Íþróttablaðið - 01.06.1993, Page 3
Ritstjóraspjall
Það er stundum áhugavert að velta því fyrir sér hvers konar einstaklingar
skara fram úr í íþróttum — og jafnvel á öðrum vettvangi. Öll höfum við heyrt
hin fleygu orð „survival of the fittest" — hinir hæfustu lifa af! En hverjir eru
hinir hæfu og af hverju eru ekki allir jafn hæfir? Meðfæddir hæfileikar, svo sem
tækni, hraði, útsjónarsemi, harka og þrautseigja, eiga væntanlega stærstan
þátt í því að einn tekur öðrum fram í sömu íþróttagrein. Oft gleymist þó
veigamikill þáttur sem er ekki síður mikilvægur — sjálfsgagnrýni. Það er
staðreynd að sjálfsgagnrýni hefur mjög mikið að gera með það hvort viðkom-
andi skari fram úr og því miður virðast margirgleyma að líta í eigin barm þegar
hallar undan fæti.
Þeir, sem hafa stundað íþróttir um langt árabil, hafa að öllum líkindum
kynnst íþróttamanni sem er gæddur svo miklum hæfileikum að frægðarljóm-
inn bíður þess að lýsa hann upp frá öllum hliðum. En....smám saman er
þolinmæði Ijómans á þrotum því sá, sem átti alla möguleika á að leggja
heiminn að fótum sér, nennti ekki að hafa fyrir hlutunum, skorti sjálfsgagnrýni
og metnað. Hæfileikarnir voru til staðar — leiknin, hraðinn og allt sem prýðir
sigurvegara — en sjálfgagnrýninaog metnaðinn skorti. Svonaferfyrir mörgum
á hverju ári — jafnt hér á landi sem erlendis.
Á sama tíma klífa aðrir íþróttamenn tindinn, öllum að óvörum, íþrótta-
menn, sem voru stimplaðir varamenn eða c-liðsmenn í æsku, íþróttamenn
sem fengu jafnvel ekki að vera með í keppni á yngri árum. Þótt leikni þeirra og
hæfileikar hafi ekki verið framúrskarandi höfðu þeir sjálfgagnrýnina, metnað-
inn og viljann til þess að ná langt. Og þeir lögðu það á sig, sem þurfti, til þess
að komast á toppinn. Öll þekkjum við dæmi um þesskonar íþróttamenn.
í harðnandi samkeppni um að komast í úrvalshóp, landslið — leika fyrir
hönd þjóðarinnar viðerlenda íþróttamenn — duga hæfileikarnirekki einirsér
ef sjálfsgagnrýnina, metnaðinn og eljusemina skortir. Þeir, sem hafa þurft að
hafa mestfyrir hlutunum ogskotiðöðrum ref fyrir rassöllum að óvörum, vinna
stærstu sigrana. Kannski persónulegri sigra en marga grunar.
Undirritaður þekkir mýmörg dæmi úr íþróttum þar sem íþróttamenn hafa
flúið frá SÍNU félagi, farið í fýlu, sagt þjálfarann ómögulegan og þar fram eftir
götunum af því þeir komust ekki í keppnishóp í fyrstu eða annarri tilraun. Allir
voru á móti þeim, enginn mat hæfileika þeirra sem skyldi og þess vegna yar
flúið. Þessir íþróttamenn átta sig vonandi á því seinna að þeir voru að flýja
sjálfa sig. Flýja það að hafa ekki lagt meira á sig og að hafa gleymt að líta íeigin
barm. Hvaðgátu þeir sjálfir lagt af mörkum til þess að komast í keppnishópinn
og verða betri? Þá skorti SJÁLFSGAGNRÝNI?
Það kemur fyrir að íþróttamenn, sem skortir sjálfsgagnrýni, grafi undan
samheldninni í liðum. Litlar klíkur óánægðra leikmanna stunda „kafbátasta-
siglingar" og eftir stendur vængbrotinn keppnishópur. Sem betur fer tekst
sumum þjálfurumogfélögum að koma ívegfyrir svonaskemmdarstarfsemi en
víða er pottur brotinn hvað þetta varðar.
Sjálfsgagnrýni er lykilorðið — ekki bara í íþróttum heldur lífinu sjálfu.
Öllum er nauðsynlegt að setjast niður annað slagið og velta því fyrir sér á
hvaða leið þeir eru, hvort þeir séu að breyta rétt. Og á hvaða hátt þeir geti bætt
sig. Menn eiga ekki að kasta steinum úr glerhúsi og rakka aðra niður heldur líta
íeigin barm meðopnum huga. Þeir, sem gera það af sanngirni og heiðarleika,
fela steininn skömmustulega að svo búnu!
Þorgrímur Hafsteinn Viðar
Þráinsson ritstjóri auglýsingastjóri
Ritstjóri og
ábyrgðarmaður:
Þorgrímur Þráinsson
Beinn sími ritstjóra: 678938
Ljósmyndarar: Gunnar
Gunnarsson, Hreinn
Hreinsson og Kristján
Einarsson
Skrifstofa ritstjórnar:
Bíldshöfða 18. Sími 685380
Aðalritstjóri:
SteinarJ. Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson
Áskriftargjald kr. 1.230,00
(1.-3.tbl.) Kr. 1.107 ef greitt
er með greiðslukorti.
Hvert eintak í áskrift kr.
410,00 en 369,00 ef greitt
er með greiðslukorti.
Hvert eintak í lausasölu kr.
469,00
Áskriftarsími: 812300
Útgefandi: Fróði hf.
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18, sími 812300
Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir.
3