Íþróttablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 82
Á heimavelli
HÓLMBERT OG DÚFURNAR
Líkast til þarf ekki að kynna Hólm-
bert Friðjónsson fyrir lesendum
íþróttablaðsins en hann er einn
skemmtilegasti og háværasti knatt-
spymuþjálfari landsins. Hólmbert
hefur víða komið við í þjálfun og
ætíð verið vel liðinn og náð góðum
árangri. Síðastliðið sumar þjálfaði
hann Keflvíkinga í l.deildinni og kom
liðið skemmtilega á óvart. Það sem
færri vita er að Hólmbert safnar dúf-
um og á orðið dágóðan slatta af
glæsilegu fiðurfé. Einn leikmanna
ÍBK hefur og áhuga á dúfnarækt og
spurði Hólmbert eitt sinn hvort hann
ætti ekki 3-4 „Toppara“ (dúfur) sem
hann vildi skipta á fyrir aðrar. Hólm-
bert hélt það nú að hann ætti Topp-
ara og sagðist ætla að koma með þá
á næstu æfingu. Síðan líður vika og
nokkrar æfingar og ekkert bólar á
Toppurum. Leikmanninum var farið
að leiðast þófið og spurði Hólmbert
hvort hann væri búinn að gleyma sér.
Hólmbert greip þá í angist sinni um
höfuðið og rak um skaðræðis öskur:-
„Djöfullinn sjálfur - þeir eru búnir að
vera í skottinu á bflnum í heila vikur.“
Hvort leikmaðurinn notaði Toppar-
ana í sunnudagsmatinn skal ósagt
látið.
Arthur Albiston þurfti að láta klippa
burt fótboltastrákskrullurnar.
MAN.UTD ORÐIÐ AÐ
KFUM-LIÐI
Fréttir frá Old Trafford í Manchest-
er (Jnited herma að Alex Ferguson
hin nýi framkvæmdastjóri félagsins
sé langt kominn með að breyta lið-
inu í KFLIM klúbb. Ferguson lék í
stöðu framherja með ýmsum liðum í
skosku deildinni fyrir 10-15 árum og
minnast andstæðingar hans helst
sökum hörku, ósérhlífni og olnboga-
skota. Hann krefst mun meiri aga af
leikmönnum liðsins en fyrirrennari
hans hjá Manchester, Ron Aitkinson
sem mörgum þótti veita of mikið
frjálsræði. Með þessu móti hyggst
Ferguson byggja upp baráttuþrek og
hörku hjá primadonnunum á Old
Trafford. Hann krefst stundvísi og að
menn leggi allan sinn þrótt og kraft í
æfingamar. Bjórdrykkja í miðri viku
eftir leiki á ekki upp á pallborðið hjá
honum og hárlubbi er til óþurftar að
hans mati. Til dæmis þurfti bakvörð-
urinn Arthur Albiston sem elstu
menn muna ekki öðruvísi en með
fótboltastrákskrullur niður á herðar,
að láta klippa sig stutt að hætti
Fergusons - sem ekki hefur breytt út
af sinni herraklippingu um áraraðir.
ZICO
Það er ekki mikill munur á 5 ára
snáða og brasilíska knattspyrnusnill-
ingnum Zico að mati ítalska knatt-
spyrnusambandsins. Zico sagði frá
því í sjónvarpsviðtali fyrir skemmstu
að ekki alls fyrir löngu hafi hann lent í
tilviljunarkenndu lyfjaprófi knatt-
spyrnusambandsins og þurft af því
tilefni að leggja fram þvagprufu að
leik loknum. En Zico gamla var bara
ekki mál sama hvað hann reyndi -
hann þambaði vatn, labbaði um og
lét vatn renna á púlsinn á sér, - en allt
kom fyrir ekki. Dropinn vildi ekki út.
Aðra sögu var hins vegar að segja
af 5 ára syni Zicos sem beið eftir
pabbanum meðan á þessu stóð.
Honum var aldeilis orðið mál að
komast á salernið og var það honum
kærkomið þegar faðirinn bauð hon-
um að ganga með sér örna sinna.
Zico afhenti síðan þvagsýni sonar
síns og hafa honum enn engar
athugasemdir borist fráítalska knatt-
spyrnusambandinu.
82
j