Íslenskt mál og almenn málfræði - 2015, Side 186

Íslenskt mál og almenn málfræði - 2015, Side 186
Fjöldi flokka er ekki föst stærð og eins og ég bendi á í bókinni gera ekki allir ráð fyrir sömu flokkum og undirflokkum (sjá einnig svar við 4. spurningu). Ég geri ráð fyrir tilteknum flokkum og máta við þá þær breytingar sem verða á vegi mínum af því að mér finnst það oft hjálpa mér að ná áttum. Það er ekki þannig að ég telji að ferlin að baki þessum flokkum séu svo skýrt afmörkuð. (Þetta er í samræmi við það viðhorf sem ég hef til tungumálsins almennt; arkítektúr manns- hugans er flókinn eða a.m.k. ekki eins einfaldur og margir vilja vera láta.) Ég hef rekist á breytingar sem eru augljóslega áhrifsbreytingar en ég á þó mjög erfitt með að setja í nokkurn af þeim flokkum sem ég geri ráð fyrir. Eftir því sem ég skoða fleiri breytingar þeim mun flóknara fyrirbæri finnst mér áhrifsbreytingar vera, eins einkennilega og það nú hljómar, og mér finnst erfitt að alhæfa nokkuð um þær. Sumar breytingar er erfitt að greina. Aðrar er auðveldara að greina, þótt stund um þurfi að hnika til skilgreiningum hugtaka. Svo eru breytingar sem er auðvelt að greina, og jafnvel á fleiri en einn hátt. Ein slík er gaf → gafði sem stundum heyrist í máli barna. Ef barn notar þátíðarmyndina gafði (og hefur aldrei heyrt hana áður) liggur beint við að segja að hér væri um dæmigerða áhrifsbreytingu að ræða, fyrirmyndin er hefur – hafði. En það mætti líka gera ráð fyrir ódæmigerðri áhrifsbreytingu (aukningu); við þátíðarmyndina gaf bætir barnið við algengri þátíðarendingu, -ði. Þótt dæmigerðar áhrifsbreytingar séu algengari en aukning, og þar með sennilegri, er ekki hægt að útiloka aukningu. Þótt barnið þekki líklega mynstrið hefur – hafði er ekki víst að það hafi myndað gafði á grundvelli þeirrar vitneskju. Ef til vill byrjaði það að segja myndina gaf (sem það hafði heyrt áður), fannst eitthvað vanta og skellti aftan á hana kunnug- legri endingu. Og kannski var tvennt að verki í einu. Barnið byrjar á kunnuglegri mynd, vill bæta við hana og styrkist í þeirri trú að það sé á réttri leið af því að það tengir sögnina í sömu andrá við mynstrið hefur – hafði. Svo má líka hugsa sér að þetta sé misjafnt milli einstaklinga. Sum börn búi til gafði á grundvelli mynsturs en önnur með því að bæta við áður þekkta mynd. Í þessu ímyndaða til- viki finnst mér hentugt að geta gripið til flokka til að átta mig á möguleikum. En flokkunin segir mér ekki hvað gerðist. 4. spurning Það virðist ekki víða fjallað um það sem kallað er rhyming formation og umfjöll- unin í handbók Hock og Joseph (1996) er ekki mjög ítarleg. Ég leitaði talsvert að meiri umfjöllun en hafði ekkert upp úr krafsinu. Þeirra dæmi snúast ekki aðeins um rím heldur einnig stuðlun. Ég túlkaði því hugtakið þannig að það gæti náð yfir fleira en rím. Á bls. 39–40 í bókinni segi ég: „Þau tilvik í bókinni sem talið er hugsanlegt að skýra megi með vísan til rímmyndunar … hafa ekki að geyma venjulegt rím (né stuðlun); t.d. rímar hvoru- augljóslega ekki við -tveggju. En þau Katrín Axelsdóttir186
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.