Íþróttablaðið - 01.12.1986, Síða 27

Íþróttablaðið - 01.12.1986, Síða 27
Karl Gauti Grétarsson formaður Kar- atesambands íslands. Næsta stórmót sem við verðum þátt- takendur í verður Evrópumeistaramót- ið í Glasgow í maí. Enn er óákveðið hversu margir íslenskir keppendur verða sendir — fer það allt eftir íjár- hagsstöðu sambandsins. Þegar líður að stórmóti er töluvert álag á væntan- legum keppendum því auk þess að æfa með sínu félagi bætast landsliðsæfing- ar við og álagið eykst. Einnig er það mjög einstaklingsbundið hvernig æft er en áhugi okkar landsliðsmanna er mjög mikill. Árangur okkar á síðustu Evrópumótum hefur verið þokkalegur — Árni náði 10. sæti í kata 1985 og 11. sæti síðastliðið vor. Hann hefur alla burði til þess að ná enn betri árangri á næsta móti. Annars eigum við mjög góða möguleika gegn mörgum Evr- ópuþjóðum og gefur árangur á Norð- urlandamótum ekki rétta mynd af stöðu karate á íslandi miðað við aðrar Evrópuþjóðir. Norðurlandamótin eru gífurlega sterk á heimsmælikvarða og eru Svíar og Finnar mjög framarlega. ÆSKILEGTAÐ SENDA SVEIT í KEPPNI Það sem er töluvert mikilvægt þegar keppt er á stórmóti sem Norðurlanda- móti er að keppa í sveit. Þá eru 5 menn í hverri sveit, öll lönd keppa innbyrðis og hver maður fær þrjá bardaga. í ein- staklingskeppninni er hins vegar um útsláttaríyrirkomulag að ræða og falla þá margir út eftir eina viðureign. Marg- ir keppendur ná því aldrei að komast í gang því þeir fá bara eina keppni. Við áttum þess ekki kost að senda sveit á Norðurlandamótið sökum fjárskorts og vildum við gefa þeim sem á uppleið eru tækifæri til þess að vera með. Það er ekki eingöngu hægt að hugsa um þá sem eru lengra komnir. í framtíðinni ætlum við að leggja mikla áherslu á landsliðið og reyna að vera með á öllum stórmótum. Tak- markið er að senda 3-4 keppendur á Evrópumeistaramótið — en draumur- inn er síðan að eiga keppanda á heims- meistaramóti. Ef Árni er í 10. sæti í sín- um þyngdarflokki í Evrópu í kata á hann hæglega að geta náð sama ár- angri á heimsmeistaramóti. VIRÐING AÐ AUKAST FYRIR LANDSLIÐINU Landsliðshópurinn hefur saman- staðið af 5 einstaklingum og eru nokkrir aðrir ekki langt frá því að vinna sér sæti í hópnum. Við höfum haft það markmið að taka ekki marga inn í landsliðið, heldur byggt það á fáum góðum einstaklingum. Þannig fáum við virðingu fyrir landsliðinu og iðkendum þykir eftirsóknarvert að komast í landsliðið. Atli landsliðsþjálf- ari hefur staðið sig sérstaklega vel hvað þetta varðar og hefur honum tek- ist að fá fólk til að leggja sig fram og sýna metnað til þess að standa sig fyrir íslands hönd. í framtíðinni ætlum við að reyna að fá landskeppni við hinar og þessar þjóðir sem standa okkur helst ekki framar. Það er ekki ánægjulegt að vera sífellt að etja kappi við þjóðir sem eru okkur sterkari", segir Karl Gauti. Áhugi fyrir karate á íslandi er alltaf að aukast og eru iðkendur íþróttarinn- ar um 1000 talsins. Um 14 karatefélög eru starfrækt á Iandinu en aðeins 8-10 þeirra eru mjög virk. Á íslandi er iðkað Shotokan karate og Goju Ryu. Munur- inn felst í því að í Goju eru hreyfingar hægar og snöggar á víxl en í Shoto- kan byggist íþróttin á snöggum og sterkum hreyfíngum. Áhugi fyrir íþróttinni er mestur á suðvesturhorni landsins en það sem stendur íþróttinni fyrir þrifum úti á landi er skortur á hæfum þjálfurum. Iðkendur karate á íslandi eru á aldrinum sex ára til sextugs og hafa allir jafngaman af íþróttinni. Við bjóðum verðlaunapeninga fyrir allar íþróttagreinar, og sér hannaða verðlaunapeninga fyrir hverskyns tækifæri og tímamót. Einnig hverskyns minnis- peninga, barmmerki, lyklakippur. Höfum einnig ávallt til sölu mikið úrval bikara og verð- launagripi. Þegar met falla skulu verðlaun veitt íf n>on Ht AUÐBREKKU4 - 200 KÓPAVOGUR SÍMI 4 32 44 27
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.