Bændablaðið - 07.09.2017, Page 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Fyrir um ári síðan prófaði ég í
stórum prufuakstri fjórhjóladrifna
smárútu, eftir að hafa ekið nokkrum
sinnum framhjá Bílabúð Benna og
séð þar við húsið kubbslega smárútu
sem er mun hærri en almennt gerist
með svona bíla.
Ég veit ekki af hverju, en ein-
hvern veginn kemur alltaf upp í
hugann smjörlíkisstykki sem búið
er að skera smá klípu af þegar ég
hef horft á þennan bíl. Sennilega er
þó ljótt af mér að hugsa svona. Ég
ákvað að fá bílinn til prufuaksturs og
tók stuttan hring á Opel Movano 9
manna, beinskiptur sex gíra smárútu
sem kostar 6.290.000.
Hátt til lofts og rými
fyrir farþega gott
Að sitja í aftursætunum er þægilegt,
en oft vill verða að farþegasæti eru
hörð og ekkert sérstakt að sitja í þeim
til lengdar, en í þessum bíl eru sætin
mjúk og þægileg.
Lofthæðin er rétt um 170 cm og
því ágætt að athafna sig aftur í bíln-
um séu menn á svipaðri hæð og ég
sem er nálægt 175 cm.
Hólf eru úti um allt fram í bílnum,
efst fyrir aftan framrúðuna, í hurðum
og undir sætunum tveim sem eru við
hlið bílstjóra. Aftast er svo um eins
metra svæði sem ætlað er fyrir far-
angur. Afturbekkirnir, þeir tveir öftu-
stu, eru auðlosanlegir og er þá bíllinn
orðin að hefðbundnum sendibíl enda
er burðargeta Opel Movano 838 kg.
Á tómum bílnum var óþægilega
mikið loft í dekkjunum
Bíllinn kemur á átta strigalaga
burðardekkjum (eins og flestir aðrir
bílar í þessum flokki), en það sem
mér fannst óvenjulegt við þennan
bíl er hversu mikið loft á að vera í
dekkjunum. Uppgefið loftmagn er á
bilinu frá 55 psi. upp í 66 psi.
Þegar ég fór að keyra bílinn fann
ég að bíllinn fékk enga fjöðrun út
úr dekkjunum og prófaði því að
hleypa loftinu niður í 40 psi. Það
var nefnilega fínt að keyra bílinn
tóman með svona lítið loftmagn.
Þá sagði mælaborðið mér að stoppa
strax þar sem að öll dekk væru of
loftlítil. Samgöngustofa bannar
okkur bílablaðamönnum að keyra
með farþega á óskráðum bílum
sem eru á rauðum númerum. Þá
er einfaldlega ekki hægt að prófa
bílana undir því álagi sem þeim er
ætlað út af einhverju óskiljanlegu
regluverki.
Eftir að hafa sett loftið aftur upp
í 55 psi. kláraði ég prufuaksturinn
og í hvert sinn sem ég fór í holu eða
yfir hraðahindrun fann maður fyrir
högginu upp í óæðri endann rétt eins
og að maður væri á vörulyftara.
Prufuaksturinn
Hljóðið í dísilvélinni er ekki mikið
inn í bílinn, en vélin er 2,3 lítra sem
á að skila 145 hestöflum. Uppgefin
eyðsla í blönduðum akstri er 6,3–6,6
lítrar á hundraðið, en ég var að eyða
á bilinu 8,5 upp í 11,2 lítrum með
mínu aksturslagi.
Mér fannst vélin toga vel þegar
kom að brekkum og tel ég að þessi
bíll fari létt með kerru sem er á
bilinu 2000 til 2500 kg.
Á möl var bíllinn hastur og kenni
ég þar mestu um hversu hart þarf að
vera í dekkjunum. Á malarveginum
var töluverð drulla og kom það mér
á óvart hversu bíllinn sóðaði sig
lítið út þrátt fyrir kubbslega lögun.
Fyrirfram hafði ég gert mér upp þá
skoðun að bíllinn yrði haugskítugur
að aftan eftir drullupollasullið hjá
mér.
Á malbiki er bíllinn fínn og gott
að keyra þótt heyrist aðeins veghljóð,
sennilega má einnig kenna hörðum
dekkjum um megnið af því hljóði.
Fjölnota bíll á góðu verði
Miðað við mögulegt notagildi er
Opel Movano L1H1 á góðu verði
og ætti að gagnast stórum fjölskyld-
um, smærri fyrirtækjum, eða sem
smárúta til aksturs á komandi réttar-
böll. Jafnvel þótt mér finnist bíllinn
hastur tómur og óhlaðinn, þá er hann
eflaust betri með einhverja hleðslu
eða farþega.
Eini mínusinn sem ég sé við
bílinn er að persónulega hefði ég
viljað keyra þennan bíl á 45 psi.
loftþrýstingi í dekkjunum, eða sama
og ég keyri minn Benz Sprinter
sem er töluvert þyngri og stærri.
Plúsarnir eru mun fleiri samanber
lofthæð, sæti, verð og háa setu inni
í bílnum sem gefur gott útsýni í
umferð og akstri.
Opel Movano L1H2. Myndir / HLJ
Var ánægður að sjá að þegar bíllinn var settur í gang, þá kviknuðu öll ljós
allan hringinn. Þetta ætti skilyrðislaust að vera í öllum nýjum bílum sem
búnir eru sjálfvirkum dagsljósabúnaði.
Frekar fannst mér bíllinn hastur á hefðbundnum malarvegi.
Gott rými fyrir farangur aftast.
Þyngd 2.062 kg
Hæð 2.307 mm
Breidd 2.070 mm
Lengd 5.048 mm
Helstu mál og upplýsingar
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Afturbekkirnir eru þægilegir og auðvelt að fjarlægja sé þess þörf.
Sé miðjusætið lagt fram við hlið bílstjóra kemur þetta fína snúanlega
vinnuborð í ljós.
Stórt geymsluhólf er undir farþega-
sætunum við hlið bílstjóra.