Íþróttablaðið - 01.12.1986, Page 20
,Mér þykir vænt um bæinn minn Hafnarfjörð og vil ég veg hans sem mestan.
fremstu röð. Það kostaði að vísu sínar
fórnir og þegar ég fór í Versló komst
ekkert annað að en handboltinn og því
varð maður af öllu félagslífi í skólan-
um. Tíminn fór í námið, æfingar á
kvöldin og leiki þess á milli. Ég hef líka
alla tíð verið mjög samviskusamur við
æfingar og leiki og tekið hlutverk mitt
alvarlega — enda kemur ekkert annað
til greina ef árangur á að nást.“
LÍNAN HENTAÐI
MÉRVEL
Við víkjum talinu að hinu unga liði
FH sem Þorgils tók m.a. þátt í að
byggja upp undir handleiðslu Geirs
Hallsteinssonar. Samstarf þeirra Krist-
jáns Arasonar ber á góma og ég spyr
hvort ekki hafi myndast rígur eða sam-
keppni milli þeirra tveggja sem óneit-
anlega hafa verið mest áberandi meðal
leikmanna FH hin síðari ár.
„Við Kristján byrjuðum saman á
unglingsárunum í handboltanum. Þá
var Kristján þegar orðinn mjög hávax-
inn og örvhentur að auki og þess má
geta til gamans að hann var þá ung-
lingalandsliðsmaður í körfuknattleik
og æfði jafnframt hástökk. Kristján er
einu ári eldri en ég og því æfðum við
ekki alltaf saman til að byrja með og
það var ekki fyrr en í 2. flokki að sam-
starf okkar fór að vera áberandi. Nei,
ég vil ekki segja að það hafi ríkt sam-
keppni á milli okkar. Ég þurfti á Krist-
jáni að halda til þess að gefa boltann
inn á línuna og því var betra að hafa
hann góðan,“ segir Þorgils og brosir.
Vel á minnst — af hverju valdir þú
að spila á línunni?
„Sumir vilja segja að þeir lélegustu
séu jafnan settir á línuna," segir Þor-
gils og aftur er stutt í brosið. „En línan
hentaði mér vel, ég var grannur og létt-
ur og einhvern veginn þróaðist þetta
smám saman. Ég þótti góður sem línu-
maður og þess vegna einbeitti ég mér
að því hlutverki. Ég hafði metnað fyrir
minni stöðu í liðinu og var ákveðinn í
að standa mig þar og þar hef ég haldið
mig síðan og ekki séð eftir því.“
Eins og komið hefur fram var Þor-
gils Óttar ungur valinn í landsliðið eða
aðeins 19 ára gamall
„Það koma mér töluvert á óvart að
vera valinn í landsliðið. Ég hafði spilað
einn vetur með meistaraflokki FH en
hafði reyndar áður spilað nokkra
landsleiki með landsliði 18 ára ogyngri
og 21 árs og yngri. Á þessum tíma voru
Ólafur H.Jónsson og Björgvin Björg-
vinsson að hætta með landsliðinu og
því opnaðist möguleiki fyrir mig að
taka við þeirra hlutverki á línunni. Ég
þótti efnilegur línumaður og því var ég
valinn til æfinga."
Hvernig var að koma inn í landslið-
ið?
BOGDAN SVÍFST
EINSKIS
„Þetta var allt mjög framandi fyrir
mig. Það er töluvert öðruvísi að spila
með landsliðinu og það gilda allt aðrar
reglu þar. Það hefur komið fyrir að
miðlungsleikmaður með félagsliði hef-
ur komið mjög vel út með landsliðinu
og toppmaður með félagsliði hefur aft-
ur á móti komið illa út með landslið-
inu. Þetta voru góðir strákar sem gam-
an var að vinna með og andinn i liðinu
er alveg einstakur. Þar gleymist allur
rígur sem ber á í deildinni og allir leggj-
ast á eitt og vinna sem ein heild.“
Hvað með Bogdan? Nú hefur hann
þótt harður húsbóndi og umdeildur
þjálfari?
„í mínum huga er Bogdan maður
20