Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Page 40

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Page 40
/ Berglind Hanna Olafsdóttir ritari: HEILAGENGIÐ Að ósk ritstjóra set ég hér örfáar hugleiðingar og upplýsingar á blað um þennan sjálfsstyrktarhóp okkar og þykir vænt um við- brögð ritstjóra. Meðgöngutími hópsins var u.þ.b. 9 mánuðir og erum við því enn dálítið óþroskuð. Við höfum hist reglulega í hverri viku síðan 10. marz sl. að undan- skilinni vikunni fyrir páska. Hópurinn samanstendur af skóla- systkinum úr Hringsjá, starfsþjálfun fatlaðra, sem fengið hafa höfuðáverka ýmiss konar. Auk þess er með okkur félagi, sem María sérkennari í Hring- sjá hefur verið að kenna en María hefur verið okkur innan handar. Okkar sameiginlega markmið er að kynnast fyrst hvert öðru vel og fá til okkar ýmsa sérfræðinga til að miðla okkur þekkingu á höfuðáverkum og þeirra sjónarhorni til slíkra sjálfs- styrktarhópa. En slíkir hópar eru nauðsynlegir þar eð uppbygging eftir höfuðáverka getur verið dálítið snúin því okkur þykir sem “kerfið” sé ómeðvitað um þarfir okkar til uppbyggingar, nema ef um mikinn höfuðskaða er að ræða. “Meðal”-höfuðskaðaðir þurfa að "bjarga” sér sjálfir að flestu leyti, sem oft getur leitt til niðurbrots einstakl- Sjálfsstyrktarhópur I ings því margir þola ekki álagið eftir slíkt slys og þurfa talsvert meiri stuðningeníboðiernú. Einnigþurfa fjölskyldur þeirra stuðning sem ekki er fyrir hendi í formi áfallahjálpar, en það er nú enn ekki á okkar dagskrá að mynda fjölskyldudeild, hvað sem síðar verður. Við höfðum samband við tvo sænska einstaklinga sem unnið hafa að sjálfsstyrktarhópamyndun um alla Svíþjóð. Aðalstöðvar þeirra eru í Stokkhólmi undir hatti sænska Öryrkjabandalagsins. Þau hafastofn- að margar “grúppur” um alla Svíþjóð -”grúppur” með allt að 8-10 einstakl- ingum sem hittast reglulega og hjálpast að við að styrkja hvert annað, leiðbeina hvert öðru í gegnum kerfið og miðla upplýsingum um reynslu sína, vera hvert öðru til uppörvunar. Hópamir hittast gjarnan í heimahús- um, því það er minnstur kostnaður fyrir sjúklingana. Af því við erum nú enn að leita fyrir okkur fórum við þess á leit við þá sænsku að þeir kæmu okkur á sporið og óskuðum eftir að vera eins konar deild út úr þeirra félagi, þau gætu eflaust hjálpað okkur, stytt okkur leið, svo við gætum myndað fleiri hópa hér t.d. Enn erum við lokaður hópur meðan við erum að finna okkur farveg. Nú þegar eftir þessa vikulegu fundi höfum við kynnst nokkuð vel sem er undirstaða þess að við getum styrkt hvert annað. Vonandi tekst okk- ur vel til með eigin uppbyggingu svo við getum farið að miðla til annarra hérlendis með svipaða fortíð og við. Við erum sammála um að svona hópur hefði getað hjálpað okkur fyrst eftir okkar höfuðáverka, en þá reyndi mikið á fjölskyldur okkar með þau vandamál sem upp komu í kjölfarið s.s. verki, hvar voru bestu sérfræðing- arnir, kerfið lokað og sjúklingar ekki í stakk búnir til að ráða fram úr þessu nema með góðum stuðningi. Þar kæmi einmitt til aðstoðar sjálfsstyrkt- arhópur - með reynslumiklum ein- staklingum. Þess má geta að sænsku aðilarnir tóku vel undir óskir okkar og sendu upplýsingar um hæl með ósk um áframhaldandi samband, svo ljóst er að við erum á góðri leið. Erfitt er að sjá á þessari stundu hvenær þessi fyrsti hópur verður í stakk búinn að geta hafið störf út á við og með hvaða hætti er hægt að ná til þess fólks sem óskar eftir að njóta stuðnings fólks með svipaða reynslu og jafnvel betri skilning en vinir og nánustu aðstandendur geta veitt, þrátt fyrir góðan vilja. Oft missir sjúkling- urinn samúð þjóðfélagsins og þá gjarnan vina og fjölskyldu eftir því sem tíminn líður. Lífsreynsla þeirra sjálfra er fengið hafa áverkann gæti þá helzt hjálpað þegar skilning aðstandenda þrýtur. Berglind Hanna Olafsdóttir Berglind Hanna Ólafsdóttir Hlerað í hornum Maður einn bjó á annarri hæð í fjöl- býlishúsi. Hann var stressaður vel og funabráður. M.a. hafði hann það fyrir sið þegar hann fór úr skónum á kvöld- in að hann grýtti þeim hvorum á eftir öðrum í gólfið með tilheyrandi orð- bragði. Að lokum gekk þetta svo langt að húsbóndinn á næstu hæð fyrir neð- an kom upp og kvartaði. Sá stressaði lofaði bót og betrun. Svo var það nokkru seinna að hann var óvenjulega illa fyrirkallaður og grýtti skó sínum af fullu afli í gólfið, en mundi þá jafn- harðan eftir loforði sínu og setti hinn skóinn varlega frá sér. Klukkutíma seinna var hann vakinn við að barið var að dyrum og frammi stóð sá á neðri hæðinni og bar sig illa: “Heyrðu, heldurðu að þú vildir ekki grýta hinum skónum í gólfið svo við hjónin getum farið að sofa.” *** Ung hjón fóru til Afríku og dvöldust þarumskeið. Þegar móðir stúlkunnar frétti af komu barnabarns í heiminn, andvarpaði hún og sagði svo: “Það segir ekkert af því í bréfinu hvort barnið sé svart.” Maður einn gekk um kirkjugarð og kom þar að legsteini sem letrað var á: Hér hvílir öndvegismaðurinn og lögfræðingurinn Jón Jónsson. Þá varð manninum að orði: “Ekki hefði ég trúað því að tveir menn gætu legið í svo lítilli gröf.” Það var á Laugaveginum. Tvær jafn- öldrur sem ekki höfðu hist óralengi mættustþarogönnursagði: “Eghefði nú bara aldrei þekkt þig aftur eins og þúhefurelst”. Þásagðihin: “Eghefði nú heldur ekki þekkt þig nema bara af kápunni.” 40

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.