Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Page 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Page 25
Sundlaugin góða á Grensás. dvaldi á heilablóðfallseiningunni 80 dagar. Einnig hefur verið gerður samanburður á starfseminni árið 1994 og 1996. Fyrra árið tók deildin 54% allra heilablóðfallssjúklinga sem til sjúkrahússins leituðu, en síðara árið var hlutdeildin 72%. Meðallegutími sjúklinga með heiladrep styttist milli þessara ára úr 37 dögum í 26 daga. Árið 1994 útskrifuðust 65% sjúkling- anna innan þriggj a vikna, en 81 % árið 1996. Árið 1994útskrifuðust89%til sínsheima, en91,5%árið 1996. Tölur um meðallegutíma og hlutfall sjúklinga sem útskrifast heim eru gjarnan notuð sem mælikvarði á afköst og gæði þjónustunnar við heila- blóðfallssjúklinga. Okkartölurbenda ákveðið til að deildin hafi bætt árangur sinn í þjónustu við þennan sjúklingahóp. Því má bæta við að niðurstöðutölur fyrir árið 1997 eru algjörlega sambærilegar við tölur ársins 1996. Afdrif allra heilablóðfalls- sjúklinga á SHR árin 1996 og 1997 borin saman við afdrif heila- blóðfallssjúklinga á fjórum heila- bóðfallsdeildum: Gerð hefur verið heimildaleit til að bera saman afdrif allra heila- blóðfallssjúklinga árin 1996 og 1997 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur (3/4 hlutar á heilablóðfallseiningu endurhæfinga- og taugadeildar, 1/4 hluti á lyflækn- ingadeild) við niðurstöður frá erlend- um heilablóðfallsdeildum. Upplýs- ingar hafa fengist frá fjórum þekktum deildum á Norðurlöndum og á Eng- landi. Heildarfjöldi á SHR árin 1996 og 1997 var444 sjúklingar. I legunni létust 16% sem er lægra en í erlendu rannsóknunum (22-28%). Hjá okkur útskrifuðust 13% á aðrar stofnanir sem er með því lægsta sem lýst er (13- 34%). Heim útskrifuðust 71% sem er hærra hlutfall en í erlendu rann- sóknunum (44-62%). Hafa þarf í huga að niðurstöðutölur af þessu tagi eru háðar ýmsum þáttum svo sem hverjir eru teknir til endurhæfingar, hve auðvelt er að fá pláss á hjúkr- unardeildum og hve mikla aðstoð er hægt að veita fötluðu fólki úti í sam- félaginu. Þessar niðurstöður benda til að árangur meðferðar heilablóðfalls- sjúklinga á SHR sé með því besta sem gerist. Reykjavík, 31.mars 1998 Einar Már Valdimarsson Sérfr. í heila- og taugasjúkdómum Heilablóðfallssjúkl. áSHR 1996 og 1997 Heilablóðfallsdeildir á Norðurlöndum Hlutfall sjúklinga sem létust í og Englandi legunni Hlutfall sjúklinga sem 16% 22-28% útskrifuðust á aðrar stofnanir Hlutfall sjúklinga sem 13% 13-24% útskrifuðust heim 71% 44-46% Kynning Ierli og argaþrasi daganna gleymist margt sem þörf væri að muna eftir og minna á. Fréttabréfið okkar fer út til þúsunda hverju sinni eins og les- endur eiga mæta- velaðvita. Sextán þúsund eru nöfnin og rúmlega þó, hingað komin frá aðildarfélögum Öryrkjabanda- lagsins, því í upp- hafi var svo frá gengið að allir skuldlausir félagar í aðildarfélögum okkar skyldu fá blaðið ókeypis. Það er vissulega ærið verk að halda utan um þessa áskrifendaskrá í góðri samvinnu við aðildarfélögin og með ljúfu liðsinni þeirra. Fyrst þegar þetta kom hingað í hús var það Hallgerður Arnórsdóttir sem gætti þessa af trúmennsku sinni, en hún hvarf frá okkur til annarra starfa. Þá tók við umsjóninni Guðrún Halldórsdóttir, ungur starfsmaður Hússjóðs, sem hefur raunar svo ótalmargt fleira á sinni könnu, svo oft þykir manni sem út af muni flóa. Guðrún sinnir hinni daglegu af- greiðslu og símaþjónustu ásamt Guð- ríði okkar Gísladóttur og yrði of langt upp að telja alla þætti þess starfs. Guðrún heldur einstaklega vel um þessa hluti sem m.a. markast af því hversu hverfandi endursendingar á blaðinu eru nú um stundir. Það er líka mjög mikils virði að afgreiðslan hér sé svo ágætlega mönnuð sem raun ber vitni og viðmót allt við þá sem að garði ber svo ekki verður á betra kosið. Þarna er einmitt um að ræða andlit bandalags og Hússjóðs út á við gagn- vart hinum fjölmörgu sem hingað leita hinna margvíslegustu erinda. Þar kemur Guðrún mætavel inn í myndina með ljúflyndi sínu og glöðu geði. Fyrir ritstjóra er það ómetanlegt að að öllu sé svo grannt gætt sem Guðrún gerir varðandi blaðið. Og þó myndbirting væri henni Guðrúnu okkar ekkert fagnaðarefni þá vita nú félagar okkar sem hringja út af blaðinu og áskrifendum þess hvernig hún lítur út á mynd, þó viðmótið góða komi ekki fram en því kynnast menn siálfkrafa. J H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDAFAGSINS 25

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.