Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1967, Síða 32

Íþróttablaðið - 01.02.1967, Síða 32
leik og eins marks munur gefur ekki rétta hugmynd um gang leiksins, en Sigurður Dagsson stóð sig enn einu sinni afburðavel í marki Vals — þótt svo sigurmark KR verði algerlega að skrifast á hans reikning. En allir eru mannlegir og eitt er víst, að Sig- urður Dagsson var fremsti knatt- spyrnumaður okkar s.l. sumar. Valsmenn komust i úrslit með því að sigra Akureyri og Þrótt, heldur auðveldir leikir hvort tveggja fyrir Val. Þróttur komst í undanúrslit með því að sigra ísfirðinga, og Keflvík- ingar með þvi að sigra Fram — en Fram-liðið var vægast sagt óheppið að tapa þeim leik. Bikarkeppni Knattspyrnusambands Islands hófst 1960 og í fimm fyrstu skiptin sigraði KR eins og áður hef- ur komið fram. Valur sigraði 1965 og KR svo aftur 1966. Einn leik- maður KR, Bjarni Felixson, hefur leikið alla bikarleiki liðsins frá upp- hafi — og því orðið bikarmeistari sex sinnum. Ellert Schram hefur einnig verið með í þau sex skipti, sem KR hefur sigrað, þótt hann hafi hins vegar ekki leikið alla bikarleiki A-liðs KR eins og Bjarni. 1. umferð: Þróttur b—I.B.K. b 3—2 F.H.—l.A. b 3—1 I.B.I.—Þór 3—2 Víkingur—Fram b 3—1 Fram a—Breiðablik 5—1 Valur b—Selfoss Valur vai K.R. b—l.B.S. K.R. vann Týr—Haukar 1—0 umferð: K.R. b—Víkingur 1—0 I.B.l.—Þróttur b 2—0 F.H.—Týr 2—0 Fram a—Valur b 4—2 umf erð: Í.B.l.—K.R. b 2—1 Fram a—F.H. 4—2 umf erð: Þróttur a—l.B.Í. 4—2 K.R.—I.A. 10—0 Valur—I.B.A. 3—1 I.B.K.—Fram 1—0 umferð: Valur—Þróttur 5—0 K.R.—I.B.K. 3—0 Ú'rslitaleikur: K.R.—Valur 1—0 Aukaleikir Meistaraflokks: Reykjavík—Akranes 3—1 Reykjavík—Keflavík 1—0 Valur-tírv. íþr.fréttam. 4—6 Dundee Utd.—Fram 7—2 Dundee Utd.—K.R. 4—0 Dundee Utd.—Úrval 6—0 Norwich City—l.A. 6—1 Norwich City—Úrval 2—1 Norwich City—I.B.K. 3—2 Landslið—Pressulið 4—2 Island—Danmörk 0—3 FBU—K.R.R. úrval 8—1 Í.B.A.—Danmörk 1—5 FBU—K.R. 4—2 FBU—Úrval 2—1 Sportclub 07—l.B.K. 2—5 Sportclub 07—Úrval 2—3 Sportclub 07—K.R. 1—4 Island—Wales 3—3 Valur—Standard Liege 1—1 Standard Liege—Valur 8—1 K.R.—Nantes 2—3 Island—Frakkland 0—2 Nantes—K.R. 5—2 För unglingalandsliðsins til Noregs. Norðurlandamót unglinga í knatt- spyrnu 1966 var háð í Horten í Noregi og nágrannabæjum 10. til 16. júlí. Horten er frægur íþróttabær og stendur við Oslóar-fjörð. Fararstjórar með íslenzka hópn- um voru Haraldur Snorrason, Jón B. Pétursson og Alfreð Þorsteins- son. Auk þess var með í förinni þjálfari liðsins, Guðmundur Jónsson. Hópurinn hélt utan síðdegis laug- ardaginn 9. júlí með Flugfélags-vél og var flogið án viðkomu til Oslóar, en þar tók ritari norska knattspyrnu- sambandsins á móti hópnum. Var síðan ekið með áætlunarbifreið til Horten og komið þangað seint um kvöld. Bjuggu öll þátttökuliðin í sjómannaskóla í Borre, sem er í næsta nágrenni við Horten. Þegar þangað var komið, tók á móti hópn- um skólastjóri verzlunarskólans í Horten, Nils Albrecht, og var hann leiðsögumaður íslenzka hópsins á meðan á dvölinni í Noregi stóð. Fyrir utan Norðurlandaþjóðirnar 5 tóku Pólverjar þátt í mótinu. Lönd- unum var skipt í 2 riðla og lék Is- land í riðli með Svíþjóð og Póllandi. Leikurinn gegn Pólverjum. Fyrri leikur Islands var gegn Pól- verjum og fór hann fram í Horten sunnudaginn 10. júlí. Veður var skín- andi gott, mátulega heitt og smá gola. Það er skemmst frá þvi að segja, að Pólverjar unnu leikinn með 5—0, sem norsku blöðin kölluðu „at- vinnumanna-knattspyrnu", enda voru Pólverjarnir mjög góðir. 1 fyrri hálf- leik skoruðu þeir fjögur mörk, en í síðari hálfleik höfðu ísl. piltarnir átt- að sig á leikaðferð þeirra og skor- uðu Pólverjar þá aðeins 1 mark. Þrátt fyrir slæmt tap, var leikur ísl. liðsins að mörgu leyti góður. Pilt- arnir áttu mörg góð tækifæri, sem því miður nýttust ekki, og leikskipu- lag þeirra var til fyrirmyndar, sér- staklega í síðari hálfleik. Að áliti flestra, sem sáu leikinn, var munur- inn of stór, en hér sannaðist það enn einu sinni, að fyrsta raunin er erfiðust, það máttu íslenzku pilt- arnir reyna á móti Pólverjum, sem dvalið höfðu mánuðum saman í æf- ingabúðum og höfðu marga lands- leiki að baki, en það er önnur saga. Almennt var það álitið eftir þennan leik, að ekkert gæti hindrað Pól- verja í því að sigra í mótinu. Og sú varð raunin. Islenzka liðið í þessum leik var skipað eftirtöldum leikmönnum: Magnús Guðmundsson, Arnar Guð- laugsson, Halldór Björnsson, Sigur- bergur Sigsteinsson, Sævar Sigurðs- son, Pétur Carlsson, Kjartan Kjart- ansson, Samúel Erlingsson, Elmar Geirsson, Alexander Jóhannesson og Sigmundur Sigurðsson. 1 siðari hálf- leik skipti Alexander út af fyrir Ás- geir Ellasson og Ólafur Valgeirsson kom inn fyrir Sigmund, sem meidd- ist smávegis. Leikurinn gegn Svíum. Leikurinn gegn Svíum var háður í Larvík þriðjudaginn 12. júlí, og þessi leikur varð talsverð uppreisn fyrir íslenzka liðið, því jafntefli varð, 0— 0, og áttu víst fæstir von á því, en Svíar voru taldir næststerkastir þeirra þjóða, sem tóku þátt í mót- inu. Til samanburðar má geta þess, að siðar gerðu Svíar jafntefli við Pólverja og unnu Norðmenn í keppni um 3. og 4. sæti með 5—0. Leikur íslands og Svíþjóðar var Framh. á bls. 38. 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.