Íþróttablaðið - 01.04.1987, Qupperneq 54
Æfum við vitlaust?
æfingar strax á þriðja í jólum og var
æft mjög mikið alveg fram undir gaml-
ársdag. Þess ber að geta, að venjulegu
æfingarálagi var haldið fram að 21.
desember. Venjan hafði verið að æfa
fjórum sinnum í viku því var haldið á
milli jóla og nýárs en í viðbót voru
auka æfingar og æfingaleikir. Strax eft-
ir áramót hófst venjuleg æfingalota og
svo leikir fljótlega þar á eftir. Af þessu
sést að jólatímabilið var engin hvíld
fýrir þessa menn.
Þegar þeir komu í mælingar í janúar
sýndu þeir flestir sömu einkennin. Þeir
áttu erfitt með að stíga hjólið á þeim
þyngdum sem notaðar voru fyrir jól.
Þeir urðu fljótt móðir og hjartað svar-
aði fyrr og skarpara en áður. Síð-
ast en ekki síst þá voru þessir menn
leiðir. Þeir voru margir hverjir búnir að
fá nóg af öllu sem kallast gæti líkams-
þjálfun. Það skal tekið fram að ég tal-
aði við mun fleiri en þessa 8 sem ég
þolmældi og var leiðinn einkennandi
fyrir þá flestalla.
Á stofnfundi „íþróttalækningafélags
íslands“ vorið 1985 hélt dr. Kjell
Myhre fyrirlestur um það sem hann
kallar „Overtraining" sem á íslensku
mætti kalla Ofþjálfun. Þegar ég hlust-
aði á þann fyrirlestur datt mér strax
handboltamennirnir mínir í hug. Flest
öll einkennin sem dr. Myhre taldi upp
sem einkenni ofþjálfunar hafði ég
fundið hjá handboltamönnunum í jan-
úar. Dr. Myhre talaði einnig um þætti
sem koma fram við ofþjálfun, þætti
sem ég hef ekki tækifæri til þess að
athuga. Hér er t.d. um að ræða breyt-
ingu á styrk testosterona og kortisola í
blóði miðað við það sem er hjá sömu
mönnum við „normal ástand". Dr.
Myhre talaði um að þjálfarar þekki
oft ekki einkenni ofþjálfunar sem slík,
og svöruðu þeim því á rangan hátt.
Þannig að í stað þess að gefa mönnum
hvíld, eða að minnsta kosti að breyta
um form og eðli æfinga, þá er æfinga-
álagið aukið. En það er einmitt það
sem mér skilst að hafi gerst hjá hand-
boltamönnunum sem ég hafði til at-
hugunar.
Þegar horft er til baka, þá kemur að
mínu áliti í ljós að þessi mikla æfinga-
lota í lok desember var algerlega óþörf.
Fyrir jól voru mennirnir í góðu formi,
bæði andlega og líkamlega, og áttu
skilið að fá að mestu frí fram á nýár.
Það gildir nefnilega það sama fyrir
þessa menn og sagt var um knatt-
spyrnumennina hér að framan. Þetta
eru áhugamenn og til þess verður að
taka tillit. Það er tilgangslaust að miða
sig við erlenda hálf eða full atvinnu-
menn, slíkt getur aldrei endað vel. Nóg
hefði verið að setja 2-3 æfingar á
mennina yfir þenna tíma. Það var ekki
gert og skilaði það sér í 4 tapleikjum
hjá því liði sem flestir þessara manna
léku með strax á fyrstu vikum nýja
ársins.
Virðingarfyllst, Jón Ingi Benediktsson
Kjötpoka- íþróttafélög
verksmiöjan h/f íþróttahópar
Búðardal — Sími: 93-4240 SALIR fyrir t.d.
Framleiðum allar gerðir ráðstefnur
kjötpoka fyrir innanlandsmarkað og árshátíðir afmæli
fyrir útflutning. Getum boðið uppá lifandi tónlist gerum föst verðtilboð
Einnig ávallt fyrirliggjandi Framleiðslumaður:
grysjur fyrir verkstæði Pétur Sturluson
og heimili. J H IfSÍS j 1 Veislu- og fundarsalir Hverfisgötu 105 ■m ■ ■■ ■ Wm 1 Símar 29670 - 22781
54