Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1986, Page 63

Íþróttablaðið - 01.12.1986, Page 63
Getraunir Því er ekki að neita að vinningsmöguleikar eru miklir þegar tippað er — hæsti vinningur sem hlotist hefur var í 13. leikviku í fyrra, hann var 1,2 milljónir króna. Þetta eru þeir þrír starfsmenn íslenskra getrauna: Elínborg Magnúsdóttir, Anna Guðmundsdóttir og Birna Einarsdóttir. Hún heitir Birna Einarsdóttir, við- skiptafræðingur að mennt og á einu ári hefur hún rifið starfsemi getraunanna upp. Söluaukningin á seinasta ári var gífurleg, veltuaukningin 120% og í röðum talið var hún 50%. Hvernig er þetta hægt? „Fyrirtækinu hafði lítið verið sinnt svo það voru engir galdrar sem við þurftum að notast við til að ná þessari aukningu. Þegar ég tók við þessu starfi fyrir rúmu ári setti ég mér ákveð- in markmið og þá hafði ég að nokkru leyti til hliðsjónar reksturinn á hinum Norðurlöndunum. Það var einkum þrennt sem ég ákvað að gera til að auka söluna. í fyrsta lagi að auka aug- lýsingar og alla almenna kynningu verulega. Tekið var upp samstarf við auglýsingastofuna Krass og þar voru einnig allar upplýsingarnar hannaðar. Nýjar auglýsingar voru búnar til jafn- hliða því að auglýsingum fjölgaði mik- ið á árinu. Núna er verið að hanna nýj- ar auglýsingar íyrir sjónvarp og við ætlum að halda þessu átaki áfram. NÝTTHÚS „í öðru lagi var reynt að auka þjón- ustu við viðskiptavinina. Þar er auðvit- að fyrst að telja nýja húsnæðið hér í Laugardalnum. Frá því íslenskar getraunir tóku til starfa og fram ti! árs- ins 1982 voru þær staðsettar á skrif- stofu íþróttabandalags Reykjavíkur. Húsnæðið var fyrir löngu orðið allt of þröngt og óhentugt fyrir hina vaxandi starfsemi. Fyrir tveimur árum voru fjögur herbergi tekin á leigu hjá Í.B.R. en á seinasta ári misstum við húsnæð- ið og þá var tekin ákvörðun um að kaupa húsnæði undir starfsemina og nú eiga íslenskar getraunir aðra hæð í húsi númer 2 í íþróttamiðstöðinni upp á 250 fermetra. Edda Ríkharðsdóttir innanhússarkitekt var fengin til að sjá um alla hönnun að innan. Nú geta viðskiptavinir okkar komið hingað og tippað í þægilegu umhverfi og ef þeir vilja þá bjóðum við upp á heitt kaffi all- an daginn. Auðvitað veitum við einnig alla þá hjálp sem óskað er eftir við að fylla út seðlana. Við höfum t.d. fjölritað ýmis kerfi fyrir fólk en það eru alltaf þó nokkrir sem hafa áhuga á að nota ýmis kerfi.“ AUKIN TENGSL „í þriðja lagi ákvað ég að auka tengslin við umboðsaðilana og hef ég gert það með því að ferðast út á land og þar af leiðandi er ég í nánari tengsl- um við umboðsaðilanna þar. Svo og með því að halda fundi hér fyrir sölu- aðilana á Reykjavíkursvæðinu. íþrótta- félögin hafa forgang á allri sölu getraunanna og það eru þau sem eru umboðsaðilamir. Með því að auka tengsl við þau er auðveldara að gera sér grein fyrir því hvað viðskiptavinirn- ir vilja, að athuga hvert markaðurinn liggur því söluaðilamir eru í stöðugu sambandi við kaupendurna. Segja má að afrakstur þessa sé stóri miðinn, símaþjónustan og greiðslukortaþjón- ustan. Fólk getur hringt hingað, gefið okkur upp greiðslukortanúmerið, við fyllum út seðil hér og viðkomandi segir hvaða íþróttafélag eigi að fá sölulaun- in. Samtalið er tekið upp á segulband svo ekkert fari á milli mála ef einhver misskilningur kemur upp á. Mér hefur alls staðar verið tekið mjög vel úti á landi en það gefur að skilja að ég hef ekki komist á alla staðina. í þeim tilfell- um hef ég reynt að hringja svo og að skrifa bréf.“ Það sem vakti furðu mína þegar ég heimsótti Birnu niður í Laugardal er hversu glæsilegt húsnæðið er og hversu fáir starfsmenn sáust á vappi. íslenskar getraunir er fyrirtæki sem veltir miljónum svo einhvern veginn sá ég fyrir mér stærðarinnar bákn. Mér skjátlaðist. 63

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.