Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1967, Side 3

Íþróttablaðið - 01.02.1967, Side 3
27. árg, Reykjavík, febrúar 1967 1. tbl. Iþrótfasamband Starfsárið 1966 íþróttaþing'. íþróttaþing- var haldið 3. og 4. sept. á Isafirði. Var sá staður valinn til þinghaldsins vegna 100 ára af- mælis kaupstaðarins. Iþróttaþingið tók að venju fyrir fjölda mála er snerta íþróttahreyf- inguna og gerði margar samþykktir. Samþykktar voru lagabreytingar, þ.á.m. ákveðnari reglur um inngöngu félaga í ISl, svo og um kosninga- rétt og kjörgengi til íþróttaþings og ársþings sambandsaðila, þá var tími til að halda íþróttaþing rýmkaður og einn sambandsráðsfundur haldinn það ár sem íþróttaþing er, en tveir það ár sem eigi er íþróttaþing. Iþróttaþing þetta var eitt hið fjölmennasta sem haldið hefur verið og ríkti einhugur og samstaða í öll- um málum. Framkvæmdastjórn. 1 framkvæmdastjórn voru kosnir: Gísli Halldórsson, forseti, Guðjón Einarsson ,varaforseti, Gunnlaugur J. Briem, gjaldkeri, Sveinn Björns- son ,ritari, Þorvarður Árnason, fundarritari. Sambandsráð. Iþróttaþing kaus í sambandsráð ISl þessa menn: Jens Guðbjörnsson, Reykjavík, Óðinn Geirdal, Vestur- land, Sigurður Jóhannsson, Vestfirð- ir, Guðjón Ingimundarson, Norður- land vestra, Ármann Dalmannsson, Norðurlandi eystra, Þórarinn Sveins- son, Austurland, Þórir Þorgeirsson, Suðurland, Yngvi R. Baldvinsson, Reykjanes. Auk þessara manna á fram- kvæmdastjórn ÍSl og formenn sér- sambandanna sæti í sambandsráði. Sambandsráðsfundur. Einn sambandsráðsfundur var hald- inn á árinu I fundarsal ISl í íþrótta- miðstöðinni í Reykjavík, 2. apríl. — Á fundinum var skipt skatttekjum ISl, kennslustyrkjum og útbreiðslu- styrk milli sérsambandanna. Gerð var breyting á áhugamanna- reglum ISl á þann veg að greiða má töpuð vinnulaun vegna þátttöku í milliríkjakeppni eða keppni um Norðurlanda-, Evrópu- eða Heims- meistaratitil. Kosin var nefnd í sjónvarpsmál og gerð breyting á móta- og kepp- endareglum ISl, þar sem réttur út- lendinga til íþróttakeppni var rýmk- aður. Iþróttablaðið. Blaðið kom út tíu sinnum á árinu. Ritstjórar voru þeir sömu og áður, Örn Eiðsson og Hallur Simonarson. Áskrifendafjöldi hefur staðið í stað og er nú innan við þúsund. * Islands Slysatrygging íþróttamanna. Fáar umsóknir um bætur bárust og voru þær að sjálfsögðu afgreidd- ar. Sjóðurinn hefur vaxið og fleiri héraðssambönd gerzt aðilar að hon- um. Heiðursviðurkenningar. Framkvæmdastjórnin veitti eftir- farandi viðurkenningar og gaf þess- ar afmælisgjafir: Heiðursorðu Isl hlaut Guðmundur Sveinbjörnsson, formaður Iþrótta- Gísli Halldórsson, forseti ISl. 3

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.