Íþróttablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 35
lékum við þokkalega. Ef til vill var það
líka sökum þess að við áttum ekki
möguleika á neinum titlum og lékum
án allrar pressu. Við höfðum allt að
vinna og engu að tapa.“
Gústi gat þó ekki neitað því að hann
var ánægður með sína frammistöðu
enda fleytti hún honum á toppinn - í
A-landsliðið. „Þetta var í fyrsta sinn
sem ég spila með A-landsliðinu og ég
er nokkuð ánægður með minn hlut -
miðað við það að leika í nýrri stöðu.
Staða varnarmanns er auðveldari að
mínu mati en staða tengiliðs hvað
tækni og úthald varðar. En það sem
má aldrei bregðast er einbeitingin -
hún verður að vera 100% allan leikinn.
Ein smá mistök geta verið afdrifarík. í
síðasta leik okkar í haust gegn Austur-
Þjóðverjum háði leikæfmgin okkur
áhugamönnunum töluvert. Það er erf-
itt að spila erfiðan landsleik eftir mán-
aðar hvíld frá deildarkeppni. Það sem
er jákvætt við að vera í Iandsliðinu er
að nú hefur maður að einhverju að
stefna. Á æfingum hugsar maður allan
tímann um að leggja sig fram því mikið
er í húfi að halda sér í liðinu. Það er
virkilega gaman að standa í þessu þeg-
ar vel gengur. Mér þótti mjög gaman
að kynnast leikmönnum annarra liða í
landsliðinu og hef ég eignast vini í
gegnum það. Fótboltinn í heild sinni
og íslandsmótið verður mun persónu-
legra fyrir vikið. Nú kem ég til með að
líta öðrum augum á andstæðinga. Því
miður missa margir af þessari tilfinn-
ingu því ekki komast allir í landsliðið
en það er ánægjulegt að hafa kynnst
leikmönnum annara liða svona vel.
Þetta eru allt sömu félagarnir - hvort
sem þeir eru í KR eða öðrum liðum.
OFT SPURNING
UM HEPPNI
Ég var aldrei búinn að gera mér
miklar vonir um að fá að leika með
landsliðinu því samkeppnin um mið-
vallarstöðurnar er svo gífurlega mikil.
Ef Gordon Lee hefði ekki fært mig í
vörnina hjá KR hefði ég líkast til aldrei
leikið landsleik. Fótboltinn er svo til-
viljunarkenndur og oft á tíðum er
þetta spurning um heppni. Jú, - líkast
til er ég betri varnarmaður en miðju-
maður, það kemur best í ljós núna. Nú
hef ég leikið 8 landsleiki og finnst mér
Ágúst Már
ég frekar vera að sækja í mig veðrið
heldur en hitt. Annars er gaman að
finna það hvað reynslan hefur mikið að
segja í fótboltanum. Ég finn það svo
vel frá ári til árs.“
Fyrir landsleikinn gegn Austur-
Þjóðverjum æfðu flestir okkar áhuga-
menn með liðum í Þýskalandi og urðu
það hlutskipti Gústa og Gunnars Gísia-
sonar að æfa með Borussia Dortmund
sem leikur í Bundesligunni. Félagarnir
æfðu þar í 12 daga og hvað ætli Gústi
segi um atvinnumennina sem leika í
einni erfiðustu deildarkeppni heims.
„Satt best að segja fannst mér 2-3 leik-
menn virkileg góðir - hinir eru ekkert
betri en okkar bestu l.deildarleik-
menn. Leikmenn í Bundesligunni eru
ekki eins góðir og flestir halda - enda
höfum við verið að sjá þá leika í sjón-
varpinu að undanförnu. Þeir eru betri
skotmenn og hafa meiri hraða en við
enda mikið lagt upp úr því. En samt
sem áður fer enginn útlendingur í lið í
Bundesligunni nema vera betri en sá
innfæddi sem er að keppa um sömu
stöðu. Það var góð reynsla að kynnast
þessu en nú ber ég ekki eins mikla
virðingu fyrir þessum körlum."
ALLTAF VERIÐ HÁLF-
GÓÐUR VIÐ MIG
Eins og áður sagði urðum við Gústi
samferða í gegnum MR og áttum þar
glaðar stundir. En því ætli Gústi hafi
valið nýmáldeildina - eða „Flugfreyju-
deildina" eins og Guðni rektor sagði
jafnan. „Ég hef alltaf verið hálf-góður
við mig og reynt að fara þægilegustu
leiðina í gegnum skóla. Þó hafa tungu-
mál aldrei verið mín sterkasta hlið.
Reyndar var ég alltaf næst hæstur í
þýsku - en mig minnir að við höfum
bara verið tvö í þeirri deild,!!“ segir
Gústi og hlær. Samskipti Gústa og
Guðna voru oft skondin og slapp hann
ekkert við stríðni frekar en aðrir nem-
endur. Einhverju sinni átti Guðni leið
fram hjá okkur strákunum þar sem
við héngum fyrir utan sjoppu - og vildi
þá svo til að Gústi var að tuska ein-
hvern til. Upp frá því kallaði Guðni
hann aldrei annað en Ofbeldismann-
inn. Gústi tók þetta ekki nærri sér en
eitt sinn krafðist Guðni skýringar á því
að Ofbeldismaðurinn kæmi of seint í
tíma. Gústi hafði svör á reiðum hönd-
Gústi og Jósteinn Einarsson á High-
bury fyrir leik KR gegn QPR í UEFA
keppninni 1984.
um: „Ég þurfti að ganga frá einum á
leiðinni", fékk hann samstundis inn-
göngu í tímann.
Veturna 1980-’82 dvaldi Gústi við
nám í íþróttaskólanum á Laugarvatni
og útskrifaðist þaðan ásamt mörgum
skemmtilegum karakterum. Enda leyn-
ir það sér ekki þegar Laugarvatsgeng-
ið hittist að þá er hlegið fyrir næsta
mánuðinn. Gústi Iætur vel af dvölinni
á „Þróttó" en virðist hafa eitthvað á
samviskunni. „Ég kynntist fjölda eftir-
minnilegra persóna og mynduðust
vinatengsl sem vara munum um aldur
og ævi.“
Einn vetur hefur Gústi starfað við
almenna kennslu og annan vetur hef-
ur hann starfað sem íþróttakennari.
ár vann hann hjá Þýsk-íslenska og
í framhaldi af því vann hann í Þýska-
landi í nokkra mánuði. Við félagarnir
dvöldum síðan saman í nokkra mánuði
í París við „leik og störf" en frekari
sögur fara ekki af því. Nú í vetur hefur
alvaran tekið aftur við hjá KR-ingnum
og íþróttakennaranum því hann hefur
hafið alvarlegt nám við Kennarahá-
skóla íslands. Eftir því sem ég best veit
er hann einn tíu drengja sem þar
stunda nám innan um eitthundrað
35