Íþróttablaðið - 01.04.1987, Page 27
Áhugasamir krakkar frá ísafirði tilbúnir að skíða niður brekkuna. Upprennandi
skíðastjörnur?
fullnægjandi. Árangur í íþróttum og
aðstaða helst jafnan í hendur. Hér er
mjög lítið íþróttahús en uppbygging í
flestum íþróttagreinum er mjög já-
kvæð. Nýr malarvöllur hefur verið tek-
inn í notkun og hefur knattspyrnu-
deildin því þrjá velli til umráða.
Gróskumikið starf er í knattspyrnunni
þrátt fyrir að horfur séu ekki bjartar
með meistaraflokk félagsins. Tíu flokk-
ar er reknir í félaginu og höfum við
mjög góðan efnivið. Fjórði flokkur
spjaraði sig vel í fyrra sumar en sann-
ast sagna er allt of lítið lagt í þjálfun
yngri flokkanna. Sú þjálfun þarf að
vera mjög markviss og ákveðin til þess
að strákarnir skili sér upp í meistara-
flokk. Stelpurnar lentu í 2. sæti í sínum
riðli í 2. deild og er því bjart framundan
hjá þeim. Auk þess að eiga lið í 2. deild
þá leika tvö lið héðan í 4. deild. Það
eru BÍ og Reynir Hnífsdal sem er í
næsta nágrenni ísafjarðar.
Þar sem íþróttahús staðarins er með
minnsta móti er körfubolti lítið stund-
aður. Við höfum leikið blak og bad-
minton í húsinu en fólk frá ísafirði
sækir töluvert í íþróttahús Bolungar-
víkur sem er stórt og rúmgott. En allt
horfir til betri vegar hvað varðar
íþróttamannvirki því þegar hefur verið
tekin fyrsta skóflustungan að nýju
íþróttahúsi. í kjölfar þess ættum við að
ná upp kraftmiklum innanhússíþrótta-
greinum. Á ísafirði eru frjálsar íþróttir
ekki stundaðar sökum aðstöðuleysis
en á sumrin eru þó haldin ýmis nám-
skeið sem tengjast frjálsum íþróttum.
Almenningur á ísafirði bregður sem
oft á gönguskíði og hefur verið lögð
áhersla á góðar brautir. Eins og gefur
að skilja er skíðaíþróttin mjög vinsæl
hér og hefur alla tíð verið okkur í blóð
borin. Stutt er í skíðavæðið og gerir
það okkur mun auðveldara um vik.“
Fimm íþróttakennarar eru starfandi
á ísafirði og eru mörg íþróttanámskeið
haldin á þeirra vegum. Bæjarbúar geta
stundað leikfimi og erobikk að vild
undir góðri leiðsögn Rannveigar Páls-
dóttur og Guðríðar Sigurðardóttur.
Ný félagsmiðstöð var opnuð í lok
janúar og er aðstaða þar sérlega glæsi-
leg. Krökkum gefst þar kostur á að
stunda billjard, borðtennis og margt
fleira. Forstöðumaður félagsmiðstöðv-
arinnar sem ber nafnið Sponsið heitir
Dagný Björg Pétursdóttir."
Björn Helgason hefur í mörg horn
að líta því undir hans umsjón er m.a.
skíðasvæðið, íþróttahúsið, sundlaugin,
íþróttavellirnir og félagsmiðstöðin.
SKÍÐALANDSMÓT
ÍSLANDS
Um páskana verður að öllum líkind-
um mikið að gerast á ísafirði því dag-
ana 15.-20. apríl verður Skíðalandsmót
íslands haldið á Seljalandsdal. Undir-
búningur hefur staðið yfir frá því í
nóvember og verður allt komið á loka-
stig fýrir mánaðamótin mars apríl. Gíf-
urleg vinna hefur verið lögð í undir-
búning Landsmótsins en formaður
undirbúningsnefndar heitir Óli Magn-
ús Lúðvíksson. Öll aðstaða fyrir kepp-
Óli Magnús Lúðvíksson formaður
undirbúningsnefndar skíðalandsmóts-
ins.
endur, dómara og áhorfendur verður
til fyrirmyndar og er reiknað með að
um 70 stafsmenn verði á svæðinu
mótsdagana.
Árið 1983 var Landsmótið síðast
haldið á ísafirði og ríkir því mikil eftir-
vænting í bænum. Að öllum líkindum
verða keppendur um sjötíu, þar á með-
al okkar besta skíðafólk. Möguleiki er á
því að nokkrir erlendir keppendur
verði meðal þátttakenda. Að sögn Óla
Lúðvíkssonar er bjartsýni ríkjandi á að
mótið verði gott og keppendur ánægð-
ir með brautirnar því þær eru með
besta móti.
Að sögn Óla hefur skíðaáhugi á
landinu verið í lægð og telur hann
ástæðu þess að ekki hafi verið um
Björn Helgason íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúi á ísafirði.
27