Íþróttablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 53
Valur Ingimundarson
Valur í góðum höndum lærisveina
sinna.
STIGAMET í
ÚRVALSDEILDINNI
SÍÐUSTU4ÁR
Áður en þetta keppnistímabil hófst
hafði Valur leikið um 300 deildarleiki
með UMFN á 7 árum. í þessum leikjum
hafði hann skorað rétt tæp 2500 stig
samtals. Valur hefur verið stigahæsti
leikmaður úrvalsdeildar síðustu 4 árin.
Og sett stigamet í öll skiptin. Ótrúieg
velgengni hjá honum og UMFN-liðinu
sem hefur verið íslandsmeistari mörg
síðustu ár. í haust gerðist það síðan að
Valur var beðinn um að taka að sér
þjálfun Njarvíkurliðsins. Hann þvertók
fyrir það í byrjun en gaf sig svo. En
hvernig hefur svo gengið?
„Þetta hefur gengið mjög vel. Vissu-
lega er þetta erfiðara, að vera bæði
leikmaður og þjálfari en ég liðstýri ekki
í leikjum og það munar mikið um það.
Júlíus Valgeirsson, fyrrum leikmaður
UMFN sér um þá hlið. Það er helst á
æfingum sem þetta háir mér eitthvað.
— Nú eru þetta mikið til strákar
sem þú hefur leikið með síðustu ár.
Hvernig taka þeir þér?
„Þeir hafa tekið mér mjög vel enda
voru það þeir sem óskuðu eftir því að
ég tæki við þjálfun liðsins."
— Hvað með gengi liðsins í úrvals-
deildinni?
„Ég er mjög ánægður með það. Við
erum í efsta sæti ásamt Keflvíkingum
og erum búnir að ná okkur á strik aft-
ur eftir tvo tapleiki í röð, gegn Val og
ÍBK. Ég verð að segja eins og er að
mér fannst liðið fá óréttláta gagnrýni
eftir þessi töp. „Ferlega eru Njarðvík-
ingar orðnir slappir". Þetta fékk maður
og heyra. Það er stundum eins og við
séum aldrei góðir nema vera mörgum
stigum yfir. En maður verður að taka
þessu eins og öðru mótlæti og við
verðum í baráttunni um íslandsmeist-
aratitilinn ásamt Val og ÍBK. Það hefur
verið mikill stígandi hjá Keflvíkingum
en ég bjóst við þeim sterkum og þessi
slæma byrjun þeirra kom mér einnig á
óvart. En þeir eru í mikilli sókn.“
— Hvað með þig sem leikmann.
Hefurðu breyst, gegnirðu sama hlut-
verki og áður?
„Ég hef ekki skorað eins mikið und-
anfarin ár. Ósjálfrátt fær maður svona
tilfinningu þegar maður er orðinn
þjálfari. Nú hef ég meiri áhuga á að ná
miklu út úr strákunum."
Það er óhætt að segja að Valur sé
óformlegur atvinnumaður því auk þess
að þjálfa m.fl. er hann með 2„ 3., 4. og
5. flokk drengja. Og eins og í meistara-
flokki gengur yngri flokkum félagsins
einnig mjög vel. „Það er mjög
skemmtilegt að vera með yngri strák-
ana, áhuginn er geysimikill.“
SPRIKLAR I 4. DEILD-
INNI í KNATTSPYRNU
Á sumrin þegar hlé er gert á úrvals-
deildinni hefur Valur tekið upp knatt-
spyrnuskóna og spriklað með 4. deild-
arliði Hafna í íslandsmótinu. „Ég lék
með liðinu sumarið ’84 og ’85. Spilaði
sem senter og gekk ágætlega. Reyndi
svo fyrir mér hjá 2. deildarliði UMFN í
sumar en lék aðeins 3 Ieiki. Meiddi mig
á ökla og lék ekki meira með. Legg
sennilega knattspyrnuskónum því ég
tek ekki séns á því að meiða mig aft-
ur.“
Framundan hjá Val Ingimundarsyni,
yngsta þjálfara í úrvalsdeildinni er
körfubolti og meiri körfubolti. „Það er
mikil framför í íþróttinni en fyrirkomu-
laginu í deildinni verður að breyta.“
Ég gat ekki truflað Val lengur.
Klukkan var langt gengin í sjö en þá
áttu leikmenn að hittast fyrir Ieikinn
þetta kvöld. Ég spurði hann hvort
hann væri aldrei kvíðinn fyrir leiki?
„Jú, ég er yfirleitt kvíðinn fyrir þessa
erfiðari leiki. En það hverfur um leið
og maður kemur inn á. Það gæti þá
orðið öðruvísi í kvöld því ég verð ekki í
byrjunarliðinu. Ég hef nefnilega ekki
tekið á af fullum krafti á æfingum síð-
ustu daga vegna smávægilegra meiðsla
sem hafa hrjáð mig. Ferlega harður
þessi þjálfari maður.“...
53