Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Page 47
í Ási - Þór og Árni Sævar merkja blöð en Arnar púlar við
pökkunarvélina.
Styrktarfélag
vangefinna
A Sótt heim á
Amildum maídegi lögðum við
þrjú leið okkar til Styrkt-
arfélags vangefinna: Hauk-
ur formaður, Ásgerður framkvæmda-
stjóri og undirritaður.
Þar tóku á móti okkur og veittu
allar upplýsingar af ljúfri liðsemd,
formaðurinn Hafliði Hjartarson sem
einnig er gjaldkeri bandalagsins og
framkvæmdastjórinn Kristján Sigur-
mundsson sem hér er kynntur sérstak-
lega. Höfuðstöðvamar em í Skipholti
50c, á þriðju hæð þar, allt afar smekk-
legt og hlýlegt um leið og góður andi
styrks og gefandi starfs mætti okkur.
Tilefni heimsóknar var að fá að
fræðast en einnig í því skyni að geta
um leið minnt á merkisár í sögu fé-
lagsins sem einmitt nú er 40 ára.
Aðeins verður á stóm stiklað hér enda
greint glögglega frá félaginu áður og
hinni blómlegu starfsemi þess, auk
þess sem veglegu afmælisriti eru gerð
skýr skil hér í þessu blaði. Það dylst
engum að Styrktarfélag vangefinna er
stórveldi á margan máta, í rekstri
hinna hollustu mála þó fyrst og síðast.
Félagsmenn nú eru um 1000 -
ævifélagar 100 - en stofnfundinn sátu
120 manns 23. marz 1958.
Fyrsta átakið var Styrktarsjóður
afmælisári
vangefinna sem fjármagnaður var
með gjaldi af öli og gosdrykkjum og
þar um sett lög frá Alþingi. Við
stofnun félagsins var þjónusta við
vangefna nánast engin utan þeirra
þriggja sólarhringsstofnana sem þá
hýstu um 115 einstaklinga. Nú í dag
stendur Styrktarfélagið fyrir einstak-
lega öflugu starfi svo víða og sem
tekur til flestra þátta mannlegs lífs.
Hér verður minnt á meginhluta
hins sýnilega starfs. Dagheim-
ilið Lyngás er elzt (1961), þar eru 45-
46 börn og unglingar í dagvistun.
Hæfingarstöðin Bjarkarás, starfs-
þjálfunarheimili fyrir fatlaða unglinga
frá 17 ára aldri (1971). Skipt í fimm
deildir en þar dvelja að jafnaði 40-50
einstaklingar. Þjálfunarstofnunin
Lækjarás (1981), 5 deildir einnig þar,
ætluð fötluðum einstaklingum frá 17
ára aldri. Dagdeild rekin í tengslum
við Lækjarás. Um 35 einstaklingar
njóta þar þjónustu. Vinnustofan Ás
(1981) skapar vinnuaðstöðu fyrir fólk
frá um 20 ára aldri.
Verkefni og vinnutími sniðin að
þörfum fólks og getu, framleiðslustörf
og pökkun. Um 40 starfsmenn þar.
Sambýli félagsins eru 7 að tölu og á
þeim heimilum dvelja nú 38 einstakl-
ingar.
í eigu félagsins eru sambýlin við:
Auðarstræti, Háteigsveg og Víðihlíð
- tvö en Hússjóður ÖBI á þrjú við:
Blesugróf, Barðavog og Láland.
Verndaðar íbúðir eru samtals 18 vítt
um borg þar sem 28 búa og er veitt
aðstoð starfsmanna félagsins. 5 þess-
ara íbúða á félagið sjálft, 6 eiga íbúar
sjálfir, Hússjóður ÖBI á 6 og Hús-
byggingarsj. Þroskahjálpar á eina.
Skammtímavistun er á tveim stöð-
um, í Víðihlíð 9 og í Hólabergi 86.
essi fátæka upptalning segir svo
sem lítið um það margþætta,
mæta starf sem þarna er svo víða á
vettvangi rækt afburðavel, en um-
fangið sézt einnig á fjárlagatölu
Styrktarfélags vangefinna fyrir yfir-
standandi ár sem er 258 millj.kr. og
ekki síður sézt þetta ef á það er minnt
að þarna eru um 200 starfsmenn á bak
við í 160 - 170 stöðugildum.
í ágætu spjalli við þá félaga kom
fjölmargt fram sem of langt yrði upp
að telja hér. Þeir sögðu t.d. að
rekstrarfé væri af mjög skornum
skammti og gengi erfiðlega að fá fram
sjálfsögðustu leiðréttingar. Ríkisvald-
ið tæki því miður ekki tillit til auk-
innar þyngdar og umönnunarþarfar í
kjölfarið svo augljóslega sem fyrir
öllu því hefði verið gerð grein. Þeim
þætti hart að aukning í þjónustuþátt-
um sem víða væri bráðbrýn fengist
ekki viðurkennd og félagið hefði þá
engin ráð önnur en greiða fyrir sjálft
svo skjólstæðingar fengju réttmætrar
þjónustu notið.
Þeir minntu eðlilega á makalausa
afgreiðslu Framkvæmdasjóðs fatlaðra
á sjálfsögðum beiðnum félagsins, af
350 millj.kr. úthlutun nú fengi félagið
aðeins 3 millj.kr. eða ekki einu sinni
1/100 og þá eingöngu í viðhald, ekkert
til nýframkvæmda. Meðferðin á
félaginu þar væri einstaklega slæm
með tilliti til verkaefnagnægðar og gat
undirritaður tekið undir það, hafandi
svo oft á þeim vettvangi gagnrýnt rýr-
an hlut félaga ÖBÍ í úthlutun Fram-
kvæmdasjóðs. Þeir minntu á hina
vaxandi sambýlisþörf sem væri fyrir
börn og ekki væri unnt að mæta
nægjanlega, þrátt fyrir að félagið nýtti
fjármuni sína til hins ítrasta. Þeir
greindu m.a. frá sjúkraþjálfun í
SJÁ NÆSTU SÍÐU
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
47