Íþróttablaðið - 01.04.1987, Síða 29
ísafjörður
Helga Sigurðardóttir tekur á í heimasmíðuðum sundbekk sem kemur að góð-
um notum.
Ólafur þurfti ekki að standa með svipu
yfir krökkunum því agaðari íþróttahóp
hef ég sjaldan augum litið. Svitinn bog-
aði niður spennta vöðvana og hver
æfingin rak aðra. Hvorki heyrðist hósti
né stuna frá nokkrum manni en Ólafur
gekk á milli og leiðbeindi af fremsta
megni. Já, það er mikið á sig lagt nú á
dögum til þess að ná árangri. Að lok-
inni þrekþjálfuninni var farið í skýlur
og sundboli og sundlaugin varð vett-
vangur næstu æfinga. Hver kílómetr-
inn af öðrum var lagður að velli og
synti hver í kapp við annan.
Þetta var ekki eina æfing dagsins því
5 daga vikunnar fer keppnishópurinn á
fætur klukkan hálf sex á morgnana og
syndir þá fjölmarga kílómetra. Ekki
öfundsvert að vera sundmaður í
fremstu röð — eða hvað? Að lokinni
æfingu hittum við hinn áhugasama
þjálfara Vestra að máli en Ólafur kom
til Ísaíjarðar haustið 1983 þegar þjálf-
arastaðan var auglýst laus til umsókn-
ar. Á undan Ólafi voru sundmálin á
staðnum í höndum Ingólfs Gissurar-
sonar frá Akranesi og Fylkis Ágústs-
sonar frá ísafirði.
„Þetta var allt í startholunum þegar
ég kom hingað og áhuginn fyrir hendi.
Það sem hjálpar mikið til er að krakk-
arnir eru miklir námshestar og kunna
þar af leiðandi vel við kröfurnar. Ég
tók strax þá stefnu að breyta til og
koma á fót foreldrastarfi. Það byggist á
því að foreldrar krakkanna reka
sundfélagið. Því skyldi ég, ókunnugur
maður úti í bæ vera að reka félag fýrir
börnin þeirra. Allt er því í höndum for-
eldranna, stjórnin, Ijáröflun og móts-
hald. Við erum aðeins ráðgefendur.
Þessi stefna, það að virkja foreldrana
er að ryðja sér til rúms hér á landi og ef
til vill erum við brautryðjendur."
— Hverjar eru þjálfunaraðferðir
þínar?
„Mínar þjálfunaraðferðir eru í flest-
um tilfellum hefðbundnar en við vinn-
um að vísu eingöngu eftir amerískum
kerfum. Við höfum mjög góða aðstöðu
þótt laugin sé eins og hún er. Æfinga-
tími er mjög reglubundinn og hentar
hann krökkunum vel. Áhuginn sem
spinnst á milli foreldra og barna kallar
á mikið aðhald. Það er auðvelt að eiga
við krakkana þegar hægt er að gera
það í gegnum íjölskylduna. Eftirlit og
upplýsingastreymi er mjög gott — ég
þýði töiuvert af erlendu efni sem ég
kemst yfir hvað varðar mataræði og
fleira. Það sem er kannski frábrugðið
hjá okkur er að við tökum þetta mjög
aivarlega. Aginn er strangur en það
kjósa þau og finnst hreinlega slæmt að
hafa losarabrag á hlutunum. Það er
létt vinna fyrir þjálfara að vinna með
svona hópi.“
— Ertu sáttur við árangur krakk-
anna til þessa?
„Ég get ekki verið annað — því
þessi tími hefur verið ævintýri líkastur.
Félagið var nánast ekki til fyrir 4 árum.
Við vorum í 2. deild í fyrra en erum nú-
verandi bikarmeistarar."
— Er landsbyggðin að stela sen-
unni frá Reykjavík?
„Það virðist vera. Uppbyggingin og
framfarirnar eru úti á landsbyggðinni
og virðist vera einhver lægð í Reykja-
vík. Besta sundfólkið í dag er utan af
landi. Landsliðsfólk okkar eru Helga,
Þuríður, Ingólfur, Birgir og Pálína.
Tveir aðrir standa á þröskuldi lands-
liðsins og vonumst við til að ná þeim
inn eftir næsta meistaramót."
— Hve stór hluti æfinga sundfólks
er með lóð og aðrar líkamsæfingar?
„Við æfum lyftingar 5 sinnum í viku
— klukkutíma í senn og syndum á eft-
ir. Einnig teygjum við mjög vel. Æfing-
íþróttamaður!
Mjólk er orkulind og heilsugjafi
Mjólk er fóstra og félagi
Mjólk er góö
Mjólkursamlag ísafjarðar
29