Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1987, Side 22

Íþróttablaðið - 01.04.1987, Side 22
KRISTJÁN HARÐARSON 8METRAR ER ÓSKADRAUMURINN SEMMAÐUR SOFNAR OGVAKNARVIÐ. Kristján Harðarson er íslandsmet- hafi í langstökki, 7,79 m. Hann hefur dvalið í Alabama í tvö ár eftir að hafa verið eitt ár þar á undan í San Jose í Kaliforníu. Kristján var að æfa tæknina í langstökkinu er okkur bar að garði enda fyrsta mótið innanhúss ekki langt undan og því nauðsynlegt að slípa tæknina aðeins. Hann gaf sér þó tíma til að setjast aðeins niður og svara nokkrum spurningum. — Árið 1985 skiptir þú um skóla Kristján og komst hingað til Tusca- loosa frá San Jose, hvernig stóð á því? „Þjálfarinn sem ég hafði í San Jose fékk stöðu við annan skóla og leyst mér ekki nógu vel á það. Ég vissi að margir íslendingar væru hér og hér var mjög gott frjálsíþróttalið, auk þess að aðstaðan var góð. Ég skipti því um skóla í janúar 1985.“ — Nú hefur íslandsmetið staðið í tvö ár, er ekki stefnan að bæta úr því í sumar ? „Stefnan er að komast heill í gegn- um keppnistímabilið og bæta sig. Ég hef verið meiddur undanfarin tvö ár og hefur það sett verulegt strik í reikning- inn.“ — Hver er munurinn á mótum hér úti og heima ? „Mótin hér eru mun fjölmennari og sterkari og því miklu meiri keppni en heima.“ — Nýr þjálfari hér í Alabama hefur viljað breyta stökktækni þinni, hvernig líst þér á það? „Já, hann vill að ég breyti hangstíln- um í hjólastíl. Ég er nýbyrjaður á þessu og hefur þetta gengið ágætlega hingað til en ég á samt langt í land með að ná þessum nýja stíl. Hjólastíllinn virðist þó eiga betur við mig og ég hef trú á að stökkva lengra en áður. Átta metrarnir er óskadraumurinn sem maður sofnar og vaknar við á hverjum morgni." RAGNHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR ÍMARSÆTLAÉGAÐ KEPPAÍ10000 M. Ragnheiður Ólafsdóttir á öll íslands- metin í millivegalengdum kvenna þ.e. 800 m, 2.04,90 mín., 1500 m, 4.15,75 mín., 3000 m, 9.09,81 mín. Ragnheiður hefur verið hér í Alabama í 3 og 1/2 ár. Hún hljóp hring eftir hring á brautinni á æfingunni ásamt æfingafélögum sín- um sem eru alls staðar að úr veröld- inni. Við grípum hana vel sveitta eftir æfinguna og heyrum hvað hún hefur að segja: — Þú hljópst víðavangshlaup í haust fyrir lið skólans, hvernig gekk það og telur þú það góðan undirbún- ing fyrir komandi keppnistímabil ? „Mér gekk ekki nógu vel þar sem ég tók langa hvíld í haust eftir keppnis- tímabilið heima og var því sein af stað hér í haust. Liðinu gekk þó vel, við unnum svæðamótið hér í Suðaustur- ríkjunum og komumst á bandaríska háskólamótið. Þar gekk mér illa og tognaði í kálfanum. Ég tel víðavangs- hlaupin vera mjög góðan undirbúning fyrir keppnistímabilið, maður byggir upp góðan grunn.“ — Leggur þú áherslu á innanhúss- tímabilið sem er að hefjast? „Nei, það geri ég ekki. Ég mun aðallega hlaupa 2 mílur inni og vissu- lega væri gaman að ná lágmarkinu á háskólamótið, en það er ekkert atriði fyrir mig. Ég legg aðaláherslu á utan- hússtímabilið.“ — Þú varst í Þýskalandi við æfingar fyrir nokkrum árum, hver er munurinn á því að vera þar og hér? „í Þýskalandi keppti ég fyrir sjálfa mig fyrst og fremst og var með í gerð æfingaáætlana með þjálfurunum. Hér keppi ég fyrir skólann, í mörgum grein- 22

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.