Víkurfréttir - 16.04.2020, Side 21
Royal Iceland er eina fyrirtækið hér á
landi sem stundar veiðar og vinnslu
á beitukóngi. Í fyrra veiddust 360
tonn af beitukóngi sem er soðinn í
skelinni í vinnslunni í Njarðvík og
seldur að stærstum hluta til Kína og
vesturstrandar Bandaríkjanna.
Kílóið á 20.000 kr.
Eftir beitukóngsvertíðina fer bátur
Royal Iceland á ígulkerjaveiðar í
Breiðafirðinum. Fyrirtækið hefur
sérhæft sig í hrognavinnslu úr ígul-
kerjunum fyrir sushi-markaðinn.
Lífi er haldið í ígulkerjunum alveg
fram að vinnslu sem er flókin og
vandasöm en það er eftir miklu
að slægjast því ígulkerjahrogn eru
dýrasta sjávarafurðin sem seld er
frá Íslandi. Þau eru unnin í marg-
víslegar pakkningar eftir stærð og
lit hrognanna. Dýrasta varan fer á
sushi-markaðinn og kostar nálægt
20.000 krónum kílóið. Úr hverju
ígulkeri fást hins vegar ekki nema
örfá grömm af hrognum.
Þetta eru því fimm mismunandi ver-
tíðir sem og fimm gerólíkir mark-
aðir sem Royal Iceland er að fást við.
Lúðvík Börkur segir flækjustigið hátt
en með samstilltu átaki og mikilli
reynslu hans og meðeigandanna,
Kristjáns Hjaltasonar, Jóns Magnús
Kristjánssonar og Jóns Guðmanns
Péturssonar, hefur fyrirtækið styrkt
sig í sessi og vaxið í það að halda
uppi atvinnu fyrir 20–40 manns eftir
vertíðum.
Tollfrjálst aðgengi
að Evrópu
Til þess að komast nær sínum helstu
mörkuðum í Evrópu opnaði Royal
Iceland verksmiðju í Póllandi í fyrra.
Lúðvík Börkur segir ávinninginn
af því margháttaðan. Leiðin inn á
markaðinn styttist, tollar eru ekki
lagðir á vörur verksmiðjunnar, allur
kostnaður í tengslum við aðföng sé
mun lægri og launaliðurinn er mun
lægri en menn eiga að venjast á
Íslandi.
„Við tókum strax þá stefnu að hefja
dreifingu til lítilla heildsala í stað
þess að selja til stórra innflutnings-
fyrirtækja. Það sem við fáumst við
þarna kallast á ensku „asian food
distribution“, eða dreifing á mat-
vælum fyrir asíska eldhúsið í Evrópu
með aðaláherslu á japönsku veitinga-
staðina. Saga sushi-veitingastaða í
Evrópu er ekki löng. Hún hefst
raunar ekki að ráði fyrr en í byrjun
tíunda áratugar síðustu aldar. Gömlu
rógrónu fyrirtækin í matvæladreif-
ingu í Evrópu lögðu sig ekki eftir
því að skilja flækjustigið sem fylgir
dreifingu á sushi. Það dugar til að
mynda ekki að bjóða sushi-veitinga-
stað þrjár tegundir af hrísgrjónum
því hann þarf að minnsta kosti átján
tegundir. Af þessari ástæðu varð til
alveg ný dreifingarleið innan Evr-
ópu. Alls staðar voru stofnuð sér-
hæfð „asian food distribution“-fyrir-
tæki. Sérhæfingin felst í hinu mikla
vöruúrvali,“ segir Lúðvík Börkur.
Sérhönnuð verksmiðja
Framleiðslustjóri hjá Royal Iceland
er Pólverjinn Mariusz Andruszkie-
wicz sem hefur starfað þar alveg frá
því fyrirtækið hér Bakkavör Ísland.
Reyndar eru allir millistjórnendur
Pólverjar. Það lá því beinast við að
setja upp framleiðslueiningu í Pól-
landi þar sem millistjórnendurnir
eru á heimavelli. Eftir mikla leit að
hentugu húsnæði keypti Royal Icel-
and 50 ára gamla brauðverksmiðju
í bænum Znin í Mið-Póllandi. Eitt
og hálft ár tók að endurbyggja húsið
nánast frá grunni. Vinnsla hófst þar
í fyrra. Japanskir viðskiptavinir sem
hafa skoðað verksmiðjuna hafa lokið
miklu lofsorði á hana og segja hana
vera fyrstu verksmiðjuna í Evrópu
sem er sérstaklega hönnuð til að
framleiða slíkar vörur inn á asíska
markaðinn. Framleiðslugeta verður
fimmföld á við það sem hún er í
verksmiðjunni í Njarðvík. Einkum
þrennt vinnst með því að flytja hluta
af vinnslunni til Póllands; í fyrsta lagi
mun lægri launakostnaður, minni
fraktkostnaður frá Íslandi, lægri
kostnaður í tengslum við aðföng og
tollfrjálst aðgengi að mörkuðum í
Evrópu.
„Launaliðurinn breytir auðvitað
miklu. Við getum leyft okkur að vera
í mannaflsfrekri framleiðslu eins og
makrílvinnslu. Þarna skerum við
til dæmis makrílflök í átta gramma
sneiðar og tuttugu sneiðum er raðað
í hvern bakka. Hver sneið passar
ofan á einn sushi-rétt.“
Royal Iceland er fyrirtaks dæmi um
fyrirtæki sem hefur vaxið og dafnað
í gegnum sérhæfingu í veiðum,
vinnslu og ekki síður sölu- og
markaðsmálum. Það skapar mikinn
virðisauka eftir leiðum sem á Íslandi
eru óhefðbundnar, eins og í vinnslu
hrogna úr bolfiski og ígulkerjum
og áherslu á matvæladreifingu fyrir
asíska eldhúsið í Evrópu.
Viðtalið er eftir Guðjón Guð-
mundsson og birtist í Fiskifréttum,
það er birt með leyfi blaðsins.
Japanskir
viðskiptavinir [...]
segja hana vera
fyrstu verksmiðjuna
í Evrópu sem er
sérstaklega hönnuð
til að framleiða
slíkar vörur inn á
asíska markaðinn ...
Lúðvík Börkur ásamt
Mariusz Andruszkiewicz,
framleiðslustjóra,
við þorskhrognamassa.
Verksmiðjan í Znin er sérhönnuð til framleiðslu
á matvöru fyrir japanska eldhúsið.
Royal Iceland greiðir
helmingi hærra verð
fyrir heil hrogn.
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 21