Íþróttablaðið - 01.02.1967, Page 42
Bogi Þorsteinsson
Körfuknattleikur 1966
Á árlnu 1966, voru mörkuð tíma-
mót í sögu körfuknatteliksins hér
á landi. Fyrstu landsleikirnir á
heimavelli, fjórir landsliðssigrar á
árinu, auk sigurs yfir tveim banda-
riskum háskólaliðum. Árangur ,sem
erfitt verður að jafna, eða komast
fram úr.
Stjórn KKÍ var þannig skipuð
fram að ársþingi í nóvember: Bogi
Þorsteinsson form., Magnús Björns-
son varaform., Gunnar Petersen fé-
hirðir, Þráinn Scheving fundarritari,
Helgi Sigurðsson bréfritari, Ásgeir
Guðmundsson form. útbr.nefndar og
Guðjón Magnússon form. laga- og
leikreglnanefndar.
Á ársþinginu í nóvember gengu úr
stjórninni þeir Guðjón og Ásgeir, en
í stað þeirra voru kjörnir Agnar
Friðriksson og Hallgrímur Gunnars-
son.
Sérstakur framkvæmdastjóri var
ráðinn til að sjá um framkvæmd Is-
landsmótsins, en það var Guðmund-
ur Þorsteinsson form. KKDl. TJt-
breiðslunefnd réði einnig sérstakan
framkvæmdastjóra, en það var Þór-
arinn Ragnarsson Iþróttakennari.
Fimm ára afmæli KKl var haldið
hátíðlegt með fagnaði í Tjarnarbúð
að kvöldi 30. jan. Var það hinn bezti
fagnaður, enda hafa landslið okkar
sigrað Skota I landsleikjum bæði
þann 29. og 30. og færði liðið því
sambandinu tvöfaldan sigur I af-
mælisgjöf.
Landsliðsmerki KKl voru I fyrsta
skipti afhent í afmælishófinu og
ennfremur var formaður sambands-
ins sæmdur gullmerki KKl og varð
hann fyrstur manna til að hljóta
þann heiður.
Tveir landsleikir við Pólland.
Eitt af sterkustu körkuknattleiks-
liðum í heimi, landslið Póllands var
í keppnisför um Bandaríkin í jan.
s. 1. Þar sigruðu Pólverjar mörg
sterk bandarísk háskólalið og einnig
Frakka í landsleik í New York.
Það má því segja að stjórn KKl
hafi ekki valið af verri endanum, er
hún þáði boð People to People, um
að Pólverjarnir léku hér tvo lands-
leiki á heimleiðinni. Kostnaður KKl
átti að vera 350 dollara greiðsla fyrir
hvorn leik, svo og allt uppihald.
Stjórn KKl taldi að litlar likur væru
fyrir að halli gæti orðið á þessari
heimsókn.
Því miður varð aðsókn að þess-
um tveim fyrstu landsleikjum á
heima leikvelli svo léleg, að stórkost-
legur halli varð á heimsókninni. Að
vísu var veður ekki sem bezt leik-
dagana, en hitt mun hafa ráðið
meiru, að styrkleiki hins pólska liðs
var slegið mjög upp í fréttum. Getur
stjórn KKl ef til vill kennt sjálfri
sér um þann fréttaflutning.
Eins og við var að búast, sigruðu
Pólverjarnir auðveldlega fyrri dag-
inn, eða með 91:44. Voru leikmenn
þeirra bæði hávaxnari og leikvanari,
en hið íslenzka lið.
Síðari leikurinn var mikið betur
leikinn af okkar mönnum, heldur en
sá fyrri. Virtist nú feimnin vera far-
in af heimamönnum og þurftu Pól-
verjamir að berjast fyrir hverju
stigi. Var leikurinn skemmtilegur og
vel leikinn af beggja hálfu, lauk
honum með sigri Pólverja 68:43.
Afmœlisleikir við Skotland.
Þann 29. jan. s. 1. varð Körfuknatt-
leikssambandið 5 ára og hugðist nú
stjórn KKl halda afmælið hátiðiegt
með landslelkjum við lið, sem við
stæðum nokkurnveginn jafnfætis.
Urðu Skotar fyrir valinu, en Island
hafði eitt sinn áður leikið gegn Skot-
um, veturinn 1962 I Skotlandi, en þá
sigruðu Skotar naumlega.
Þeir samningar tókust við Körfu-
knattleikssamband Skotlands, að
skoska landsliðið léki hér tvo lands-
leiki, en KKl greiddi uppihald og
ferðakostnað að hálfu.
Skotar komu til Reykjavíkur 28.
janúar en fyrri leikur þeirra átti að
fara fram laugardaginn 29. jan, kl.
16.00.
Á laugardagsmorgun var komið
aftakaveður I Reykjavík, með svo
miklu roki, að þök tók af húsum,
en svo til öll umferð um borgina
stöðvaðist. Var svo komið, að
skömmu áður en leikurinn átti að
hefjast, lögðust strætisvagnaferðir
niður um borgina.
Þrátt fyrir þetta óveður mættu
um 300 áhorfendur á leiknum. Leik-
urinn var vel leikinn af okkar mönn-
um og sigur hins íslenzka liðs aldrei
í verulegri hættu.
Leiknum lauk með sigri Islands 65
gegn 46.
Daginn eftir fór síðari leikurinn
fram. Veðrinu hafði að vísu slotað
nokkuð, en var þó hvergi nærri gott,
áhorfendur voru sárafáir eins og
fyrri dagixm.
Island bar einnig sigur úr býtum
í þessum leik og færðl íslenzka lands-
liðið þannig KKl 2 landsliðssigra í
afmælisgjöf.
Urslitatölur síðari landsleiksins
gegn Skotum voru 66:43.
Stjóm KKl hafði ákveðið að bjóða
Þorsteini Hallgrímssyni, sem stundar
nám í Kaupmannahöfn, heim til að
leika þessa tvo landsleiki gegn Skot-
um. Þorsteinn þáði boðið og má full-
yrða að leikur hans með liðinu átti
drjúgan þátt £ sigri Islendinga.
Um kvöldið, eftir slðari landsleik-
inn, sátu bæði liðin virðulegt kvöld-
verðarboð Menntamálaráðuneytisins
undir stjóm Knúts Hallssonar deild-
arstjóra. Var það hinn bezti fagn-
aður.
Síðara kvöldið var haldin afmæl-
42