Íþróttablaðið - 01.04.1987, Síða 23
um og æfi með mun yngri krökkum í
flestum tilfellum. Ég hef mun meiri
reynslu í að keppa og æfa en flestar
stelpurnar hér og þær því mataðar af
þjálfurunum og koma hvergi nærri í að
gera æfingaáætlanir. Þjálfararnir skilja
svo ekki ef ég hef kannski aðrar skoð-
anir á hlutunum en þeir.“
— Þú hefur keppt í mörgum grein-
um og staðið þig vel í þeim öllum, á
hvaða grein ætlar þú að leggja áherslu
í sumar?
„3000 metrarnir er mín grein, en
mig langar að prófa 5000 m. í mars
ætla ég síðan að keppa í 10000 m í
fyrsta skipti á braut.“
— Hvernig gengur að samræma
nám og öll þessi hlaup Ragnheiður?
„Það gengur ágætlega. Maður verð-
ur auðvitað að skipuleggja tímann vel.
En maður er heldur ekki að þessu alla
ævi og því sjálfsagt að fórna þessum
tíma í þetta.“
GUÐMUNDUR
SKÚLASON
GENGUR BETURAÐ
ÆFAENÍFYRRA
Guðmundur Skúlason kom fram á
sjónarsviðið mjög snögglega fyrir
nokkrum árum sem 800 metra hlaup-
ari. Besti tími hans í greininni er
1.50,92. Guðmundur hefur dvalið hér í
Alabama í 3 ár. Hann keppti lítið í
fyrra, en við gátum ekki betur séð en
hann væri á erfiðri æfingu þegar við
komum.
— Þú sást varla á hlaupabrautinni í
fyrra Guðmundur, hvað olli því?
„Til að byrja með var það sökum
meiðsla. Ég tognaði í læri í janúar í
fyrra og svo í hinu lærinu skömmu
seinna. Auk þessa vildi aðalþjálfarinn
hér ekki endurnýja skólastyrk minn,
þannig að ég æfði lítið eftir þetta. Ég
komst aldrei á skrið aftur og keppti því
ekkert heima yfir sumartímann. Nú
gengur mér allavega betur en í fyrra og
betur en oft áður. Ég er bjartsýnn en
þó ekki upp úr skýjunum.“
— Þú æfir með einum albesta 800
m hlaupara heims, William Wuyke frá
Venezuela sem á 1.43,5 mín„ í 800
metrunum. Skiptir þetta ekki miklu
máli fyrir þig ?
„Jú, það gerir það. William hefur
mikla reynslu og gott að hafa hann
með sér á æfingum á hverjum degi.“
— Hver er stefnan í sumar?
„Það fer eftir árangri í vor hér úti og
eftir tímanum sem ég hef aflögu. Ég er
hér í námi og ætla í sumarskóla og kem
því kannski ekkert heim í sumar. Ef til
vill verður maður bara í skólanum í allt
sumar og spilar tennis með.“
SIGURÐUR
EINARSSON
ÉG ERAÐ ÞESSU
FYRST OG FREMST
VEGNA ÁNÆGJUNNAR
Sigurður Einarsson spjótkastari
spratt heldur betur út í sumar og kast-
aði nýja spjótinu 79,74 m. Sigurður
hefur dvalið í Alabama undanfarin ár
við góðan orðstír. Hann og nafni hans
Matthíasson eru að kasta spjóti og eru
hinir hressustu.
— Nú hefur þú lokið þínum 4 árum
í keppni fyrir skólann hér í Alabama,
hvað ert þú að gera hér núna ?
„Ég mun útskrifast úr skólanum hér
í desember. Ég er hér vegna frábærrar
aðstöðu við æfingar. Hér er gott um-
hverfi og gott að hafa sinn vanagang á
hlutunum."
— Hverniglíkarþérviðnýjaspjótið
sem kom á markaðinn í sumar?
„Mér getur ekki litist illa á það, ann-
ars væri ég ekki að kasta því. þetta er
spurning um að aðlagast að breyttu
spjóti. Margir héldu að það þyrfti meiri
kraft til að kasta þessu nýja spjóti, en
ég tel þess ekki þurfa. Það er erfiðara
að vera öruggur með löng köst með
því vegna þess að þyngdarpunkturinn
er fjær átakspunktinum og því erfiðara
að ná átakinu í gegnum spjótið."
23