Íþróttablaðið - 01.12.1986, Page 18
Af hveiju valdi ég handboltann? Það
kom hreinlega ekkert annað til greina
þetta er sennilega í blóðinu. Afi minn
Þorgils Guðmundsson var íþrótta-
kennari i Reykholtsskóla, móðurbróðir
minn Birgir Þorgilsson var í fyrsta
landsliðinu í handbolta, föðurbróðir
minn Einar Mathiesen var formaður
Handknattleiksdeildar FH og svo spil-
aði mamma handbolta með ÍR í gamla
daga. Ég minnist þess þegar ég fór sem
smá patti í Höllina með mömmu og
pabba. Þá voru átrúnaðargoðin í hand-
boltanum Geir Hallsteinsson, Birgir
Björnsson, Örn Hallsteinsson og fleiri
góðir menn og því leiddi það að sjálfu
sér að ég fór að æfa handbolta með FH
þegar ég var tíu ára.“
Það er Þorgils Óttar Mathiesen
handknattleiksmaður í FH sem hefur
orðið. Aðeins 24 ára að aldri hefur
hann náð þeim árangri að vera einn
fremsti afreksmaður okkar íslendinga
á sviði handknattleiks og á nú yfir 200
meistaraflokksleiki að baki, um 120
landsleiki og hefur undanfarin fimm ár
verið fastur leikmaður í landsliðinu.
Nú gegnir hann stöðu íyrirliða hjá
landsliðinu og hefur að sögn kunnugra
aldrei verið betri. Þorgils er yngstur
þriggja barna hjónanna Sigrúnar og
Matthíasar Á Mathiesen. fþróttablaðið
heimsótti Þorgils,og spjallaði við hann
dagstund. Þá vár hann önnum kafinn
við lokaritgerð sína í viðskiptafræði við
Háskólann en Þorgils lýkur væntan-
lega námi sínu núna um áramótin.
„Ég ætti í rauninni að vera búinn
með viðskiptafræðinámið núna en
námið hefur orðið dálítið út undan á
þessu ári vegna handboltans," segir
hann og brosir afsakandi um leið og
hann býður blaðamanni upp á kaffi á _
vistlegu heimili foreldra sinna. Við hefj-
um spjallið og talið berst aftur að upp-
hafi þess að Þorgils byrjar í handbolí-
anum.
.¥
18