Bændablaðið - 07.09.2017, Page 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Smalasokkarnir
frá DROPS Design
HANNYRÐAHORNIÐ Gallery Spuni
Nú líður að einum allra skemmti-
legasta tíma ársins og fólk sam-
einast til að smala heim fénu eftir
sumarið á fjöllum. Börnin okkar
elska að mæta í réttir, vera úti
og gleðjast með okkur sem eldri
erum og skemmtileg stemning
sem myndast.
Nú er tími til að prjóna smala-
sokka fyrir yngstu kynslóðina. Að
spóka sig í svona fínum, nýjum
smalasokkum myndi hvert ein-
asta barn elska, en það eru líka til
uppskriftir á fullorðna inn á www.
garnstudio.com.
Smalasokkar:
Úr DROPS Flora. Stærð 24 - 34.
Mynstur nr 28-10
Efni:
DROPS FLORA frá Gallery Spuna (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 01, natur
50 g litur 16, pistasía
50 g litur 13, gallabuxnablár
50 g litur 19, kóral
50 g litur 06, svartur
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem
þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjónið
verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning
sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
HÆLÚRTAKA (prjónið sléttprjón):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til
7-7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða
eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið
óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var
slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar
til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða
eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin,
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna,
snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til
6-6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða
eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt,
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem
prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur
þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju
óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1
lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að
það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt
yfir þar til (10-10-12-12) lykkjur eru eftir á prjóni.
ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2
lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 lykkjur
snúnar slétt saman.
SOKKUR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá stroffi
og niður að tá.
Fitjið upp 64-64-72-72 lykkjur jafnt yfir á
sokkaprjóna 2,5 með gallabuxnabláum. Prjónið
1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (2 lykkjur
slétt, 2 lykkjur brugðnar) í 3-3-3-3 cm. Prjónið
1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-
12-12 lykkjur jafnt yfir = 52-52-60-60 lykkjur.
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 8
lykkjur) 6-6-7-7 sinnum á breidd, prjónið A.2
(= 4 lykkjur). ATH: Í 6., 10. og 33. umferð er
fækkað um 1 lykkju í mynsturteikningu A.2 =
49-49-57-57 lykkjur. Í 40. umferð (= umferð
með stjörnu) er fækkað um 1 lykkjur jafnt
yfir í umferð = 48-48-56-56 lykkjur. ATHUGIÐ
PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram með A.1
(= 6-6-7-7 sinnum í umferð). Í síðustu umferð
í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður til 44-44-56-58
lykkjur.
Prjónið nú sokkinn til loka með pistasía. Haldið
eftir fyrstu 11-11-13-13 lykkjunum á prjóni,
setjið næstu 22-22-30-32 lykkjur á 1 band (=
miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 11-11-
13-13 lykkjur á prjóni = 22-22-26-26 lykkjur
fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir
hællykkjur í 4½-4½-5-5 cm.
Setjið eitt prjónamerki mitt á milli lykkja á
hæl (= 11-11-13-13 lykkjur hvoru megin við
prjónamerki). Prjónamerki fylgir með í stykkinu
að úrtöku fyrir tá. Þannig er auðveldara að
úrtaka fyrir tá verði á réttum stað.
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
4 8 2 5
1 5 7
7 2 9 3
5 1 2 3 8
7 3 4 9
1 4 6 8 2
1 6 9 7
8 2 1
5 9 4 6
Þyngst
8 6 4
2 9 3
9 8 2 3 6 5
7 1
3 2
5 9
8 1 3 5 9 4
5 4 7
9 1 7
7 2 9
8 6 2
1 9 5
4 6 8
3 9
4 5 1
7 3 8
6 5 3
8 2 5
7
4 1 6 9
2 5
1
8 3 5
4
2 8
8 1 9 6
3
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Fór í sumar til Grímseyjar,
í Svarfaðar dal og í Hrísey
Lilja Karlotta er fjörug og hress
sveitastelpa sem finnst gaman að
hoppa á trampolíni.
Nafn: Lilja Karlotta Óskarsdóttir.
Aldur: Er 8 að verða 9 ára.
Stjörnumerki: Vog.
Búseta: Alda í Eyjafjarðarsveit.
Skóli: Hrafnagilsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Skrift.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Nýfæddir kanínuungar sem mömmu
finnst vera eins og rottur.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur eða
franskar.
Uppáhaldshljómsveit: Ljótu
hálfvitarnir.
Uppáhaldskvikmynd: Trolls.
Fyrsta minning þín? Í indíánabátnum
í Legolandi.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta, badminton,
júdó, íslenska glímu og frisbígolf – og
spila á píanó.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég ætla að verða
söngkona, flugfreyja, vinna í ísbúð
og stofna mitt eigið spæjarafélag með
Kristínu Köru frænku minni.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Fara á rafmagnsbíl til
Reykjavíkur og þegar pabbi og Minna
systir létu mig skoppa rosa hátt á
trampolíninu.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt
í sumar? Ég fór til Grímseyjar og
veiddi þar fisk. Svo fór ég á ættarmót
í Svarfaðardal og Hrísey eftir það.
Næst » Ég skora á Þjóðann Baltasar bekkj-
arbróður minn að svara næst, en hann býr á
Rökkurhöfða í Eyjafjarðarsveit.
www.galleryspuni.is
Nýtt garn
komið í hillur
og netverslun
25%
kynningar-
afsláttur
Úr alpaca, ull
og polyamide
Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – SJÁ HÆLÚRTAKA! Eftir
hælúrtöku eru prjónaðar upp 11-12-13-13 lykkjur
hvoru megin við hæl og 22-22-30-32 lykkjur af
bandi eru settar til baka á prjóninn = 54-56-
68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin
við 22-22-30-32 lykkjurnar ofan á fæti. Prjónið
síðan sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað
á hvorri hlið þannig:
Prjónið 2 síðustu lykkjurnar á undan 22-22-
30-32 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman
(þ.e.a.s prjónað er í aftari lykkjubogana í stað
fremri), 2 fyrstu lykkjurnar á eftir 22-22-30-32
lykkjunum eru prjónaðar slétt saman.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð
alls 6-6-10-10 sinnum = 42-44-48-50 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist
11-13-14-16 cm frá prjónamerki á hæl – nú
eru eftir 4-4-4-4 cm til loka lengdar. Setjið 1
prjónamerki mitt í hvora hlið þannig að það
verða 21-22-24-25 lykkjur á milli prjónamerkja
(prjónamerki sem er staðsett við hæl er mitt
undir fæti). Fellið nú af fyrir tá hvoru megin við
bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið
úrtöku hvoru megin í annarri hverri umferð alls
6-6-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð 2-2-4-4
sinnum = 10-12-12-14 lykkjur eftir á prjóni
umferð. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2
lykkjur slétt saman. Klippið frá og dragið bandið
í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að
og festið vel. Prjónið annan sokk alveg eins.
Bestur kveðjur,
Gallery Spuni