Íþróttablaðið - 01.12.1986, Síða 15

Íþróttablaðið - 01.12.1986, Síða 15
Sterkasti maður heims tók á þrátt fyrir meiðslin og keppti með bros á vör - reyndi að velta bílun- um með annarri hendinni en sleit þann upphandleggsvöðva líka. Eftir næstu grein varð hann að hætta keppni. Sannarlega leiðinleg endalok því Finn- inn var verðugur keppinautur efstu manna og hefði getað blandað sér í toppbaráttuna ef hann hefði ekki slitið upphandleggsvöðvana. KROSSFESTINGARLYFTA í þessari grein komst „skógarbjörn- inn“ Grizzly loksins á blað meðal fremstu manna en hann hélt hinum 12.5 kílóa þungu kampavínsflöskum lengst uppi með útréttum örmum. Jón Páll varð annar og því kominn með 37 stig en Capes varð sjötti og því með 33 stig alls. Þriðji í þessari grein varð hins vegar Frakkinn Bruael. REIPTOG Nú var komið að Jóni Páli að láta í minni pokann fyrir Capes en þeir kepptu til úrslita í reiptoginu. í fyrstu atrennu dró Jón Páll, Grizzly út í vatn- ið en okkar maður varð að súpa á er Capes vann úrslitaviðureignina. Stað- an: Jón Páll 44 stig, Capes 41 stig. RÉTTSTÖÐ ULYFTA Sérgrein Jóns Páls. Lyftan var fólgin í að bátur var hlaðinn með sandpokum en keppendur áttu að lyfta afturenda bátsins líkt og um réttstöðulyftu væri að ræða. Öruggur sigur hjá Jóni Páli og 52 stig í höfn en Capes varð annar og tryggði sér þar með 48 stig. Wold- ers varð þriðji í þessari grein. TUNNUHLEÐSLA Síðasta greinin og Jóni dugði fjórða sætið til sigurs, færi svo að Capes ynni greinina. Að þessu sinni átti að hlaupa með fimm 100 kílóa tunnur um 30 metra vegalengd upp í móti og hlaða þeim á vagn. Jón Páll tölti við hlið Capes sem tók mikinn sprett í byrjun en undir lokin gaf Jón Páll í og lauk einn við að hlaða hinum fimm tunnum á vagninn. Capes örmagnaðist eftir þriðju tunnuna en Jón Páll gaf sér góðan tíma til þess að spjalla við áhorf- endur áður en hann spretti úr spori og vann titilinn „Sterkasti maður heims“. Jón Páll 8 stig, Capes 7 stig og Dusko frá Kanada 6 stig. ÚRSLITIN Jón Páll Sigmarsson sigraði örugglega í keppninni með 59 stig, Capes varð annar með 55 stig og Wold- ers varð þriðji með 37 stig. Síðan komu, Dusko, Bruael, Wallace, Num- ™7Ífy-T w JB l mm 1 1 1 --- Á f ‘"''l Mgiw f 1 B , • ".. f ' I f| m Ch 7/r> 1 isto og Grizzly rak lestina. Jón Páll stóð því með pálmann í höndunum á pálmaprýddri strönd Miðjarðarhafsins. Titillinn var aftur kominn í öruggar hendur „ísmannsins" frá íslandi. Hjalti „Ursus" Árnason ásamt Jóni Páli. Capes lyftir steini upp á tunnu. Takið eftir því hve kappinn er líkur Brútusi í Stjána-Bláa myndunum. Það er eng- in tilviljun að Capes hefur farið með það hlutverk oftar en einu sinni. Finnska hörkutólið Numisto lyftir steininum en slítur upphandleggs- vöðva. Ab Wolders — Hollendingurinn sterki í glímunni við 200 kg sekkinn. Það þarf talsvert af súrefni í 171 kílóa skrokk. Grizzly er hér að niðurlotum kominn. 15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.