Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 2

Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 2
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson Hilmar Bragi Bárðarson Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM Samdráttur í flugi það sem af er apríl er 99%. Yfir páskadagana frá skír- degi og fram á mánudag fóru 99 farþegar um Keflavíkurflugvöll. Sömu daga í fyrra voru farþegaranir 84 þúsund. Sveinbjörn Indriðason, for- stjóri Isavia segir að alger óvissa sé um hvenær farþegaflug hefjist á ný. Þetta kemur fram í viðtali við hann í Morgunblaðinu. Á árinu 2019 fóru um 7,2 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll en það var 20% fækkun frá 2018. Svein- björn gerir ráð fyrir helmingi færri farþegum á þessu ári. Forstjórinn segir að aukist umsvifin ekki á næstu vikum séu fleiri störf í hættu en hjá félaginu störfuðu að meðaltali 1.360 manns í fyrra. Gert var ráð fyrir að ráða 140 sumarstarfs- menn í ár en í ljósi ástandsins er gert ráð fyrir að ráða um 70 manns. Í upphafi veiruástands sagði Isavia upp 101 starfsmanni en þeir voru aðallega í flugvernd, farþegaþjón- ustu og bílastæðaþjónustu. Þá var 37 starfsmönnum boðið að lækka starfshlutfall sitt. Sveinbjörn segir að með 4 millj- arða hlutafjáraukningu ríksisins í fyrirtækinu segir hann að hægt sé að vera störf í tilkynningu vegna aukningarinnar var sagt að 50 til 125 störf yrðu til við þessa ákvörðun. Um er að ræða ýmis verkefni sem höfðu verið lögð á ís vegna samdráttar en einnig ákveðnar vega- og flugak- brautarframkvæmdir. Í viðtalinu segir forstjórinn vera bjartsýnn á að flugumferð muni vaxa fiskur um hrygg að nýju þó flug- stöðin sé „tóm“ þessa dagana. Ljósanótt er inni en óvíst með barnahátíð og 17. júní Ekki verður ekki hægt að halda Listahátíð barna í Reykjanesbæ með sama sniði og undanfarin ár vegna fjöldatakmarkana sem miða við hámark 50 einstaklinga en verið er að skoða aðra möguleika. Sama má segja með hátíðarhöld á 17. júní. Ljóst er að þau geta ekki farið fram með sama sniði og undanfarin ár en verið er að skoða hvort hægt sé að útfæra dagskránna með öðrum hætti. Ljósanótt gæti sloppið. Samkomumum og útihátíðum þar sem fleiri en 2.000 þúsund manns koma saman má ekki halda fyrr en eftir 31. ágúst. Því væri hægt að halda Ljósanótt en dagsetning hennar miðast við fyrsta laugardag í september sem nú verður 5. sept- ember. „Nú er bara að vona að orð og vonir Þórólfs sóttvarnalæknis, um að toppnum sé náð, standist og að ekki verið bakslag þegar tilslakanir hefjast. Hvert og eitt okkar hefur mikið um að segja hvernig til tekst. Ef við höldum vöku okkar áfram, þvoum og sprittum hendur, sleppum því að heilsa og knúsa hvort annað og virðum tveggja metra regluna ætti okkur að farn- ast vel. Flugumferð verður áfram takmörkuð og atvinnuleysi á okkar svæði talsvert af þeim sökum þrátt fyrir mótvægisaðgerðir ríkis og sveitarfélaga. Vonandi náum við samt að hámarka árangur mót- vægisaðgerðanna og draga úr atvinnuleysi. Við erum bjartsýn á að frekari aðgerða sé að vænta á okkar svæði þegar ríkisstjórnin kynnir næstu aðgerðir sínar,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri Reykjanesbæjar í pistli sín- um í upphafi vikunnar. 99% samdráttur á Keflavíkurflugvelli ... frá skírdegi og fram á mánudag fóru 99 farþegar um Keflavíkurflugvöll. Sömu daga í fyrra voru farþegaranir 84 þúsund ... 2 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.