Víkurfréttir - 16.04.2020, Side 48
„Þrátt fyrir þessar skorður á tímum COVID-19 hefur fyrirtækinu þó áfram tekist að bjóða
upp á hollan og bragðgóðan mat. Almennt ríkir mikil ánægja með þessar tímabundnu
breytingar og nemendur skilningsríkir og kátir með tilbreytinguna,“ segir Jón Axelsson,
framkvæmdastjóri hjá Skólamat ehf., sem fagnaði nýlega sínu tuttugusta starfsafmæli.
Það hefur á undanförnum misserum gengið í gegnum nokkrar jákvæðar breytingar.
Fyrirtækið hefur verið í stöðugum vexti og skólaárið 2019–2020 er þeirra stærsta starfsár
til þessa. Í vetur hefur Skólamatur þjónustað allt að 12.500 manns í hádegismat og um
7.000 manns í öðrum máltíðum dagsins.
Hjá Skólamat starfa nú um 120 starfsmenn og þar af 70 á Suðurnesjum. Á síðustu mán-
uðum hafa verið gerðar breytingar á stjórnendateymi fyrirtækisins og þrír nýir starfsmenn
bæst við stjórnendahópinn.
Áskorun í þróun nýrra rétta
Rúnar Smárason var ráðinn sem yfir-
matreiðslumaður Skólamatar í nóv-
ember 2018. Rúnar starfaði áður sem
aðstoðarveitingastjóri á veitingasviði
IKEA. Rúnar er 48 ára, þriggja barna
faðir í sambúð með Heiðdísi Lilju
Magnúsdóttur. Þau búa í Garða-
bæ. „Starf mitt sem yfirmatreiðslu-
maður er mjög fjölbreytt. Ég sé um
allan daglegan rekstur á eldhúsinu og
sérfæðiseldhúsinu. Í því felst meðal
annars að huga að uppskriftunum,
sinna gæðamálum, innkaupum og
samskiptum við birgja. Við höfum
gert miklar breytingar á síðasta ári
með það að markmiði að auka gæði
hráefnanna sem við erum að nota.
Við erum alltaf að leita leiða til þess
að auka gæðin og bæta þjónustuna
til viðskiptavina okkar“ segir Rúnar
Smárason og bætir við að stærsta
áskorunin í starfinu sé að þróa nýja
rétti sem eru til þess fallnir að henta
börnum í leikskóla jafnt sem elstu
bekkjum grunnskólanna.
Fjölbreytt og lifandi starf
Sólmundur Einvarðsson hóf störf
sem lagarstjóri hjá Skólamat í maí
2019 en tók við stöðu rekstrarstjóra
í ágúst síðastliðinn. Sólmundur er
37 ára. Hann er þriggja barna faðir,
í sambúð með Elísabetu Sigurðar-
dóttur og eru þau búsett í Garð-
inum. „Þetta er ótrúlega fjölbreytt
og lifandi starf. Mín helstu verkefni
eru að sinna daglegum rekstri fyrir-
tækisins, innkaupum, birgðahaldi
og lagerstýringu. Ég skipulegg líka
hvaða magn við sendum frá okkur
og hef yfirumsjón með akstrinum.
Nemendur skilningsríkir
með breytingar
– Þrír nýir stjórnendur hafa tekið til starfa. Af 120 starfsmönnum Skólamatar
eru sjötíu Suðurnesjamenn. Sífellt verið að þróa nýja rétti.
Sólmundur, Rúnar og
Katla eru nýir stjórnendur
hjá Skólamat.
VF-myndir/pket.
48 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.