéla. Tólf garðyrkju- og
grasafræðingar í hvítum sloppum
sjá um plönturnar, vökva og mæla,
á vöktum allan sólarhringinn. árleg
framleiðsla í gróðurhúsunum er um
20 tonn á ári.
Ræktunin, sem er á ábyrgð
breska lyfjafyrirtækisins GW
Pharmaceuticals, er þrisvar sinnum
umfangsmeiri en stærsta ólöglega
ræktun sem komist hefur upp á
Bretlandseyjum.
Ræktun lyfjafyrirtækisins hófst
árið 1998 og síðan þá hafa um
tvær milljónir kannabisplantna
verið ræktaðar í gróðurhúsunum.
Plönturnar eru notaðar til rannsókna
á lyfjum. Lyfið sem kallast Sativex
er þegar komið á markað og ætlað
til að líkna fólki sem þjáist af MS og
banvænu krabbameini. Unnið er að
rannsóknum á nýju lyfi gegn floga-
veiki, geðklofa og sykursýki.
/VH
Hampur til heilsu. Árleg framleiðsla
gróðurhúsanna í Kent er um tuttugu
tonn á ári.