Íþróttablaðið - 01.04.1987, Page 43
okkur séð, og þar er mjög vont að
mynda vegna ákaflega lélegrar
birtu í höllinni."
En fyrst þú ert farinn að tala um
þann leik verð ég að spyrja um mynd-
ina frægu sem sýnir fantabrögð Júgó-
slavanna, var það ákveðið fyrir leik að
ná mynd af því atviki?
„Nei og reyndar hafði ég ekki hug-
mynd um að hafa náð þessu augna-
bliki. Júgóslavarnir eru það snöggir að
mannsaugað greindi ekki fantabrögðin
en það gerði myndavélin á einum
fimmhundraðasta úr sekúndu. Reynd-
ar geri ég ekki ráð fyrir að hafa áttað
mig á gildi þessarar myndar nema
vegna greinar um þetta sem ég var ný-
búinn að lesa í DV.“
Og það er ekki úr vegi að spyrja
íþróttaáhugamanninn og ljósmyndar-
ann um eftirminnilegustu leikina sem
hann hefur myndað.
Smellt af á réttu augnabliki. Á þessari mynd skorar Guðmundur Þorbjörnsson
sigurmarkið í leik Vals og Nantes, sem fram fór á Laugardalsvellinum 17. sept-
ember 1985. Leiknum lauk með 2-1 sigri Vals. Guðmundur skoraði á síð-
ustu mínútum leiksins í myrkri og slæmu skyggni. Einar Ólason var eini ljós-
myndarinn sem eftir var á vellinum þrátt fyrir myrkrið náði hann að smella af og
þetta er útkoman, gróf og óskýr mynd en sýnir allt sem þarf að sýna.
Hér er réttur maður á réttum stað á réttum tíma. Ólafur Róbertsson bjargar falli
Víðis á línu í 3-2 leik Víðis og Þróttar.
„Þeir eru tveir og ákaflega ólíkir.
Annar skiptir miklu máli fyrir mig
persónulega en það var þegar Völsung-
ar unnu Selfoss í haust sem leið og
tryggðu sér þar með sigur í 2. deild.
það var nokkuð sem Húsvíkingurinn
ég var búinn að afskrifa og það var
æðislega gaman að fylgjast með þeim
leik og ef til vill þess vegna sem ég náði
ekki nægilega góðum myndum af
leiknum. Hinn Ieikurinn var viðureign
Vals og Aston Willa á Wilia Park í
Birmingham 1981. Það var ótrúlega
gaman að mynda enskt fyrstu deildar
lið á sínum heimavelli og vera innan
um allan þann fjölda ljósmyndara sem
þarna var að mynda. Þeirri upplifun
gleymi ég seint."
Að lokum, hefur þú alltaf haft áhuga
fyrir ljósmyndun?
„Já svo lengi sem ég man eftir mér.
Þegar ég var í barnaskóla á Húsavík
neitaði ég eitt sinn að fara í skólann
nema pabbi keypti handa mér mynda-
vél sem kostaði þá 375 krónur. En það
varð ekkert úr því og myndavélarlaus
þurfti ég að fara í skólann."
43